Innlent

Impregilo að lenda í tímaþröng

Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo, sem er að reisa Kárahnjúkavirkjun, er að lenda í alvarlegri tímaþröng en ASÍ leggst gegn því að það flytji inn 150 Kínverja til að reyna að vinna upp seinkanir.  Það skýrist ekki fyrr en eftir áramót, að samstarfsnefnd um starfsmannahald við Kárahnjúka kemur saman, hvort Impregilo fær að flytja hingað inn 150 kínverksa verkamenn. Málið er brýnt fyrir verktakann þar sem þónokkrir portúgalskir verkamenn sem fóru heim fyrir jól ætla ekki að koma aftur. Alþýðusamband Íslands hefur hins vegar gefið neikvæða umsögn um fyrirhugaðan innflutning á Kínverjunum þar sem verktakafyrirtækið hafi ekki staðið við umsamdar leikreglur varðandi mannaráðningar að verkinu. Kínverjarnir séu til dæmis ekki með fullnægjandi vinnuvélaréttindi, verktakinn hafi ekki auglýst umrædd störf hérlendis eða skráð þau hjá vinnumiðlun, og í þriðja lagi hafi fyrirtækið ekki leitað eftir starfsmönnum á mörkuðum nýrra aðildarríkja Evrópusambandsins, sem eiga að hafa forgang samkvæmt EES-samningnum. Mikið er í húfi fyrir verktakann þar sem sumir verkþættir eru farnir að dragast verulega aftur úr verkáætlun en Landsvirkjun leggur mikla áherslu á að virkjuninni verði skilað fullbúinni á tilsettum tíma, enda miðist raforkusölusamningar við Reyðarál við þau tímamót. Ekki náðist í talsmann Impregilo fyrir fréttir .



Fleiri fréttir

Sjá meira


×