Fleiri fréttir

Vilja rannsaka blóðbaðið

Rúmum fimmtán árum eftir að meira en þúsund manns létust í uppreisn gegn kommúnistastjórn Nicolae Ceasescu árið 1989 hafa alltof fáir verið dregnir til ábyrgðar segja forystumenn samtaka þeirra sem fylktu sér út á götur rúmenskra borga til að losna undan alræði kommúnista.

110 milljónir króna söfnuðust

Nú fyrir stundu höfðu safnast 110 milljónir króna í landssöfnuninni "Neyðarhjálp úr norðri". Beinni útsendingu Stöðvar 2, Sjónvarpsins og Skjás eins lauk fyrir stundu og sátu tugir manna við símann og tóku á móti framlögum. <strong>Síminn er 755 -5000</strong> og er enn hægt að hringja inn framlög. Einnig er hægt að hringja í síma <strong>901- 1000, 3000 og 5000</strong> og skuldfærist þá samsvarandi upphæð af símreikningi.

Flogið beint eftir 55 ára bann

Eftir meira en hálfrar aldar bann við beinu flugi milli Kína og Taívan geta ferðalangar loks flogið beint milli landanna í stað þess að þurfa að fljúga í gegnum þriðja land.

Vísindamenn í skýjunum

Yfirborð Títans, tungls Satúrnusar, er ljósappelsínugult og þakið þunnu lagi metans. Þetta blasti við vísindamönnum Evrópsku geimvísindastofnunarinnar þegar þeir sökktu sér niður í myndir og önnur gögn sem geimfarið Huygens sendi frá Títan, gögn sem það safnaði þegar það sveif til jarðar og eins þegar það var lent á tunglinu.

Fá að skrá sig á kjördag

Kjósendur í tveimur órólegustu héruðum Íraks fá að skrá sig á kjörskrá á kjördag, 30. janúar. Þessi ákvörðun kjörstjórnarinnar á að gefa kjósendum í Anbar og Ninevah aukin tækifæri á að taka þátt þrátt fyrir ótta um árásir á kjörstaði og gegn undirbúningi kosninganna.

Þúsundir flýðu heimili sín

Þúsundir íbúa í Anderson í Indiana þurftu að flýja heimili sín þegar eiturefni losnuðu út í andrúmsloftið í eldsvoða sem braust út í endurvinnsluverksmiðju.

Aldrei safnast meira

"Þetta er fram úr okkar björtustu vonum," segir Elín Þ. Þorsteinsdóttir verkefnisstjóri um viðbrögð almennings við söfnuninni Neyðarhjálp úr norðri. "Ég held að þetta séu þau bestu viðbrögð sem við höfum upplifað í söfnun."

Ríkið niðurgreiðir rafmagnið

Garðyrkjubændur og fiskvinnslufyrirtæki eru uggandi vegna hækkunar á raforkuverði til þeirra. Ný raforkulög heimila ekki að dreifingarkostnaði til þerra sé velt yfir á aðra notendur. Útlit er fyrir að ríkið taki á sig niðurgreiðsluna.

Meiri sala eftir erlenda umfjöllun

Mikil umfjöllun um Ísland erlendis gerir ferðaskrifstofum auðveldara fyrir að selja ferðir til landsins, segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Kynnisferða. Hann segir stöðugt fjölga erlendu ferðafólki sem kjósi að sækja landið heim að vetri til.

Stærsti skjálftinn 3,7

Snörp jarðskjálftahrina varð 5 til 10 kílómetra suðvestur af Reykjanesi í gærmorgun. Stærsti skjálftinn sem mældist var 3,7 á Richter-kvarða og sá næststærsti 3,3 stig. Þá varð einn skjálfti sem mældist 2,9 á Richter. Hrinunni fylgdi fjöldi eftirskjálfta, en til muna hefur dregið úr virkni að sögn Veðurstofunnar.

Guðni segir slag óheppilegan

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að átök um embættið á flokksþingi í næsta mánuði væru óheppileg. Hann segist þó ekki óttast mótframboð.

9 létust á Gasa í nótt

Að minnsta kosti níu létu lífið þegar palestínskir uppreisnarmenn réðust að herstöð Ísraelsmanna við landamæri Gaza í gærkvöldi. Uppreisnarmennirnir réðust inn í herstöðina rétt fyrir lokun hennar á bíl hlöðnum sprengiefni og skutu á allt sem fyrir varð. Sex hinna látnu eru ísraelskir hermenn, en einnig létu þrír uppreisnarmannanna lífið.

Fljúgandi hálka víða um land

Fljúgandi hálka er víða um land eftir að rigna tók á svellbunka og hafa nokkur umferðaróhöpp þegar orðið en hvergi alvarleg slys. Bíll valt í gærkvöldi á þjóðveginum austan við Selfoss og annar í Þrengslum án þess að nokkurn sakaði alvarlega.

Hermönnum fjölgað í Aceh-héraði

Hernaðaryfirvöld í Indónesíu ætla að fjölga hermönnum í hjálparstarfsemi í Aceh-héraði um mörg þúsund. Eftir fjölgunina verða meira en 50 þúsund hermenn frá Indónesíu við störf á Aceh. Hermennirnir munu eingöngu vinna að hjálparstarfi og yfirvöld þvertaka fyrir það að hermönnunum sé ætlað að berja niður andstöðu uppreisnarmanna.

ÍÚ og Frétt heita nú 365

Íslenska útvarpsfélagið og Frétt hafa fengið ný nöfn, 365 - ljósvakamiðlar og 365 - prentmiðlar. Nýju nöfnin eru liður í samþættingu rekstrar félaganna. Nýtt skipurit var kynnt á starfsmannafundi í morgun og er því ætlað að tryggja sjálfstæði og fjölbreytileika fjölmiðla en sækja styrk í samþættingu rekstrar, markaðs- og sölustarfs.

Veðurofsi í Bandaríkjunum

Um gervöll Bandaríkin setur mikill veðurhamur nú mark sitt á líf fólks. Áin Santa Clara í Utah óx í gær gríðarlega vegna mikilla rigninga og snjóbráðnunar og þreif hún með sér að minnsta kosti tuttugu hús sem liggja meðfram bökkum hennar.

Fok víða um land

Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í Grindavík í nótt til að hemja fok af þaki fjárhúss í svonefndu Bakkalá fjárhúsahverfi. Þeir náðu að hefta frekara fok, eftir því sem best er vitað, og mun enga kind hafa sakað.

Ekið á hross og hreindýr

Fjögur hross drápust en ökumaður og farþegi sluppu ómeiddir þegar stórum sendibíl var ekið á hrossahóp á þjóðveginum í Víðidal í Austur-Húnavatnssýslu í gær. Bíllinn skemmdist mikið.

Snjóflóðahætta á Patreksfirði

Sex íbúðarhús voru rýmd á Patreksfirði nú fyrir hádegið vegna snjóflóðahættu en flóð féll úr hlíðinni fyrir ofan bæinn í morgun og niður á götuna Mýrar. Engin hús eða mannvirki eru þar sem flóðið féll þótt það sé innan byggðarinnar.

Sjúkrarúmum fjölgað vegna flensu

Starfsfólk Landspítalans vinnur nú hörðum höndum að því að fylla hvern krók og kima í húsnæði spítalans af sjúkrarúmum til að geta hýst þá sjúklinga sem streyma inn vegna flensu og annarra pesta.

Tala látinna komin yfir 160 þúsund

Fjögur þúsund lík til viðbótar hafa fundist í Indónesíu og eru þá látnir komnir yfir 160 þúsund. Læknar segja að börn séu farin að deyja úr lungnabólgu.

Engin beiðni frá þýsku lögreglunni

Engin beiðni hefur enn borist frá þýsku fíkniefnalögreglunni um aðstoð starfsbræðra hennar á Íslandi við að upplýsa smyglmálið sem tengist togaranum Hauki. Fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík hefst því ekkert sérstakt að í málinu að svo komnu.

Álagningarhlutfall verði lækkað

F-listinn í borgarstjórn vill að álagningarhlutfall fasteignagjalda í Reykjavík verði lækkað þannig að raunhækkun fasteignagjalda verði ekki umfram hækkun launavísitölu. Fasteignamat á sérbýli hækkaði um áramót um 20% og um 14% í fjölbýli og ákvað borgarstjórnarmeirihlutinn í ljósi þess að hækka ekki sjálft álagningarhlutfall fasteignagjalda.

12% íbúa fyrir dómstóla

Búist er við að rúmlega tólf prósent íbúa Rúanda verði leidd fyrir héraðsdómstóla í landinu vegna þátttöku í þjóðarmorðinu árið 1994. Þetta er um ein milljón manna.

Andvirði æfingagjalda í söfnun

Stjórn Knattspyrnufélags Siglufjarðar hefur ákveðið að innheimta ekki æfingagjöld yngri flokka vegna vorannar 2005 og hvetur þess í stað foreldra barna hjá félaginu að hringja í söfnunarsíma og láta andvirði æfingagjalda renna til landssöfnunarinnar “Neyðarhjálp úr Norðri” vegna hamfaranna í Asíu.

Impregilo vildi ekki funda með ASÍ

Fundur var haldinn í félagsmálanefnd Alþingis í morgun til þess m.a. að fjalla um ágreining ASÍ og Impregilo. Gert var ráð fyrir að fulltrúar ASÍ og Impregilo yrðu samtímis á fundinum en þegar til kastanna kom neituðu fulltrúar Impregilo með öllu að sá háttur yrði hafður á og fengu það í gegn.

Nær til átta milljón heimila

Tveir íslenskir athafnamenn hafa tryggt sér dreifingarrétt á nýrri sjónvarpsstöð sem áformað er að muni ná til átta milljóna heimila í Skandinavíu fyrir árslok 2006. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er 750 milljónir króna á fimm árum. 

Samstarf við Norðurljós skilyrði

Hallgrímur Thorsteinsson segir fimm milljóna króna lán sem Arnþrúður Karlsdóttir fékk hjá Jóhannesi Jónssyni hafa verið bundið skilyrðum um að Útvarp Saga færi í samstarf við Norðurljós. Arnþrúður segir lánið hins vegar engum skilyrðum hafa verið bundið. 

520 þúsund safnað í Grundarfirði

Rúmlega 520 þúsund krónur söfnuðust þegar söfnunarfólk frá „Neyðarhjálp í norðri“ gekk í hús í Grundarfirði í gærkvöldi og á skemmtun sem haldin var í veitingahúsinu Krákunni. Þykir þetta góður árangur í ljósi þess að fjölmargir höfðu áður gefið í símasöfnunina en bættu við það framlag.

Borgarstjórinn í Prag í dulargervi

Borgarstjórinn í Prag klæddist dulargervi á dögunum til þess að minnka útgjöld íslenskra ferðamanna sem heimsækja höfuðborg Tékklands í sumar. 

65 milljónum veitt til smáeyja

Ríkisstjórn Íslands mun á næstu þremur árum verja um 65 milljónum króna, jafnvirði einni milljón dollara, til verkefna á sviði sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda í smáeyþróunarríkjum.

Sér um samræmingu hjálparstarfsins

Sameinuðu þjóðirnar ætla að skipa sérstakan sendifulltrúa til þess að samræma hjálparstarfið í Asíu eftir flóðbylgjuna miklu. Þjóðir sem taka þátt í hjálparstarfinu fóru fram á að þetta yrði gert á fundi í Djakarta í síðustu viku.

20 milljónir vegna ópíumfíkla

Samkomulag hefur náðst á milli SÁÁ og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um greiðslur vegna lyfjakostnaðar við meðferð ópíumfíkla sem SÁÁ sinnir. Samkvæmt því greiðir ráðuneytið SÁÁ 20 milljónir króna á tveimur árum vegna þrjátíu fíkla.

Í sjálfheldu á Gjábakkavegi

Björgunarsveitir voru kallaðar út með skömmu millibili upp úr hádegi til að aðstoða fólk sem sat í sjálfheldu í bílum sínum á Gjábakkavegi og komst ekkert vegna hálku. Útlendingar voru í öðrum jeppanum en jeppinn sem var sendur þeim til hjálpar lenti líka í vandræðum. Ekkert amaði að fólkinu.

Þreyttir jafnhættulegir og ölvaðir

Læknar sem eru útkeyrðir af vinnuálagi eru jafnhættulegir í umferðinni og þeir sem keyra undir áhrifum áfengis. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem náði til 2800 lækna í Bandaríkjunum. Þeir vinna iðulega meira en tuttugu klukkutíma án hvíldar sem gerir þá jafnhættulega og ölvaða ökumenn þegar heim er ekið.

Reyna að græða á hamförunum

Dollaramerki glampa nú í augum gráðugra hóteleigenda á kínversku eyjunni Hainan undan ströndum Víetnams og skammt austan við hamfarasvæðin við Indlandshaf. Þar er loftslag og aðstæður mjög áþekk og á ferðamannaströndunum sem nú eru í rúst og reyna hóteleigendur á Hainan nú að laða til sín ferðamenn sem ella hefðu farið til Taílands eða Indónesíu.

Hættustigi aflýst á Patreksfirði

Aflýst hefur verið hættustigi vegna snjóflóðahættu við Urðargötu á Patreksfirði og er íbúum sem þurftu að rýma heimili sín í morgun heimilt að fara heim á ný. Snjóeftirliti verður þó haldið áfram og fylgst grannt með snjóalögum.

Jón skipaður slökkviliðsstjóri

Stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins skipaði í morgun Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóra svæðisins. Hann var settur í starfið þegar Hrólfur Jónsson, fyrrverandi slökkviliðsstjóri, varð yfirmaður framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar. Jón Viðar, sem var svo skipaður í morgun, hefur verið varaslökkviliðsstjóri síðan í desember árið 1991.

Mikið álag á spítölum

Fresta hefur þurft skurðaðgerðum á Landspítala-háskólasjúkrahúsi vegna mikils álags þar um þessar mundir. Mikið hefur verið um veikindi undanfarna daga og inflúensan sem gengið hefur yfir landsmenn er nú í hámarki. Á fimmtudag þurfti að leggja 50 sjúklinga inn á bráðadeildir Landspítalans umfram skráð rúm.

Snjóflóðahætta á Patreksfirði

17 íbúum í sex íbúðarhúsum við Mýrar og Urðargötu á Patreksfirði var gert að rýma heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu.

Kanadískur ráðherra segir af sér

Ráðherra yfir málefnum útlendinga í Kanada hefur sagt af sér í kjölfar þess að upp komst um tvö atvik þar sem hann þykir hafa misnotað vald sitt. Í fyrra skiptið var um að ræða rúmenska nektardansmær sem ráðherrann veitti atvinnuleyfi eftir að stúlkan hafði starfað að kosningabaráttu ráðherrans.

Neituðu að mæta ASÍ

Fulltrúar Impregilo höfnuðu því að mæta fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar fyrir félagsmálanefnd Alþingis í gærmorgun og bað nefndin því fulltrúa ASÍ því um að koma frekar á þriðjudaginn.

365 heitir það heillin

Íslenska útvarpsfélagið og Frétt hafa verið sameinuð undir nýju nafni, 365, sem skiptist í 365 - ljósvakamiðla og 365 - prentmiðla.

Ræktarland í mikilli hættu

Fyrir utan manntjónið og eyðileggingu á mannvirkjum sem flóðin í Suðaustur-Asíu hafa valdið þá er gríðarlegt flæmi ræktarlands á hamfarasvæðunum nú í mikilli hættu á að eyðileggjast. Vatnselgurinn hefur nú þegar eitrað uppsprettur og áveitukerfi víða í löndunum sem urðu fyrir flóðbylgjunni á annan í jólum.

Tugþúsundir barna í reiðileysi

Hjálparstofnanir og yfirvöld í viðkomandi löndum hafa miklar áhyggjur af tugþúsundum barna sem misstu foreldra sína í flóðbylgjunni í Asíu.

Sjá næstu 50 fréttir