Innlent

Stærsti skjálftinn 3,7

Snörp jarðskjálftahrina varð 5 til 10 kílómetra suðvestur af Reykjanesi í gærmorgun. Stærsti skjálftinn sem mældist var 3,7 á Richter-kvarða og sá næststærsti 3,3 stig. Þá varð einn skjálfti sem mældist 2,9 á Richter. Hrinunni fylgdi fjöldi eftirskjálfta, en til muna hefur dregið úr virkni að sögn Veðurstofunnar. Þórunn Skaftadóttir, jarðfræðingur hjá Veðurstofunni, segir stærstu skjálftana hafa riðið yfir um klukkan tíu um morguninn, en síðan hafi dregið hratt úr virkni. Þórunn segir enn reyting af litlum skjálftum fyrir norðan land, austsuðaustur af Grímsey, þar sem snarpir skjálftar urðu 5. janúar. "En sú hrina er svona að deyja eðlilega út," sagði hún.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×