Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfir 120 rænt í Írak undanfarið ár Yfir 120 útlendingum hefur verið rænt í Írak síðastliðið ár og hefur um þriðjungur þeirra verið tekinn af lífi en sumum sleppt eftir að komið hefur verið til móts við kröfur mannræningja. Tyrkir eru fjölmennastir á lista þeirra sem rænt hefur verið, eða alls 14, en 12 Nepölum var rænt í fyrra og þeir allir teknir af lífi. 18.2.2005 00:01
Mótmælir ákvörðun vegna auglýsinga Samband íslenskra auglýsingastofa, SÍA, mótmælir þeirri ákvörðun Samkeppnisstofnunar að mælast til þess að Umferðarstofa taki þrjár sjónvarpsauglýsingar sínar úr umferð. Í yfirlýsingu frá SÍA segir meðal annars: „Ekki verður séð að sú fullyrðing Samkeppnisstofnunar fái staðist, að í auglýsingum Umferðarstofu sé sýnt hættulegt atferli sem haft geti þannig áhrif á börn að þau líki eftir þeirri hegðun sem sýnd er í auglýsingunum.“ 18.2.2005 00:01
Nota krana og vélmenni í niðurrif Fjarstýrðir kranar verða notaðir til þess að rífa niður skelina af Windsor-skýjakljúfinum sem brann í Madríd um síðustu helgi. Byggingin er þrjátíu og tvær hæðir. Ekkert er eftir af henni nema burðargrindin en hún er svo veikburða eftir eldinn að ekki er talið óhætt að senda menn inn í hana til vinnu. 18.2.2005 00:01
Aðgerðir vegna gigtarlyfja Lyfjastofnun Evrópu hefur tilkynnt aðgerðir vegna COX-2 lyfjaflokksins, sem fela í sér viðvaranir til lækna um ávísun lyfjanna. Þessar aðgerðir eiga einnig við á Íslandi. 18.2.2005 00:01
Aðgerðir vegna COX-2 hemla Lyfjastofnun Evrópu hefur tilkynnt aðgerðir vegna lyfjaflokksins COX-2 hemla sem eiga einnig við á Íslandi. Hér á landi eru fjögur lyf á markaði sem tilheyra þessum flokki: Arcoxia, Celebra Dynastat og Bextra samkvæmt fréttatilkynningu frá Lyfjastofnun. 18.2.2005 00:01
Skoðar viðskipti með fasteignir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir til skoðunar hversu langt starfsheimildir bankanna nái hvað varðar viðskipti með fasteignir. 18.2.2005 00:01
Áfram í 96 milljóna ábyrgð Reykjavíkurborg verður áfram í ábyrgðum fyrir Landsvirkjun þó að 44,5 prósenta hlutur borgarinnar í fyrirtækinu verði seldur. 18.2.2005 00:01
Reynt að afstýra trúarbragðastríði Öfgahópar súnnímúslima í Írak hafa ráðið að minnsta kosti 27 sjítamúslima af dögum í dag. Árásir súnníta á sjíta fara vaxandi dag frá degi en yfirvöld reyna hvað þau geta til að afstýra trúarbragðastríði í landinu. 18.2.2005 00:01
Ísraelar hætta niðurrifi Stjórnvöld í Ísrael hafa komist að þeirri niðurstöðu að sú stefna að brjóta og eyðileggja hús aðstandenda sjálfsmorðsárásarmanna skili engum árangri og hafa ákveðið að hætta þeirri iðju. Þetta er í anda þeirrar þíðu sem nú er brostin á í samskiptum Ísraels- og Palestínumanna. 18.2.2005 00:01
Kosið um stjórnarskrá ESB á Spáni Spánverjar verða fyrstir Evrópusambandsþjóða til að kjósa um nýja stjórnarskrá ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Spænska ríkisstjórnin hefur varið stórfé til að kynna stjórnarskrána en þrátt fyrir það er búist við lélegri kosningaþátttöku enda virðast fáir Spánverjar hafa áhuga á málinu. 18.2.2005 00:01
Thatcher neitar aðild að valdaráni Sonur Margrétar Thatchers, Mark Thatcher, mætti fyrir rétt í morgun vegna gruns um að hann hafi fjármagnað misheppnað valdarán í Miðbaugs-Gíneu í Afríku á síðasta ári. Thatcher yngri, sem hefur stundað almennt brask um alla Afríku og keypti meðal annars þyrlu fyrir valdaránsmennina, harðneitar sök. 18.2.2005 00:01
Nokkurra saknað eftir fellibyl Nokkurra manna er saknað á smáeyjum á Suður-Kyrrahafi en tveir fellibyljir, Nancy og Ólafur, hafa gengið yfir svæðið síðustu daga. Alls er fjögurra fiskibáta saknað og hafa flugvélar og þyrlur frá Nýja-Sjálandi leitað á hafsvæðinu. 18.2.2005 00:01
Konungshjón Svíþjóðar í Taílandi Karl Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning eru nú í opinberri heimsókn í Taílandi þar sem þau hafa skoðað þau svæði sem urðu hvað verst úti þegar flóðbylgjan gekk þar á land á öðrum degi jóla. Að minnsta kosti 113 Svíar létu lífið í hamförunum í Taílandi. 18.2.2005 00:01
Kim Jong-il fagnar afmæli sínu Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hélt upp á sextugasta og þriðja afmælisdag sinn í dag með því að koma fyrir almenningssjónir í fyrsta sinn í tvo mánuði. Sögusagnir hafa verið á kreiki um veikindi Kims en hann virtist við hestaheilsu og sat rússneska danssýningu. 18.2.2005 00:01
bjorn.is tíu ára "Ég sá það ekki fyrir fyrir áratug síðan hvað þetta yrði stórt og veit það svo sem ekki enn," segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, en á þessum degi fyrir réttum tíu árum birtist fyrsta greinin á vefsíðu hans bjorn.is sem haldið hefur verið úti allar götur síðan. 18.2.2005 00:01
Magni hættir í haust "Í haust verð ég sjötugur og vil hafa einhvern tíma til að leika mér sjálfur, þannig að í október eða nóvember ætla ég að sjá hvort einhver vill kaupa búðina og halda áfram að vera jókerinn við Laugaveg," segir Magni Magnússon kaupmaður, sem hefur ákveðið að setjast í helgan stein. 18.2.2005 00:01
Ekki úr greipum Bandaríkjamanna Það sækir enginn menn í greipar Bandaríkjamanna ef þeir vilja ekki láta þá lausa, segir Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, og telur allt hafa verið gert til að hjálpa Aroni Pálma Ágústssyni sem situr í stofufangelsi í Texas. Vonbrigði, segja ættingjar Arons. 18.2.2005 00:01
Hægt að rýma miðbæinn á 20 mínútum Það gæti tekið á aðra klukkustund að rýma miðbæ Reykjavíkur ef öryggi fólks þar væri ógnað þar sem ekki er til nein rýmingaráætlun. Væri hún til tæki aðeins innan við tuttugu mínútur að rýma miðborgina á menningarnótt. 18.2.2005 00:01
Fá greiddar 450 krónur á tímann Talið er að tugir erlendra manna starfi ólöglega við iðnaðarstörf á höfuðborgarsvæðinu. Dæmi eru um að þeir séu látnir búa í gámum, hjólhýsum og fokheldum byggingum og fái greiddar 450 krónur á tímann. 18.2.2005 00:01
Hljóta að geta fyrirgefið Fischer Ef menn gátu fyrirgefið Khadafi Líbíuleiðtoga hljóta þeir að geta fyrirgefið Bobby Fischer, segir utanríkisráðherra, og vill ekki meina að Bandaríkjamenn hafi beitt íslensk stjórnvöld þrýstingi til að draga boð um dvalarleyfi til handa Fischer til baka. 18.2.2005 00:01
Segir seinagang óviðunandi Dómsmálaráðherra telur óviðunandi að sýslumenn og lögregla leggi ekki fram ákærur í málum fyrr en mörgum mánuðum eftir að rannsókn lýkur og ætlar að gera gangskör að því að auka hraðann. Embættin fá þó ekki meira fé. 18.2.2005 00:01
Í fótspor Vesturfara Hópur reiðmanna mun feta í fótspor íslenskra landnema í Kanada í sumar og ferðast um slóðir Vestur-Íslendinga á íslenskum hrossum. Það er ungur Kanadamaður sem skipuleggur ferðina en segja má að kveikjan að þessum leiðangri hafi verið snjóbrettaiðkun í kanadískum fjallshlíðum. 18.2.2005 00:01
Berklar í Hollandi Berklasjúkdómurinn hefur gert vart við sig í borginni Zeist í Hollandi. Fyrr í mánuðinum greindist kona sem vinnur á búðarkassa í matvöruverslun með sjúkdóminn. Í kjölfarið fóru 21 þúsund manns, sem töldu sig mögulega hafa komist í snertingu við konuna, í berklapróf. 18.2.2005 00:01
Lungnabólgufaraldur í Kongó Að minnsta kosti 60 hafa látist í mannskæðum lungnabólgufaraldri sem nú geisar í Kongó í Afríku. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) er þetta versti lungnabólgufaraldur sem greinst hefur í heiminum í 50 ár. 18.2.2005 00:01
Rússar styðja Írani Vladimir Pútín, forseti Rússlands, segist sannfærður um að Íranir séu ekki að reyna að þróa kjarnorkuvopn. Eftir fund í Moskvu með Hassan Rowhani, yfirmanni kjarnorkumála Írana, sagði Pútín að rússnesk stjórnvöld myndu áfram vinna með Írönum og hjálpa að ljúka smíði kjarnakljúfs í borginni Bushehr í suðurhluta Írans. 18.2.2005 00:01
Ekki aðeins pyntingar í Abu Ghraib Svo virðist sem Bandaríkjaher noti pyntingar á kerfisbundinn hátt til að yfirheyra fanga. Komið hefur í ljós að bandarískir hermenn hafa ekki bara stundað pyntingar í Abu Ghraib fangelsinu í Írak og á Guantanamo á Kúbu, heldur líka í Afganistan. 18.2.2005 00:01
Fundu 4 tonn af maríjúana Mexíkóska lögreglan hefur lagt hald á fjögur tonn af maríjúana sem fundust í húsi við borgina Juarez. Borgin er við bandarísku landamærin og er talið að smygla hafi átt efninu til Bandaríkjanna. 18.2.2005 00:01
Starfsfólkið með súrefnisgrímur Eigandi kaffishússins Prikið á Laugarveginum er æfur vegna fyrirhugaðs reykingabanns á veitingastöðum. Í lok vikunnar var lagt fram frumvarp þess efnis á Alþingi. "Ég vil fá að hafa reykingarfólk inni á Prikinu" segir Guðfinnur Sölvi Karlsson, eigandi Priksins. 18.2.2005 00:01
Ráðist á síja-múslíma í Írak Að minnsta kosti 36 írakar létust, flestir síja-múslímar, í fimm sprengjuárásum uppreisnarmanna súnní-múslíma í landinu í gær. Talið er að árásirnar tengist Ashoura, trúarhátíð sjía-múslíma, sem nær hámarki í dag. 18.2.2005 00:01
Glitský sjaldgæf í borginni Glitský sáust yfir Reykjavíkurborg í gærmorgun. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur segir óvanalegt að sjá glitský á sunnanverðu landinu en ekki sé nema um mánuður síðan þau sáust síðast. 18.2.2005 00:01
Vélstjórar bíða Sólbaksdóms Félagsdómur hefur ekki kveðið upp dóm í Sólbaksmálinu. Vélstjórafélag Íslands kærði og vill láta ógilda Sólbakssamninginn sem útgerðin Brim hf. gerði um skipið Sólbak og við áhöfn þess. Helgi Laxdal formaður Vélstjórafélagsins átti von á úrskurði dómsins í vikunni: 18.2.2005 00:01
Stálu þriggja tonna tjakki Brotist var inn í fiskvinnslufyrirtæki á Reykjanesi í fyrrinótt og hvarf þjófurinn á brott með verkfærakistu á hjólum, rafsuðutæki, hátíðnisuðutæki og þriggja tonna tjakk. 18.2.2005 00:01
Brotist inn í skóla á Stokkseyri Fartölvum, skjám og öðrum tölvubúnaði var stolið úr skóla á Stokkseyri þegar brotist var þar inn í fyrrinótt. Þegar Fréttablaðið fór prentun í gærkvöldi hafði löreglan ekki náð þjófinum. 18.2.2005 00:01
Fimm handteknir vegna fíkniefna Lögreglan í Hafnarfirði hafði afskipti af fimm manns í þremur óskyldum fíkniefnamálum í fyrri nótt. Bifreið var stöðvuð í Garðabæ og fannst þá lítið magn af amfetamíni og maríjúana. Í framhaldinu var gerð húsleit í Hafnarfirði og fundust þá 50 grömm af amfetamíni. Tveir menn voru handteknir og gistu fangsklefa. 18.2.2005 00:01
Rúta fauk af veginum á Söndum Rúta fauk af veginum á Söndum skammt frá Bolungarvík en hún var á leiðinni frá Ísafirði. Ökumaður var einn og meiddist ekki. "Þetta var samspil hálku og vindhviðu sem hefðu sennilega sett rútuna á hlið," sagði Hermann Þór Þorbjörnsson sem sýndi mikið snarræði þegar sterk vindhviða skall á rútunni sem hann ók á leið til Bolungarvíkur. 18.2.2005 00:01
Lést í vélsleðaslysi Maður lést þegar hann fór fram af hengju á vélsleða á Landmannaleið um miðnætti á aðfaranótt föstudags. 18.2.2005 00:01
Lokað á hjartadeild vegna bakteríu Sýkingarbaktería sem fannst á hjartadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í síðustu viku olli því að loka varð hluta deildarinnar. Enn er ein stofa lokuð. Þessi baktería er landlæg í erlendum sjúkrahúsum. </font /></b /> 17.2.2005 00:01
Al-Kaída mun nota gereyðingarvopn Óöldin í Írak eykur líkurnar á því að uppreisnarmenn láti til skarar skríða í öðrum löndum að mati Porters Goss, yfirmanns bandarísku leyniþjónustunar CIA. Hann segir aðeins tímaspursmál hvenær hryðjuverkahópur eins og Al-Kaída muni reyna árásir með gereyðingarvopnum. 17.2.2005 00:01
Verðsamráð loðnuútgerða? Ýmsir sjómenn á loðnuflotanum telja að loðnubræðslurnar og útgerðin hafi með sér verðsamráð um greiðslur til sjómanna og séu þannig að skammta sér hagnað á kostnað sjómanna. Við upphaf vertíðar voru greiddar um sjö þúsund krónur fyrir tonnið í bræðslu en nú er verðið komið niður fyrir sex þúsund krónur. 17.2.2005 00:01
Líklegar til að fá lungnakrabba Íslenskar konur eru næstlíklegastar allra kvenna í Evrópu til þess að fá krabbamein í lungu. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem breska dagblaðið <em>Telegraph</em> greinir frá í dag. 17.2.2005 00:01
Sprenging í Sómalíu fellir tvo Tveir féllu í valinn og sex særðust í sprengingu sem varð í höfuðborg Sómalíu í morgun. Embættismenn frá grannríkinu Kenýa segja að flest bendi til þess að hryðjuverkamenn hafi staðið að sprengingunni. 17.2.2005 00:01
Eldur í bílskúr í Keflavík Eldur kom upp í bílskúr í Keflavík seint í gærkvöldi en búið er í bílskúrunum. Íbúinn var ekki heima en þegar nágrannar urðu varir við reyk var kallað á slökkvilið. 17.2.2005 00:01
Níu umferðaróhöpp á Akureyri Níu umferðaróhöpp urðu á Akureyri frá hádegi og til klukkan átján í gær sem er óvenju mikið þar í bæ. Flest óhöppin voru minniháttar en þó slasaðist einn í hörðum árekstri. 17.2.2005 00:01
ESB-baráttan að hefjast Baráttan fyrir því að fá stjórnarskrá Evrópusambandsins samþykkta er að hefjast fyrir alvöru. Á sunnudaginn kjósa Spánverjar um stjórnarskrána, fyrstir allra Evrópuþjóða. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, heimsótti Spán í gær til þess að hvetja þarlenda stjórnmálamenn til dáða í báráttunni fyrir að fá stjórnarskrána samþykkta. 17.2.2005 00:01
20-50 þúsund fyrir yfirbókun Farþegar sem komast ekki í flug vegna þess að flugvél hefur verið yfirbókuð einhvers staðar í Evrópusambandinu eiga nú rétt á 20-50 þúsund krónum í skaðabætur. Upphæðin er um það bil helmingi hærri en hingað til hefur tíðkast að farþegar fái greidda. 17.2.2005 00:01
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent