Fleiri fréttir

Rauði krossinn með fund í kvöld

Rauði kross Íslands verður með fund klukkan 20.30 í kvöld fyrir þá sem hafa áhyggjur af erlendum ríkisborgurum á flóðasvæðunum í Asíu Á fundinum verður sagt frá náttúruhamförunum í Asíu og fólki sem ekki hefur tekist að hafa upp á ástvinum sínum verður gefinn kostur á að skrá nöfn þeirra hjá leitarþjónustu Rauða krossins.

Konur megi verða keisarar

Næsti keisari japanska ríkisins verður hugsanlega kona en endurskoðun á reglum sem banna kvenkyns keisara stendur nú yfir.

159 palestínskum föngum sleppt

Ísraelsmenn slepptu 159 palestínskum föngum í gær til að lýsa vinsemd í garð nýrra stjórnvalda í Palestínu.

Sameining könnuð

Könnun hefur verið gerð á hagkvæmni sameiningar Vélstjórafélags Íslands og Félags járniðnaðarmanna. Talið er að fjárhagslegur ávinningur af nýju fyrirkomulagi gæti numið meira en þrjátíu milljónum króna.

Fá félög greiða bróðurpart gjalda

Tiltölulega fá félög greiða bróðurpart opinberra gjalda félaga til Ríkisskattstjóra fyrir árið 2004. Af rúmlega þrjátíu þúsund félögum á skrá voru gjöld lögð á rétt rúmlega tuttugu þúsund þeirra.

17 látnir í Frakklandi

Sautján létust og fimmtán slösuðust í gassprengingunni sem varð í fimm hæða húsi í borginni Mulhouse í Frakklandi í morgun. Þrír létust í sprengingunni sjálfri en fjórtán til viðbótar létust nokkrum klukkustundum síðar þegar húsið hrundi skyndilega til grunna. Þriggja er enn saknað.

Heilu þorpin með íbúum horfin

"Heilu þorpin á austurströnd Sri Lanka eru horfin. Fólkið líka," segir Helen Ólafsdóttir sem stödd er í höfuðborginni Colombo. Hún hóf störf á Sri Lanka hjá norrænu friðargæslunni á vegum utanríkisráðuneytisins 12. desember.

Skiptinemi óhultur í Indónesíu

Einn Íslendingur, Guðmundur Jakobsson, er á vegum skiptinemasamtakanna AFS í Indónesíu. Er hann eini nemi samtakanna í sunnanverðri Asíu.

Áhyggjur af ættingjum í Asíu

Sjö taílenskar fjölskyldur hafa leitað til Rauða krossins eftir aðstoð við að finna ættingja á hamfarasvæðum flóðbylgjunnar á ströndum Taílands.

31 Íslendings enn saknað

Engar fregnir hafa enn borist af þrjátíu og einum Íslendingi sem vitað var að voru á þeim svæðum sem hamfarirnar gengu yfir í Suðaustur-Asíu í gær. Rauði kross Íslands verður með fund klukkan 20.30 í kvöld fyrir þá sem hafa áhyggjur af erlendum ríkisborgurum á flóðasvæðunum.

5 milljónir til neyðaraðstoðar

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að veita þegar í stað fimm milljónum króna til mannúðar og neyðaraðstoðar á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti í náttúruhamförunum í Suðaustur-Asíu. Fjárveitingunni er veitt til Rauða kross Íslands sem mun sjá um að stuðningurinn komist til réttra aðila.

Á þriðja tug þúsunda látnir

Á þriðja tug þúsunda fórst í náttúruhamförunum í Suðaustur-Asíu í gær og talið er víst að sú tala muni hækka. Björgunarmenn leita þeirra sem komust af og sækja lík upp í tré og á haf út. Aðstæðurnar eru ömurlegar og hætta á frekari hörmungum. 

Valda ekki flóðbylgjum hér

Jarðhræringar valda ekki flóðbylgjum hér við land nema við mjög sérstakar aðstæður að sögn jarðeðlisfræðings. Mestu öldur myndast í mjög djúpum lægðum en hæst hefur hafalda mælst 25,2 metrar við Íslandsstrendur.

Umboðsmaður segir lög brotin

Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að dómsmálaráðuneytið hafi brotið lög með úrskurði sem staðfesti synjun fangelsisyfirvalda á umsókn fanga um dagsleyfi.

Verstu náttúruhamfarir sögunnar

Náttúruhamfarirnar í Suðaustur-Asíu eru þær verstu í sögunni að mati yfirmanns neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna. Óttast er að farsóttir blossi upp á svæðinu þar sem rotnandi lík og hræ liggja í flóðavatninu.

Grunaður um brot í starfi

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra hefur verið leystur frá störfum vegna rökstudds gruns um brot í starfi. Maðurinn skráði bíl embættisins á sambýliskonu sína, sem er lögreglufulltrúi á höfuðborgarsvæðinu, árið 2001. Þá notaði hann, á þessu ári, bíl embættisins í eigin þágu.

Ólætin í Grindavík rædd á morgun

Bæjarráð Grindavíkur hittist á morgun til að ræða ólæti sem brutust út á jóladagskvöld fimmtu jólin í röð. Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri segir að í samráði við bæjarbúa verði leitað allra leiða til koma í veg fyrir að þetta ástand verði viðvarandi. Slík skrílslæti hafa þekkst á gamlárskvöld og þrettándanum á fleiri stöðum á landinu.

Fischer vonsvikinn með hægaganginn

Sæmundur Pálsson segist reyna að stappa stálinu í vin sinn, Bobby Fischer, sem sé vonsvikinn með hve hægt mál hans gangi í Japan. Útséð virðist um að Fischer komist til Íslands fyrir áramót. 

Harmleikur á hamfarasvæðunum

Gærdagurinn leiddi enn betur í ljós hvílíkur harmleikur hefur átt sér stað í löndunum við Bengalflóa. Um 25.000 manns liggja í valnum, milljónir eru heimilislausar og veruleg hætta er á alvarlegum pestum. Neyðaraðstoð hefur borist víða að.

Ríkisstjórnin styrkir fórnarlömbin

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja fimm milljónir króna til mannúðar- og neyðaraðstoðar á hamfarasvæðunum í Asíu.

Norðurlandabúar á meðal látinna

Í það minnsta 23 Norðurlandabúar eru á meðal þeirra sem týndu lífi í flóðunum miklu á öðrum degi jóla og enn þá fleiri er saknað.

Mannslífum mátti bjarga

Embættismenn í ríkjunum við Bengalflóa viðurkenndu í gær að ef þau hefðu gefið út viðvaranir um yfirvofandi flóð í kjölfar jarðskjálftans á annan í jólum hefði mátt bjarga mörg þúsund mannslífum.

Völvan sannspá um kosningarnar

Engin heimspekimiðstöð var reist hér á landi á árinu og ekki var heldur sett á fót lyfjaverksmiðja á Norðurlandi, hvað þá nýtt íslenskt dagblað. Öllu þessu og miklu fleiru spáði völva <em>Vikunnar</em> fyrir ári. Hún reyndist hins vegar sannspá um forsetakosningarnar og nýju húsnæðislánin.

Neyðaraðstoð alls staðar að

Aðstæður á flóðasvæðunum við Indlandshaf eru víða slæmar. Neyðaraðstoð berst nú alls staðar að úr heiminum, bæði frá ríkisstjórnum og hjálparsamtökum.

Júsjenkó öruggur sigurvegari

Viktor Júsjenkó sigraði nafna sinn Janukovitsj í forsetakosningunum í Úkraínu sem fram fóru í fyrradag. Júsjenkó boðar nýja tíma í frjálsu og fullvalda föðurlandi.

Erfitt verk framundan

Þrátt fyrir að Viktor Júsjenkó hafi staðið í ströngu undanfarnar vikur þá má segja að baráttan hefjist fyrir alvöru nú þegar hann sest í stól forseta.

Níu liggja í valnum

Níu fórust og 39 særðust í sprengjuárás í Bagdad í gær. Leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks sjía var skotmark árásarmannsins en hann sakaði hins vegar ekki.

Útsölur þegar hafnar

Útsölur eru þegar hafnar í sumum verslunum á höfuðborgarsvæðinu og virðast margir komnir utan af landi til að gera hagstæð kaup. Fjölmargir notuðu tækifærið í dag til að skipta bókum, geisladiskum og öðrum gjöfum.

Enn óvissa um 28 Íslendinga

Tuttugu og átta Íslendingar hafa ekki látið vita af sér eftir jarðskjálftann í Suðaustur-Asíu. Langflestir þeirra sem er saknað eru á ferð í Taílandi. Fimmtán til tuttugu eru taldir vera á hættusvæði. Staðfest er að tuttugu og þrír ferðamenn frá Norðurlöndunum hafi látið lífið.

Neitar að viðurkenna ósigur

Svik og prettir voru víðsfjarri þegar önnur umferð forsetakosninganna í Úkraínu var endurtekin í gær. Viktor Júsjenko er öruggur sigurvegari í kosningunum en mótherji hans, Janúkovítsj, neitar að viðurkenna ósigur.

Fjöldi ungbarna slasast

Tíu ungbörn hér á landi hafa slasast að undanförnu, þar af tvö alvarlega, með því að spyrna úr barnastólum í borðfjalir þannig að stólarnir hafa oltið um koll. Barnaslysavarnafulltrúi Lýðheilsustöðvar varar við slysum af þessu tagi.

Grindvíkingar æfir

Grindvíkingar eru æfir vegna skrílslátanna í bænum í fyrrinótt. Bæjarstjórnin lítur óspektirnar alvarlegum augum og ætlar að ræða við forsprakkana. Þeir kveiktu í áramótabrennu bæjarins en bæjaryfirvöld stefna að því að hlaða nýjan bálköst á næstu dögum.

Samúðarkveðjur héðan til Asíu

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sendi í gær samúðarkveðjur til stjórnvalda þeirra ríkja sem verst urðu úti vegna náttúruhamfaranna sem áttu sér stað í Asíu á annan í jólum.

Áralangt starf framundan í Darfur

Alþjóða Rauði krossinn hefur á undanförnum mánuðum séð hundruðum þúsunda manna í Darfur-héraði í Súdan fyrir matvælum, vatni og heilsugæslu. Uppbygging þar hefur verið öflug og hröð en ljóst er að margra ára hjálparstarf er fram undan á þessu stríðshrjáða svæði.

Ráðherra lést eftir byssuskot

Heorhiy Kirpa, samgönguráðherra Úkraínu, fannst í gær látinn eftir að hafa orðið fyrir byssuskoti, að sögn talsmanns járnbrauta landsins. Kirpa var stuðningsmaður forsætisráðherrans Viktors Janúkovitsj í forsetakosningunum sem lauk í fyrradag, en hann tapaði sem kunnugt er fyrir Viktor Júsjenko.

Þúsundir hefðu getað bjargast

Viðvörunarkerfi hefði getað bjargað lífi þúsunda í Suðaustur-Asíu í gær. Ekkert slíkt kerfi var hins vegar fyrir hendi og því var enginn viðbúinn ógnarkrafti flóðbylgjunnar.

Hátt í 7000 hafa látist

Að minnsta kosti 6600 manns hafa farist í suðurhluta Asíu eftir hinn gríðarstóra jarðskjálfta sem gekk þar yfir í morgun, að sögn Sky-fréttastofunnar.

Ólæti 5. árið í röð

Ólæti brutust út í Grindavík í nótt þegar allsgáðir fullorðnir karlmenn reyndu að kveikja í áramótabrennu Grindvíkinga. Þetta eru fimmtu jólin í röð sem skrílslæti brjótast út í bænum og vegna reynslu fyrri jóla var lögregla með viðbúnað í bænum í gærkvöld. Reynsla fyrri jóla var að skríllinn myndi safnast saman um miðnætti og kom það á daginn.

Flest bendir til sigurs Júsjenkó

Meira en 12 þúsund kosningaeftirlitsmenn víðs vegar að úr heiminum eru komnir til Úkraínu, til þess að fylgjast með endurteknum forsetakosningum í landinu, sem fara fram í dag. Skoðanakannanir benda til þess að stjórnarandstæðingurinn Júsjenkó muni fara með sigur af hólmi.

Rólegt hjá lögreglu

Mjög rólegt var hjá lögreglu víða um land. Í Reykjavík var engin tilkynning um innbrot, en þó virðast skemmtanaglaðir hafa látið til sín taka og bárust nokkrar tilkynningar um hávaða í heimahúsum.

Neyðarvakt í utanríkisráðuneyti

Engin veit hversu margir Íslendingar eru á þeim svæðum sem hafa orðið fyrir áhrifum af skjálftanum og flóðbylgum vegna hans. Íslenska utanríkisráðuneytið hefur sett upp neyðarvakt, þar sem upplýsingum er safnað og Íslendingum komið til aðstoðar ef með þarf.

Flest bendir til sigurs Júsjenkó

Meira en 12 þúsund kosningaeftirlitsmenn frá þrjátíu og einu landi fylgdust með endurteknum forsetakosningum í Úkraínu í dag. Útgönguspár munu liggja fyrir fljótlega, en flest bendir til að stjórnarandstæðingurinn Viktor Júsjenkó muni fara með sigur af hólmi.

Næstum orðinn úti á jólanótt

Fertugur maður var hætt kominn eftir að hafa yfirgefið heimili sitt illa klæddur og ölvaður að kvöldi aðfangadags. </font /></b />

Hundruðir á hamfarasvæðum

Neyðarvakt var komið á fót í utanríkisráðuneytinu í gær eftir náttúruhamfarirnar í Asíu sem kostuðu þúsundir lífið. Fjöldi ættingja setti sig í samband við ráðuneytið til þess að spyrjast fyrir um afdrif Íslendinga sem staddir eru á hamfarasvæðunum að sögn Péturs Ásgeirssonar, skrifstofustjóra ráðuneytisins.

Fyrstu viðbrögð mismunandi

Það sem er að gerast í hugum fólks er að þar ríkir töluverð kaós fyrsta sólarhringinn. Í rauninni er þetta hálfgerð lömun sem getur valdið mismunandi viðbrögðum," segir Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur um viðbrögð fólks sem lendir í hörmungum eins og fórnarlömb jarðskjálftans í Suð-austur Asíu.

Sjá næstu 50 fréttir