Áralangt starf framundan í Darfur 27. desember 2004 00:01
Alþjóða Rauði krossinn hefur á undanförnum mánuðum séð hundruðum þúsunda manna í Darfur-héraði í Súdan fyrir matvælum, vatni og heilsugæslu. Uppbygging þar hefur verið öflug og hröð en ljóst er að margra ára hjálparstarf er fram undan á þessu stríðshrjáða svæði. Alþjóða Rauði krossinn heldur úti gríðarlega öflugu hjálparstarfi í Darfur-héraði. Þörfin er mikil en um tvær milljónir manna hafa misst heimili sín og hátt í hundrað þúsund hafa týnt lífi vegna átakanna á svæðinu. Aðstoð Rauða krossins er margþætt; hann dreifir matvælum og öðrum hjálpargögnum um héraðið, meira en 6 þúsund tonnum matar hefur verið dreift til mörg hundruð þúsunda þurfandi íbúa Darfur-héraðs og frá Nýala var til dæmis rúmlega 270 tonnum af korni dreift til nágrannabyggðanna þann dag sem fréttamaður heimsótti birgðastöðvar Rauða krossins rétt fyrir jól. Þá hefur hann komið upp dælum og brunnum sem sjá um 300 þúsund íbúum darfur fyrir vatni, bæði í flóttamannabúðum og í bæjum héraðsins. Rauði krossinn rekur sjúkrahús og heilsugæslustöðvar víðs vegar um héraðið. Sjúkrahúsið í Zalingei er gott dæmi um slíka starfsemi. Þar eru 80 rúm, almennir læknar og skurðlæknar auk hjúkrunarfræðinga. Uppbygging sjúkrahússins hófst í mars og það tók svo til starfa í ágúst. Turid Sörhus, stjórnandi sjúkrahússins, segir síðan þá hafa verið tekið á móti um 300 sjúklingum í hverjum mánuði. Auk þess er rekin heilsugæslustöð þar sem koma um 3000 sjúklingar á mánuði. Á heilsugæslunni er almennum sjúkdómum á borð við niðurgang, kvefpestir og lungnabólgu sinnt og þörfin er mikil. Síðan átökin hófust hafa allar heilsugæslustöðvar í héraðinu verið lokaðar. Aðstandendur sjúklinga gegna stóru hlutverki á sjúkrahúsinu, þeir þvo af sjúklingum, færa þeim mat og halda til við sjúkrahúsið á meðan ástvinir þeirra eru innlagðir. Og fórnarlömbum átakanna er ekki síður sinnt en öðrum; í vikunni fyrir jól komu til að mynda inn 15 menn með skotsár, þar af sumir afar illa haldnir. Eftir tíu mánaða hjálparstarf í Zalingei eru starfsmenn Rauða krossins sammála um að ástandið er miklu mun stöðugra nú en það var í upphafi. Engu að síður er starfið rétt nýhafið og þeim ber saman um að það er margra ára hjálparstarf framundan í Darfur.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Sjá meira