Júsjenkó öruggur sigurvegari 27. desember 2004 00:01
Viktor Júsjenkó bar sigur úr býtum í forsetakosningunum í Úkraínu sem haldnar voru annan dag jóla. Kjörsókn var góð og ekki eru taldar líkur á að brögð hafi verið í tafli. Stuðningsmenn Viktors Janukovitsj eru ósáttir við úrslitin og óttast að misrétti í landinu muni aukast. Úkraínumenn gengu að kjörborðinu á nýjan leik á sunnudaginn en hæstiréttur landsins ógilti kosningarnar sem haldnar voru í síðasta mánuði þar sem framkvæmd þeirra var meingölluð. Kjörsókn var góð en ríflega 77 prósent skráðra kjósenda nýtti atkvæðisrétt sinn. Þegar 97 prósent atkvæðanna höfðu verið talin höfðu tæp 53 prósent greitt Júsjenkó atkvæði sitt en rúm 43 prósent merkt við nafn Janukovitsj. Munurinn á frambjóðendunum var minni en gert hafði verið ráð fyrir. Útgönguspár sýndu allt að tuttugu prósentustiga mun á frambjóðendunum en þegar talið hafði verið upp úr kössunum nam hann ekki nema tíu prósent. Engu að síður var Júsjenkó ánægður með úrslitin. Í ávarpi sínu til þjóðarinnar þakkaði hann stuðningsmönnum sínum sem vikum saman höfðust við úti á torgum og strætum höfuðborgarinnar í vetrarkuldunum og mótmæltu úrslitum fyrri kosninganna. "Í dag hefur úkraínska þjóðin sigrað, ég óska ykkur til hamingju," sagði hinn rúnum risti leiðtogi við mannfjöldann á aðaltorgi Kænugarðs í fyrrakvöld. "Við höfum verið sjálfstæð í fjórtán ár en ekki verið frjáls. Nú getum við hins vegar horft fram á veginn því Úkraína hefur öðlast fullveldi og frelsi" Tólf þúsund kosningaeftirlitsmenn voru í Úkraínu til að tryggja að kosningarnar færu rétt fram. Þeim bar saman um að kosningarnar hefðu farið heiðarlega fram og allir hnökrar hefðu verið minniháttar. Janukovitsj var orðinn svartsýnn um sigur áður en kjörfundi lauk en lofaði öflugri stjórnarandstöðu. Stuðningsmenn hans höfðu í frammi mótmæli, til dæmis í iðnaðarborginni Donetsk og sögðust óttast að klofningurinn á milli þjóðarbrotanna í landinu myndi aukast. Margir þeirra kváðust styðja að hinn rússneskumælandi austurhluti landsins klyfi sig frá vesturhlutanum.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira