Erlent

159 palestínskum föngum sleppt

Ísraelsmenn slepptu 159 palestínskum föngum í gær til að lýsa vinsemd í garð nýrra stjórnvalda í Palestínu. Leiðtogi Palestínumanna og forsetaframbjóðandi, Mahmoud Abbas, lýsti ánægju sinni með ákvörðun Ísraelsmanna en sagði Ísraelsmenn einnig þurfa að frelsa Palestínumenn sem setið hafa í ísraelskum fangelsum í lengri tíma. Ísraelar hafa enn um 7.000 Palestínumenn í haldi og Abbas er beittur miklum þrýstingi heimafyrir á að þeim verði sleppt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×