Langflestir frá Norðurlöndum 28. desember 2004 00:01
Langflestir þeirra ferðamanna sem saknað er af hamfarasvæðunum í Asíu komu frá Norðurlöndum. Um fimmtán hundruð Svía er saknað og ekki er vitað um afdrif sex hundruð Norðmanna. Að minnsta kosti sjö hundruð erlendir ferðamenn eru meðal þeirra sextíu þúsund manna sem staðfest er að látist hafi í hamförunum í Asíu. Ekki er vitað frá hvaða löndum hinir látnu eru en svo virðist sem stór hluti þeirra kunni að vera frá Svíþjóð. Um fimmtán hundruð Svía er saknað og staðfest er að minnst tíu Svíar hafi látist af völdum hamfaranna í Asíu. Utanríkisráðherra landsins sagði í dag að óttast væri að nokkur hundruð Svíar væru látnir og líklega hefðu ekki jafnmargir Svíar fallið í valinn í einu síðan farþegaskipið Estonia sökk árið 1994 með þeim afleiðingum að fimm hundruð Svíar létust. Alls voru á milli tuttugu og þrjátíu þúsund Svíar á hamfarasvæðunum á annan dag jóla, flestir þeirra í fríi í Taílandi. Stjórnvöld í Svíþjóð ætla að senda þrjár stórar farþegaþotur til Taílands til þess að ná í alla sænska ríkisborgara sem staddir eru á hamfarasvæðunum. Hið sama hyggjast stjórnvöld í Noregi gera en um sex hundruð Norðmanna er saknað af hamfarasvæðunum. Þá er tvö hundruð Finna saknað, sem og sextán Dana. Ekki er vitað um afdrif fjögur hundruð Tékka á svæðinu og í kringum hundrað manna frá Þýskalandi, Ítalíu og Bretlandi er saknað. Meðal þýskra ferðamanna á svæðinu var Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari landsins, en vitað er að hann komst heilu og höldnu úr hamförunum. Þá er nokkur hundruð manna sem dvöldu á frönsku hóteli í Taílandi saknað og vitað er að um 140 þeirra voru frá Frakklandi. Evrópusambandið hefur þegar ákveðið að verja vel á þriðja milljarði króna til uppbyggingar á hamfarasvæðunum í Suður- og Austur-Asíu.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira