Harmleikur á hamfarasvæðunum 27. desember 2004 00:01
Nú er orðið ljóst að á þriðja tug þúsunda fólks lét lífið í jarðskjálftanum við Indlandshaf og flóðunum sem honum fylgdu. Enn er ekkert vitað um afdrif fjölda fólks og því er viðbúið að tala látinna muni enn hækka. Neyðaraðstoð hefur borist víða að en mikið verk er óunnið. Jarðskjálftinn sem varð skammt vestur af Súmötru var enn stærri en fyrstu mælingar sýndu. Vísindamenn segja hann nú hafa verið 9,0 stig á Richter, þann fjórða stærsta síðan mælingar hófust. Sjónarvottar hafa lýst því hvernig sjórinn sogaðist undan ströndunum rétt áður en sex metra hár ölduveggurinn ruddist upp á landið og eyðilagði allt sem fyrir varð. Viðurstyggð eyðileggingarinnar blasti alls staðar við á hamfarasvæðunum í gær. Lík íklædd sundfatnaði lágu víða á baðströndum Taílands í gær og nályktina lagði yfir margar strandbyggðir Indónesíu því ekki var hægt að leggja hina látnu til grafar í forugan jarðveginn. Verst var ástandið á Srí Lanka þar sem ríflega þrettán þúsund manns létu lífið og í það minnsta ein milljón missti heimili sín. Í Indónesíu telja menn að hátt í fimm þúsund manns hafi farist og ein milljón sé heimilislaus. Flóðbylgjan barst alla leið til Sómalíu þar sem hundruð manna drukknuðu, einkum fiskimenn á trékænum. Skelfilegar frásagnir hafa borist af örlögum fólks sem lenti í flóðunum. Flóðbylgjan hrifsaði sex mánaða gamalt ástralskt barn úr örmum föður síns á baðströnd á Phuket-eyju, skammt undan ströndum Taílands. 150 börn voru lögð í fjöldagröf í bænum Cuddalore í Indlandi. Foreldrar þeirra fylgdust grátandi með þegar jarðýtur mokuðu leðjunni yfir lík barnanna. Mikið öngþveiti hefur skapast á flugvöllum á vinsælum ferðamannastöðum á þessum slóðum en fjölda erlendra ferðamanna er enn saknað. Hjálparsamtök óttast mjög að sjúkdómar á borð við malaríu og kóleru muni breiðast hratt út enda er hreint vatn af skornum skammti. Neyðaraðstoð hefur borist víða að og hafa ríkisstjórnir og hjálparstofnanir lofað veglegum fjárstuðningi þeim til handa sem verst hafa orðið úti. Þar á meðal íslenska ríkisstjórnin. Mannfall af völdum hamfaranna - Srí Lanka:13.000 látnir- Indónesía:4.500 látnir- Indland:3.500 látnir- Taíland:839 látnir - Malasía: 44 látnir - Maldíveyjar: 32 látnir - Myanmar: 30 látnir - Bangladess: 2 látnir
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Sjá meira