Innlent

65 milljónum veitt til smáeyja

Alþjóðlegur fundur á vegum Sameinuðu þjóðanna var haldinn á Máritíus 10.-14. janúar sl. þar sem megin umræðuefnið var framkvæmdaáætlun smáeyþróunarríkja um sjálfbæra þróun. Á dagskrá fundarins var endurskoðun sérstakrar framkvæmdaáætlunar um sjálfbæra þróun smáeyþróunarríkja sem samþykkt var á Barbados fyrir tíu árum í kjölfar Ríó-ráðstefnunar um umhverfi og þróun árið 1992. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Áherslur og aðgerðir framkvæmdaáætlunarinnar beinast sérstaklega að þeim vandamálum sem smáeyþróunarríkin eiga sameiginleg. Helsta sérstaða ríkjanna er að hagkerfi þeirra eru lítil, atvinnuvegir einhæfir, flutningar kostnaðarsamir vegna landfræðilegra aðstæðna og hversu berskjölduð þau eru fyrir hverskonar náttúruhamförum. Fátækt er einnig mikil og margt sem hamlar frekari þróun, s.s. skortur á sjálfbærum lausnum í orkumálum. Einnig eru ónýtt tækifæri til vaxtar, t.d. í sjávarútvegi. Fundinn sóttu fyrir hönd Íslands Hjálmar W. Hannesson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, og Jón Erlingur Jónasson, sendiráðunautur frá utanríkisráðuneytinu. Af Íslands hálfu var á fundinum einkum lögð áhersla á eflingu samstarfs íslenskra stjórnvalda við þennan hóp ríkja og sameiginlega hagsmuni varðandi málefni hafsins og sjálfbærrar þróunar. Í ávarpi fastafulltrúa á fundinum kom m.a. fram að íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja aukna áherslu á þróunarsamvinnu við smáeyþróunarríkin með sérstökum sjóði til verkefna á sviði sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. Sem liður í auknum framlögum ríkisstjórnarinnar til þróunarmála verður á næstu þremur árum varið um 65 milljónum króna, jafnvirði einni milljón dollara, til verkefna í þessum ríkjum.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×