Margaret Hamilton er látin Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. október 2026 06:48 Margaret Hamilton fékk frelsisorðu forsetans árið 2016. GETTY Margaret Hamilton, tölvunarfræðingurinn sem stóð að baki rannsóknum sem áttu þátt í að koma fyrsta manninum til tunglsins, er látin. Hún varð níutíu ára gömul.
Hamilton stýrði teymi verkfræðinga sem þróaði hugbúnaðinn fyrir Apollo-leiðangra Bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA og með þeirri vinnu varð hugtakið hugbúnaðarverkfræði til. Hamilton fæddist í Indlandi árið 1936 og hóf nám í stærðfræði við Michigan-háskóla árið 1955 en lauk BA-gráðu í stærðfræði við Erlham College árið 1958. Hún flutti síðan ásamt eiginmanni sínum til Boston og starfaði þar hjá MIT-háskólanum til að styðja eiginmanninn á meðan hann lagði stund á laganám. Hamilton stendur hér við hlið kóðans sem var útbúinn fyrir geimferðalagið.MIT Hún starfaði hjá MIT frá 1959 fram á áttunda áratuginn og stýrði hugbúnaðarverkfræðideildinni. Það var í þessari deild sem hún leiddi hóp verkfræðinga sem skrifaði og prófaði allan hugbúnað fyrir geimför þeirra Neil Armstrong og Buzz Aldrin. Ljósmynd þar sem Hamilton stendur við hlið stafla af útprentuðum kóða hefur í gegnum tíðina vakið mikla athygli. „Ég heillaðist bæði af hugmyndinni sjálfri og því að þetta hafði aldrei verið gert áður. Ég var fyrsti forritarinn sem gekk til liðs við verkefnið og fyrsta konan sem þeir réðu,“ sagði hún í viðtali við Guardian árið 2019. Barack Obama, þáverandi Bandaríkjaforseti, heiðraði Hamilton árið 2016 með Frelsisorðu forsetans fyrir framlag hennar til vísinda og geimferða. Eftir vinnuna fyrir geimferðalagið nýtti Hamilton sérþekkingu sína til að stofna hugbúnaðarfyrirtæki, til dæmis Hamilton Technologies sem er enn starfandi í Massachusetts. Hamilton lést þann 30. september samkvæmt tilkynningu frá Tækniháskólanum í Massachusetts, þar sem hún starfaði lengi vel. Hún skilur eftir sig eina dóttur, tvö barnabörn og fjögur barnabarnabörn.
Andlát Bandaríkin Geimurinn Vísindi Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira