Innlent

Vistmenn greiða fyrir fataþvott

Formaður Félags eldri borgara á Ísafirði segir það skelfilega ákvörðun hjá stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Ísafjarðarbæjar að láta vistmenn á öldrunardeild greiða fyrir fataþvott. Frá og með áramótum þurfa vistmenn að greiða 5.500 á mánuði fyrir þvottinn en framkvæmdastjóri stofnunarinnar segir margt framar í forgangsröðinni hjá stofnuninni en að standa straum af þessu. Vilji vistmenn ekki sætta sig við þetta er þeim og aðstandendum þeirra gefinn kostur á að sjá sjálfir um þvottinn. Jón Fanndal Þórðarson, formaður Félags eldri borgara á Ísafirði, gagnrýnir þessa ákvörðun í viðtali við Bæjarins besta í dag og segir öldrunarmál á Ísafirði í mikilli afturför. Öldrunarlækni sem var við störf vestra hafi nýlega verið sagt upp störfum og ýmsir sérfræðingar hafi horfið frá störfum. Jón Fanndal skorar á þá sem að baki þessum málum standa að snúa af þessari villubraut.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×