Fleiri fréttir

Úrslitin gagnrýnd

Evrópskir kosningaeftirlitsmenn gagnrýna harðlega framkvæmd kosninga í Úsbekistan og segja að þær uppfylli ekki skilyrði um lýðræðislegar kosningar.

Ekki vitað um 40 Íslendinga

Ekki er vitað um afdrif um fjörtíu Íslendinga sem voru á hamfarasvæðinu, af þeim sextíu og fimm sem staðfest er að eru þar um þessar mundir. Utanríkisráðuneytið hefur starfrækt neyðarvakt í dag þar sem upplýsingum er safnað og Íslendingum komið til aðstoðar ef með þarf.

5000 sinnum öflugri

Jarðflekahreyfingar í hafinu vestur af Súmötru ollu risi sjávarbotnsins sem orsakaði hinar mannskæðu flóðbylgjur. Ragnar Stefánsson segir orkulosunina 5000 sinnum meiri en í Suðurlandsskjáltunum.

Eyðilegging við Indlandshaf

Einn stærsti jarðskjálfti sögunnar reið yfir sunnanverða Asíu gær. Þúsundir manna liggja í valnum eftir að tröllauknar flóðbylgjur ruddust upp á strendur landanna við Bengalflóa.

Rauði Krossinn aðstoðar

Söfnun er hafin meðal landsmanna til aðstoðar fórnarlömbum stórflóðanna. Fjölmörg ríki og hjálparsamtök hafa hafið neyðarhjálp á flóðasvæðunum. Það er ljóst að þörfin fyrir hjálp er gríðarleg og allir sem vettlingi geta valdið hafa boðið fram aðstoð sína.

Foreldrar meðal brennuvarga

Fimmtu jólin í röð brutust út ólæti í Grindavík vegna fullorðinna karlamanna sem reyndu að kveikja brennu inn í bænum um miðnætti á jóladag. Í framhaldinu var kveikt í áramótabrennu bæjarbúa við Litluvör. Slökkviliðinu tókst ekki að slökkva eldinn og bjarga brennunni sem brann að mestu niður.

Vöknuðu við þjófa

Brotist var inn á fjórum stöðum í Reykjavík frá því klukkan fimm á jóladagsmorgun og til klukkan ellefu um kvöldið. Húsráðandi í Breiðholti vaknaði við þrusk og kom að tveimur innbrotsþjófum í eldhúsinu. Þjófarnir ruku tómhentir á brott.

Þjófur sofnaði

Maður á fertugsaldri var handtekinn um borð í bát í Ísafjarðarhöfn á jóladag. Hann fór um borð í bátinn til að stela lyfjum.

Vonskuveður fyrir austan

Ófært var vegna vonskuveðurs um mestallt Austurland frá því á aðfangadagskvöld og þar til í gær, þegar veðrið lagaðist og farið var að ryðja vegi. Björgunarsveitin á Seyðisfirði var kölluð út á aðfaranótt jóladags til að festa niður þakplötur á skemmu í bænum.

Rafmagn fór tvisvar af

Rafmagn fór tvisvar af á Vestfjörðum í gær vegna bilana á svokallaðri vesturlínu Landsvirkjunar.

Fólk sat fast í óviðri

Óveður og ófærð var á öllu Norðurlandi og víða aðstoðaði lögregla fólk við að komast á milli staða. Lögreglunni á Húsavík bárust 75 hjálparbeiðnir vegna ófærðar á aðfangadag og jóladag.

Mannskaði vegna flóðbylgja

Flóðbylgjur, sem oft orsakast af neðansjávarjarðskjálftum, hafa í gegnum tíðina valdið stórfelldum spjöllum í strandbyggðum. Sagnir af slíkum hamförum eru til bæði frá Róm og Grikklandi til forna, þar með talið frásögn af flóðbylgju sem gekk yfir Miðjarðarhafið austanvert 21 júlí árið 365 og drap þúsundir íbúa Alexandríu í Egyptalandi. 

Meira en tíu þúsund látnir

Talið er að á annan tug þúsunda manna hafi farist í flóðbylgjum sem gengu yfir strendur landa við Indlandshaf í gær í kjölfar eins af stærstu jarðskjálftum sögunnar. Ekki er talið að Íslendingar á þessum slóðum hafi meiðst, en mörgum er brugðið.

Þróunarríki örvænta

Evrópusambandið, fátæk þróunarríki og eyríki vilja að viðræður hefjist um frekari minnkun útblásturs gróðurhúsalofttegunda. Bandaríkjastjórn dregur hins vegar lappirnar. Nokkur þúsund íbúum eyjunnar Túvalú hefur verið boðið landvistarleyfi á Nýja-Sjálandi vegna hækkunar sjávarborðs.

Eins og úr pappír

P. Ramanamurthy, fertugur íbúi í Kakinada á suðurhluta Indlands, var harmi lostinn þegar hann horfði út á sjó er flóðbylgjan gekk þar yfir.

Hlupu öskrandi frá ströndinni

"Allt í einu voru göturnar á kafi í sjó og fólk hljóp öskrandi frá ströndinni," sagði Ástralinn John Hyde, sem var í jólafríi á suðurhluta Taílands þegar gífurleg flóðbylgja gekk þar yfir.

Júsjenko spáð sigri

Samkvæmt útgönguspám hafði leiðtogi stjórnarandstöðu Úkraínu, Viktor Júsjenko, 15% fleiri atkvæði í annarri umferð forsetakosninga þar í landi en andstæðingur hans, Viktor Janúkovitsj forsætisráðherra.

Sonurinn uppi í tré

Sænsk fjölskylda var nýkomin í jólafrí á Phuket-eyju á Taílandi þegar flóðbylgja gekk þar yfir. "Sjórinn fór og kom síðan aftur á gífurlegum hraða og tók allt með sér," sagði faðirinn Kjell Skold.

Áfengisbann í Ástralíu

Yfirvöld í Ástralíu hafa brugðið á það ráð að banna alla áfengisnotkun yfir jólin á Bondi-ströndinni í Sydney, í fyrsta sinn í sögunni.

Geimfarar með síðbúna jólamáltíð

Tveir geimfarar frá Rússlandi og Bandaríkjunum snæddu síðbúna jólamáltíð í alþjóðlegu geimstöðinni í gær eftir að ómannað geimskip lagði þar við bryggju.

Sjö stungnir í barnaafmæli

Sjö manns voru stungnir í slagsmálum sem brutust út í afmælisveislu tveggja ára gamallar stúlku í Ohio í Bandaríkjunum.

Herferð gegn reykingum

Ný og óvægin auglýsingaherferð gegn reykingum er farin af stað í Bretlandi. Vonast stjórnvöld til að þúsundir manna muni í kjölfarið hætta að reykja á næsta ári.

Tvö börn fórust og eignatjón mikið

Að minnsta kosti tvö börn fórust í öflugum jarðskjálfta upp á 7,4 á Richter í Bangladess í gær. Að sögn björgunarsveita og veðurfræðinga komu fram sprungur í jörð og flóðbylgjur mynduðust.

Fullur og illa klæddur

Allar björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt upp úr klukkan átta á aðfangadagskvöld til að leita að fertugum manni sem fór frá heimili sínu í Vogahverfinu um kvöldmatarleytið.

Brúðkaupi frestað

Brúðkaupi sem fara átti fram á Akureyri klukkan hálf tvö á jóladag var frestað til klukkan fimm og svo aftur til klukkan sjö en þá var loks orðið fært innanbæjar.

Víða messufall

Messufall er víða á Norðurlandi, vegna ófærðar. Útvarpsmessa í Akureyrarkirkju féll niður í morgun og engin messa verður heldur á Húsavík. Þá fellur messa á Eskifirði einnig niður.

Vonskuveður fyrir norðan

Vonskuveður á Norðurlandi setti strik í reikninginn hjá mörgum. Fólk komst hvorki lönd né strönd og björgunarsveitarmenn hafa verið við störf í alla nótt og morgun. Á Akureyri gekk vel framan af kvöldi, en um klukkan hálf þrjú um nóttina barst lögreglu tilkynning um að togari í slipp væri við það að losna frá bryggju.

Minnst 8 fórust

Að minnsta kosti átta menn fórust og á annan tug særðist þegar eldsneytisbíll sprakk við sendiráð Jórdaníu í Bagdad í gærkvöldi. Allt bendir til þess að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða. Bílnum hafði verið ekið að sendiráðsbyggingunni, en íbúðarhverfi eru skammt frá og gjöreyðilögðust mörg hús við sprenginguna.

Hamas-samtökin sigra

Hamas-samtök harðlínumúslíma unni mikinn sigur í borgar- og bæjarstjórnarkosningum á sjálfsstjórnarsvæðum Palestínumanna sem fram fóru í gær. Allt bendir einnig til þess að Fatah-hreyfing Jassirs heitins Arafats hafi tapað töluverðu fylgi. Litið var á kosningarnar sem einskonar æfingu fyrir forsetakosningarnar sem fram eiga að fara í janúar.

Björgunarsveitarmenn sendir út

Óttast var að ölvaður maður, sem rauk út af heimili sínu í gærkvöld, illa klæddur, yrði úti. Nærri hundrað björgunarsveitarmenn leituðu mannsins í gærkvöldi.

Nóg að gera hjá lögreglu

Lögreglan í Reykjavík hafði í nógu að snúast í gærkvöld og í nótt, vegna innbrotsþjófa, ölvunaraksturs og kertabrunar. Eldur kviknaði á tveimur heimilum í borginni vegna útikerta í gærkvöld. Annar bruninn varð í fjölbýlishúsi við Háaleitisbraut um klukkan sex og þurfti að flytja þrjá á slysadeild vegna brunasára og gruns um reykeitrun.

Breytingar standast ekki

Stjórnlagadómstóll Úkraínu komst að því í morgun að breytingar sem gerðar voru nýlega á kosningalögum landsins, brytu í bága við stjórnarskrána. Önnur umferð forsetakosninganna í Úkraínu verður endurtekin á morgun.

Verst veður fyrir austan

Undir morgun var veðrið einna verst á austanverðu landinu, en í vindhviðum fór vindhraðinn allt upp í þrjátíu metra á sekúndu. Á Vopnafirði var til að mynda ekkert skyggni og mjög þungfært. Aflýsa þurfti messum og hefur fólk að mestu haldið sig innan dyra. Lögreglan á Vopnafirði segir þó verðið farið að ganga niður.

Færri hjá Hjálpræðishernum

Heldur færri leituðu á náðir Hjálpræðishersins í gærkvöldi en oftast áður, að sögn Miriam Óskarsdóttur hjá Hjálpræðishernum. Hún segir að á milli 100 og 120 manns hafi komið í gær, sem sé færra en verið hefur, enda hafi fjöldinn farið yfir 200 þegar mest hafi látið.

Jólahald í uppnámi vegna veðurs

Vonskuveður á Norður- og Austurlandi hefur sett jólahald í uppnám á mörgum heimilum. Fólk komst hvorki lönd né strönd, og björgunarsveitarmenn hafa verið við störf í alla nótt og í dag. Frá Svalbarðseyri, austur að Lóni eru allir vegir ófærir.

Mikilvægasta sagan af jesúbarni

Uppspretta dýrmætustu auðæfanna er að finna í sögunni af jesúbarninu, en ekki jólasveinunum. Það eru skilaboð biskups til þjóðarinnar þessi jól. Í jólamessu í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í gærkvöld minnti biskup á mikilvægi þess að börnum væri sögð sagan af Jesú, sögu sem enn er aflvaki göfgi, góðvildar, réttlætis, sannleika og friðar.

Eins árs á þunglyndislyfjum

Börn hér á landi, allt niður í árs gömul, eru á þunglyndislyfjum, aðallega vegna þroskafrávika og hegðunarerfiðleika. Yfirlæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans segir að börn á forskólaaldri stríði við þunglyndi.

Hefur áhyggjur af Afríku

Jóhannes Páll páfi annar hvatti til friðar í heiminum í jólaávarpi sínu á Péturstorgi í Róm í dag. Hann sagðist hafa þungar áhyggjur af ástandinu í Afríku og í Miðausturlöndum.

Á þriðja tug hafa fallið

Á þriðja tug liggur í valnum eftir röð hryðjuverkaárása í Írak undanfarinn sólarhring. Níu fórust í sjálfsmorðsárás á sendiráð Jórdaníu í Bagdad í gærkvöldi, þar af sjö manna fjölskylda sem bjó í næsta húsi. Uppreisnarmenn vörpuðu sprengjum á hersveitir í Mósúl og læknaprófessor var myrtur í Bagdad.

Óvissa í Úkraínu

Óvissa ríkir í Úkraínu vegna forsetakosninganna sem verða endurteknar í landinu á morgun. Stjórnlagadómstóll Úkraínu úrskurðaði í dag að breytingar sem gerðar voru nýlega á kosningalögunum, brytu gegn stjórnarskrá landsins.

Umfangsmestu aðgerðir í Súdan

Hjálparstarf alþjóða Rauða krossins í Súdan er lang-umfangsmesta aðgerð samtakanna. Íslendingar hafa tekið virkan þátt í starfinu og hafa fjórir Íslendingar verið sendir þangað á árinu. Stefnt er að því að senda fleiri utan á næsta ári.

Ríkið keypti dótturfélag Yukos

Dótturfélag Yukos er nú komið í hendur ríkisfyrirtækisins Gazprom. Þessir málavextir komu ekki á óvart þótt rússnesk yfirvöld hefðu gefið í skyn að þau hyggðust ekki eignast fyrirtækið.

Foreldrar fá engar bætur

Hæstiréttur sýknaði ríkið af skaðabótakröfu foreldra fjölfatlaðs drengs í gær. Foreldrarnir fóru fram á 25 milljónir króna í bætur þar sem þau álitu að lélegt mæðraeftirlit og fæðingarhjálp hefðu leitt til þess að drengurinn skaðaðist.

Hermenn í Írak heyja sálarstríð

Sálarþrek bandarískra hermanna í Írak fer dvínandi. Árásin á herstöðina í Mosul var sjálfsmorðsárás. Hermönnum finnst þeir hvergi vera öruggir. Verktakar í uppbyggingarstarfi gefast upp. </font /></b />

Í hjartastað fær veglegan styrk

Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík afhenti söfnuninni Í hjartastað og Minningarsjóði Þorbjörns Árnasonar styrk að upphæð 400.000 krónur í vikunni.

Sjá næstu 50 fréttir