Völvan sannspá um kosningarnar 27. desember 2004 00:01
Engin heimspekimiðstöð var reist hér á landi á árinu og ekki var heldur sett á fót lyfjaverksmiðja á Norðurlandi, hvað þá nýtt íslenskt dagblað. Öllu þessu og miklu fleiru spáði völva Vikunnar fyrir ári. Hún reyndist hins vegar sannspá um forsetakosningarnar og nýju húsnæðislánin. Við skulum fyrst fara á handahlaupum yfir það sem ræst hefur í völvuspá Vikunnar frá í fyrra. Völvan sá fyrir sér að farnar yrðu tvær leiðir í húsnæðismálum, annars vegar 90 prósenta lánin og hins vegar annars konar lán með breyttum forsendum. Þá sagði hún að mikil umræða yrði um vaxtalækkun og að fólkið í landinu myndi gera kröfu um lækkun vaxta. Völvan spáði einnig réttilega að sviptingar yrðu í þinginu í lok apríl en þá var fjölmiðlafrumvarpið kynnt, sællar minningar. Völvan sá að Ólafur Ragnar yrði endurkjörinn forseti. Það er kannski ekki mikið afrek en hún sá þó fyrir að mótframbjóðendur yrðu tveir. Völvan sá eldgos fyrir og jarðskjálftakippi við Grímsey. Þá spáði völvan réttilega fyrir um breytingar í stjórnunarstöðum á Stöð 2 og hún sagði að Svanhildur Hólm myndi róa á ný mið. Völvan spáði því einnig að ungu strákarnir í Sjálfstæðisflokknum myndu ekki gera stóra hluti á árinu og hún sagði að ríkið myndi hvorki selja Ríkisútvarpið né Landsímann. Hún sá hins vegar ekki fyrir að ríkið myndi eignast aðra sjónvarpsstöð á árinu sem er að líða. En völvunni skjátlaðist um margt. Engin alþjóðleg miðstöð á sviði heimspeki hefur verið reist hér eins og spáð var, né heldur var upplýsingaráðuneytið stofnað eða lyfjaverksmiðja reist á Norðurlandi. Þá fékk Spaugstofan ekki tækifæri til að slá í gegn í Bandaríkjunum og Sirrý og Sveppi reyndu ekki að slá í gegn í útlöndum. Ekkert fréttablað með pólitísku ívafi var stofnað í fyrra og Osama bin Laden fannst ekki í Suður-Ameríku þó svo að völvan hafi vitað af honum á þeim slóðum.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira