Fleiri fréttir

Dæmdir fyrir njósnir í Kína

Fjórir Taívanbúar hafa verið handteknir í Kína og dæmdir í allt að tíu ára fangelsi fyrir njósnir. Fólkið er á aldrinum 26-63 ára. Að auki var einn Kínverji dæmdur fyrir að aðstoða við njósnirnar.

Guðlaugur Bergmann látinn

Guðlaugur Bergmann framkvæmdastjóri lést á heimili sínu aðfararnótt 27. desember, sextíu og sex ára að aldri. Guðlaugur stundaði verslunarstörf um áratugaskeið og var gjarnan kenndur við verslun sína Karnabæ. Undanfarin ár hefur hann rekið ferðaþjónustu að Hellnum á Snæfellsnesi og bókaútgáfu.

Ráðherra athugar beiðni Fishers

Chieko Nohno, dómsmálaráðherra Japans, hefur fallist á að taka til greina beiðni Bobbys Fischers um að verða vísað úr landi og sendur hingað til lands. Að öðrum kosti verður Fischer vísað til Bandaríkjanna þar sem hans bíður fangelsisvist.

Óljóst um ferðir sextán Íslendinga

Tveir Íslendingar höfðu samband við neyðarvakt utanríkisráðuneytisins í nótt og létu vita af ferðum sínum í Taílandi. Nú er aðeins óljóst um ferðir sextán Íslendinga sem að líkindum eru á hamfarasvæðunum.

Óttast að 55.000 hafi látist

Staðfest hefur verið að 36.900 fórust í hamförunum í Suðaustur-Asíu á sunnudag. Tuga þúsunda er saknað og óttast er að ekki færri en 55.000 hafi farist.

200 Svíar taldir af

Allt að 200 Svíar eru taldir vera meðal þeirra sem fórust á Taílandi. Fjöldi Norðurlandabúa var á ferðamannasvæðum þar sem nánast enginn hefur fundist á lífi. Sjónarvottar segja þúsundir ferðamanna hafa farist. 

Lyfjaframleiðsla á Grenivík

Lyfjaframleiðsla er að hefjast á Grenivík við Eyjafjörð og verða lyfin framleidd eftir uppskriftum íslenskra apóteka. Fimm eða sex störf skapast við framleiðsluna.

Spáð vonskuveðri á gamlárskvöld

Horfur eru á vonskuveðri víða um land á gamlárskvöld og jafnvel útlit fyrir að fresta verði áramótabrennum á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem nokkrir dagar eru enn til áramóta geta spár breyst en spárnar á þessari stundu eru sammála um það hvernig veðrið verður á Íslandi um áramótin.

Ráðuneytið fór ekki að lögum

Dómsmálaráðuneytið fór ekki að lögum þegar það synjaði fanga á Litla-Hrauni um dagsleyfi. Fanginn óskaði í júní síðstliðnum eftir dagsleyfi síðar í mánuðinum. Fangelsisyfirvöld synjuðu beiðni hans, meðal annars af þeirri ástæðu að fanginn ætti óafgreitt mál í kerfinu.

Óttast leka úr kjarnorkuveri

Ótti við leka úr kjarnorkuveri í nágrenni Kelambakkam á Suður-Indlandi hamlar þar hjálparstarfi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hjálparstarfi kirkjunnar og segir þar að systurfélag þess, Social Action Movement, séu einu hjálparsamtökin sem hafi komið fórnarlömbum flóðbylgnanna þar til aðstoðar.

Óvissa um 15 Íslendinga

Einn Íslendingur til viðbótar sem var á hamfarasvæðunum í Suðaustur-Asíu hefur látið vita af sér frá því um hádegisbil. Nú er því aðeins óljóst um ferðir fimmtán Íslendinga sem að líkindum eru á svæðunum þar sem flóðbylgjurnar gengu á land á sunnudag. Þeim hefur því fækkað verulega frá þeim 55 sem ekki var vitað af fyrst eftir hamfarirnar.

Varað við ferðalögum til svæðanna

Utanríkisráðuneytið varar við ferðalögum til hamfarasvæðanna í Suðaustur-Asíu og sérstaklega ákveðinna svæða á Taílandi, Indlandi, Srí Lanka, Maldíveyjum og í Indónesíu.

Impregilo að lenda í tímaþröng

Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo, sem er að reisa Kárahnjúkavirkjun, er að lenda í alvarlegri tímaþröng en ASÍ leggst gegn því að það flytji inn 150 Kínverja til að reyna að vinna upp seinkanir. 

Flugeldasýning við Perluna í kvöld

Hin árlega flugeldasýning flugeldamarkaða björgunarsveitanna í Reykjavík og Bylgjunnar fer fram við Perluna í kvöld. Flugeldunum verður skotið upp við tónverk Todmobile og Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem jafnframt verða flutt á Bylgjunni.

Hátt í 50 þúsund hafa látist

Hátt í fimmtíu þúsund manns hafa farist í náttúruhamförunum í Asíu og er óttast við að sú tala eigi enn eftir að hækka. Allar tölur eru enn á reiki en stjórnvöld á hamfararsvæðunum telja að allt að 57 þúsund gætu hafa týnt lífi. Enn er ekki vitað um afdrif 15 Íslendinga sem vitað er að voru á þessum slóðum.

Vistmenn greiða fyrir fataþvott

Formaður Félags eldri borgara á Ísafirði segir það skelfilega ákvörðun hjá stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Ísafjarðarbæjar að láta vistmenn á öldrunardeild greiða fyrir fataþvott. Frá og með áramótum þurfa vistmenn að greiða 5.500 á mánuði fyrir þvottinn en framkvæmdastjóri stofnunarinnar segir margt framar í forgangsröðinni hjá stofnuninni en að standa straum af þessu.

370 milljónir frá páfagarði

Páfagarður hefur safnað sex milljónum dollara, um 370 milljónum íslenskra króna, sem ætlað er að veita í neyðaraðstoð fyrir fórnarlömb flóðanna í Suðaustur-Asíu. Jóhannes Páll páfi kallaði á aðstoð alþjóðasamfélagsins strax á sunnudag þegar tala látinna var aðeins um 3000 en hún er nú komin yfir 50 þúsund og fer hækkandi.

Flugleiðir senda vél til Taílands

Tala látinna vegna hamfaranna í Asíu er komin upp í 55 þúsund og er enn óttast að hún kunni að hækka. Ekkert hefur enn heyrst af þrettán Íslendingum sem vitað er að voru á þessum slóðum. Klukkan 18 í kvöld fer flugvél frá Flugleiðum fyrir sænsk stjórnvöld til Taílands að sækja sænska ferðamenn þar.

Sniglarnir styrkja veikan dreng

Sniglarnir, Bifhjólasamtök lýðveldisins, ætla að afhenda Torfa Lárusi Karlssyni, sjö ára dreng sem liggur á Barnaspítala Hringsins, peningagjöf nú klukkan fimm. Torfi Lárus er með sogæða- og bláæðasjúkdóm og er á leið til Bandaríkjanna til læknismeðferðar.

Fundað um Kínverjana

Samstarfsnefnd um atvinnuréttindi útlendinga fundar í næstu viku um þá ósk Impregilo að ráða 150 Kínverja til starfa.

Sjúkdómar geta lagt eins marga

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin óttast að sjúkdómar í kjölfar hamfaranna í Asíu geti lagt eins marga að velli og hamfarirnar sjálfar. David Nabarro, sem er háttsettur innan stofnunarinnar, segir það skipta gríðarmiklu máli að koma lyfjum, læknishjálp og vatni til hamfarasvæðanna sem fyrst, áður en sjúkdómar ná að gjósa upp.

Hækkanir að þremur prósentum

Launamenn fá eins og hálfs til þriggja prósenta launahækkun um næstu áramót eftir því hvað kjarasamningarnir ná langt inn á næsta ár.

Fjögurra mánaða töf hjá Impregilo

Fjögurra mánaða töf hefur orðið á vinnu Impregilo við að steypa távegg undir aðalstífluna á Kárahnjúkum. Sigurður Arnalds upplýsingafulltrúi segir að fyrirtækið eigi aftur að vera komið á rétt ról í júní. </font /></b />

Flugeldasalan hafin

Flugeldasalan hófst á þriðjudaginn og eru sölustaðir flugelda tæplega fimmtíu talsins í ár. Sölustöðum hefur fjölgað lítillega síðan í fyrra þegar þeir voru rúmlega fjörutíu talsins. Flestir sölustaðanna eru á vegum björgunarsveita og íþróttafélaga þrátt fyrir að nokkur einkafyrirtæki blandi sér í samkeppnina.

Töskunni skilað

Tösku sem stolið var í verslun Bónuss við Helluhraun skömmu fyrir jól og innihélt ómetanleg læknisgögn vegna langveiks barns var skilað til lögreglu í fyrrakvöld.

Mikið af falsaðri merkjavöru

Aukið eftirlit hefur skilað sér í því að hundruð kílóa af falsaðri merkjavöru voru haldlögð á Keflavíkurflugvelli á þessu ári. Brot á lögum um vörumerki geta varðað fangelsi allt að þrjá mánuði. Fölsun merkjavarnings er mjög víðtækur og skipulagður iðnaður í heiminum.

Best að útiloka dýrin frá hávaða

"Besta leiðin til þess að koma í veg fyrir ofsahræðslu gæludýra á áramótunum er að útiloka þau frá áreiti af völdum flugelda," segir Helga Finnsdóttir dýralæknir.

Langflestir frá Norðurlöndum

Langflestir þeirra ferðamanna sem saknað er af hamfarasvæðunum í Asíu komu frá Norðurlöndum. Um fimmtán hundruð Svía er saknað og ekki er vitað <font size="2"></font>um afdrif sex hundruð Norðmanna.

Tala látinna komin í 60 þúsund

Sextíu þúsund manns hafa fundist látnir eftir flóðbylgjuna í Suðaustur-Asíu. Óttast er að jafnmargir eða fleiri kunni að látast af völdum smitsjúkdóma vegna hörmunganna.

Umfangsmesta neyðaraðstoð sögunnar

Þjóðir heims hafa lagst á eitt til að lina þjáningar þeirra sem lentu í hamförunum við Bengalflóa. Mikið verk er framundan enda er neyðin sár

43 féllu í Írak

Alls féllu 43 fyrir hendi íraskra andspyrnumanna í gær. Af hinum föllnu voru flestir lögreglumenn. Árásirnar voru gerðar aðeins degi eftir að stærsti stjórnmálaflokkur súnní-múslima ákvað að bjóða ekki fram í kosningunum í janúar vegna stigvaxandi ofbeldis.

Tjónið á lífríkinu óverulegt

Náttúrufar og dýralíf er óvíða fjölbreyttara en á þeim slóðum sem jarðskjálftinn og flóðbylgjurnar dundu yfir á sunnudaginn. Að mati sjávarlíffræðings sem vel þekkir til á svæðinu eru litlar líkur á að verulegt tjón hafi orðið á lífríkinu í Indlandshafi vegna hamfaranna.

Óvissu eytt og fólki létt

"Fólki er greinilega létt og fegið að óvissunni hefur verið eytt og vill bara snúa sér aftur að daglegu lífi," segir Urður Gunnarsdóttir talsmaður kosningaeftirlits ÖSE í Úkraínu um nýafstaðnar kosningar þar.

Vonarskíma í myrkrinu

Það þykir kraftaverki líkast að 20 daga gamalt stúlkubarn skuli hafa komist lífs af í Malasíu eftir að skjálftinn reið yfir, en það fannst á fljótandi dýnu og var komið heilu og höldnu til foreldra sinna.

Brýnt að bæta samskipti við Rússa

Viktor Júsjenko, sigurvegari forsetakosninganna í Úkraínu, segir að sitt fyrsta verk sem forseti landsins verði að fara til Moskvu og reyna að bæta samskipti Úkraínu og Rússlands. Júsjenko segir að samskipti ríkjanna hafi verið "afmynduð" af úkraínskum viðskiptaklíkum.

Flóðið rótaði upp jarðsprengjum

Flóðbylgjan sem skall á Sri Lanka hefur rótað upp jarðsprengjum og dreift um víðfeðmt svæði og ógnar öryggi þeirra sem lifðu hörmungarnar af og reyna að komast aftur til síns heima sem og hjálparstarfsmönnum á svæðinu.

Búsifjar mestar á Sri Lanka

Efnahagslegar búsifjar af völdum flóðbylgjunnar á Indlandshafi verða mestar á Sri Lanka og á Maldíveyjum að mati hagfræðinga í Asíu. Þeir segja að flóðbylgjan muni ekki hafa varanlegar efnahagslegar afleiðingar í Indónesíu, Indlandi, Taílandi og Malasíu, því skemmdirnar séu ekki miklar í ljósi stærðar landanna.

24 Norðurlandabúar látnir

Að minnsta kosti 24 Norðurlandabúar hafa látist í flóðbylgjunum í Suðaustur-Asíu og óttast er um afdrif fjölda annarra sem er saknað. Af hinum látnu eru tíu Norðmenn, níu Svíar, þrír Danir og tveir Finnar.

Bylgjan hreif lest af teinum sínum

Rúmlega þúsund farþegar í lest meðfram strönd Indónesíu fórust þegar flóðbylgjan skall á land og hreif lestarvagnana með sér af teinunum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í Indónesíu var lestin stöðvuð á sunnudagsmorgun skömmu áður en bylgjan gekk á land

Hættuviðvörun slegið á frest

Veðurstofa Taílands er borin þungum sökum af embættismönnum. Taílensk yfirvöld munu skipa óháða nefnd sem á að rannsaka hvort veðurstofa landsins hafi frestað viðvörun vegna flóða. </font /></b />

Flóð stutt frá ABC heimili

Um 2.500 manns létust af völdum flóðbylgjunnar um 1.600 metrum frá Heimili litlu ljósanna sem ABC hjálparstarf rekur. Heimilið er 50 kílómetrum utan Channai, sem áður hét Madras, á Indlandi.

54 Kínverjar á Kárahnjúka

Stjórnvöld hafa ákveðið að veita Impregilo atvinnuleyfi fyrir 54 kínverska verkamenn til starfa við Kárahnjúka. Alþýðusamband Íslands telur lög brotin og segir að tekin hafi verið ákvörðun sem eigi sér engin fordæmi á íslenskum vinnumarkaði. ASÍ hefur óskað eftir fundi með félagsmálaráðherra um málið.

Íslendinga leitað á sjúkrahúsum

Íslendinga á ferð um Taíland hefur verið leitað á sjúkrahúsum í Phuket í Taílandi. Utanríkisráðuneytið hefur ekki haft upp á tólf manns sem ættingjar sakna. Nöfnum og kennitölum þeirra hefur verið komið til taílenskra stjórnvalda og danskra, segir Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri almennrar skrifstofu utanríkisráðuneytisins.

Vara við ferðum til Asíu

Utanríkisráðuneytið varar við ferðalögum til suðvesturhluta Taílands, Norður-Súmötru í Indónesíu, suðausturstrandar Indlands, Srí Lanka og Maldíveyja.

Bíða þess að komast til Bangkok

Hópur átta Íslendinga á Patong-strönd á Phuket eyju í Taílandi heldur enn til á hóteli sínu. Þar sat fólkið að snæðingi morgunverðs þegar flóðbylgjan skall á ströndinni.

Sjá næstu 50 fréttir