Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fólksfjölgun markmiðið Bolvíkingar hafa uppi metnaðarfull áform þessa vikuna en í gær var blásið til ástarviku í bænum. Soffía Vagnsdóttir, oddviti minnihlutans í bæjarstjórn, er í forsvari fyrir hátíðina og segir hún að eitt stórt markmið felist með hátíðahöldunum: að fjölga bæjarbúum. Í maí á næsta ári verði svo fylgst grannt með því hvernig fólk hefur staðið sig. 23.8.2004 00:01
Vill réttarhöldin frá Bagdad Bandarískur hermaður sem ákærður er fyrir pyntingar og kynferðislega niðurlægingu á írökskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu hefur óskað eftir því að réttarhöldin verði færð frá Bagdad. Hermaðurinn, Charles Graner að nafni, segist ekki eiga möguleika á sanngjörnum réttarhöldum í íröksku höfuðborginni og bar þessa ósk því fram í dag. 23.8.2004 00:01
Jafnaðarmenn harma hvarf Sivjar Ungir jafnaðarmenn harma niðurstöðu þingflokks Framsóknarflokks um að fækka konum í ríkisstjórn að því er segir í ályktun þeirra sem samþykkt var á landsþingi Ungra jafnaðarmanna í Hveragerði um helgina og send var fjölmiðlum áðan. 23.8.2004 00:01
Málverkin einhvers staðar í Ósló Norska lögreglan telur að málverkunum sem stolið var úr Munch-safninu í Ósló í gær hafi verið komið fyrir einhvers staðar í borginni. Tveir vopnaðir menn höfðu útgáfur af frægustu verkum Munchs á brott með sér í gærmorgun, Ópinu og Madonnu. Tugir gesta voru í safninu á þessum tíma og hafa þeir gefið þann vitnisburð að mennirnir hafi borið sig klaufalega. 23.8.2004 00:01
Fjöldi hvala sést daglega Hvalir sjást daglega utan við byggðina í Keflavík og Njarðvík. Stórar hvalavöður hafa sést en að sögn Helgu Ingimundardóttur hjá hvalaskoðunarskipinu Moby Dick er mikið æti í flóanum. Síðast í gærkvöldi mátti sjá þrjár hrefnur í æti skammt undan landi. Vefur Víkurfrétta greinir frá þessu. 23.8.2004 00:01
Þrettán Nepölum rænt í Írak Þrettán nepölskum ríkisborgurum var rænt í Írak í dag að því er nepalska utanríkisráðuneytið tilkynnti fyrir stundu. Fólkið er allt starfsmenn jórdansks fyrirtækis og hafði verið sent á þess vegum til Íraks til að vinna. Að sögn nepalska utanríkisráðuneytisins var því rænt þegar það var að stíga upp í bifreið, stuttu eftir komuna til landsins. </font /> 23.8.2004 00:01
Fundað vegna fjárlagafrumvarpsins Þingflokkar Framsóknar- og Sjálfsstæðisflokks koma saman til fundar nú um fjögurleytið til að ræða drög að fjárlagafrumvarpi. Rúmur mánuður er þar til fjárlagafrumvarpið verður lagt fyrir á Alþingi. 23.8.2004 00:01
Fá ekki heilsdagsvist Nokkrir tugir barna hafa enn ekki fengið heilsdagsvist í frístundaheimilum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur (ÍTR) fyrir veturinn. Þetta veldur miklum óþægindum fyrir foreldra sem þurfa að gera aðrar ráðstafanir ef bæði eru útivinnandi. 23.8.2004 00:01
4200 börn í skóla í fyrsta sinn Í ár munu rúmlega 4200 börn setjast á skólabekk í fyrsta sinn. Í tilkynningu frá Umferðarstofu segir að þessi börn komi úr öruggu umhverfi heimilis og úr leikskólum þar sem þau hafa leikið sér á lokuðum leikvelli. Mikilvægt sé fyrir foreldra og forráðamenn að undirbúa börnin vel svo þau getið spjarað sig ein. 23.8.2004 00:01
Hlunnfarnir um milljarð Bergur Ágústsson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum telur að fyrirtæki í Vestmannaeyjum hafi orðið af að minnsta kosti fjögur hundruð milljónum króna á síðustu tveimur til þremur árum vegna sértækra aðgerða í sjávarútvegi. Sé litið lengra aftur er upphæðin yfir einum milljarði. 23.8.2004 00:01
Fellibylur ógnar Taívan Líkur eru á að fellibylur gangi yfir Taívan á næstu dögum með tilheyrandi flóðum og aurskriðum. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að loka öllum skólum, fjármálamörkuðum og fyrirtækjum í höfuðborginni Taípei og fleiri stöðum í norðvesturhluta landsins á morgun. 23.8.2004 00:01
Sameining HR og THÍ í burðarliðnum Forystumenn Tækniháskóla Íslands (THÍ) og Háskólans í Reykjavík (HR) hafa átt í viðræðum undanfarnar vikur um samvinnu eða samruna þessara tveggja háskóla að frumkvæði menntamálaráðuneytisins. 23.8.2004 00:01
Stór eiturlyfjabarón handtekinn Mexíkóska lögreglan hefur handtekið eiturlyfjabarón þar í landi sem grunaður er um að standa fyrir smygli á u.þ.b. helmingi þess magns eiturlyfja sem smyglað er árlega til Bandaríkjanna frá Mexíkó. 23.8.2004 00:01
Al-Sadr farinn frá Najaf Muqtada al-Sadr er farinn frá Najaf. Reyndar segir lögreglustjórinn í borginni að hann hafi farið úr Imam Ali moskunni fyrir rúmri viku. Mehdi-hersveitir hans berjast samt áfram og hafa í dag tekist á við bandaríska og írakska hermenn í návígi. Sjónarvottar segja bardagana þá hörðustu síðan átök blossuðu upp í borginni fyrir þremur vikum. 23.8.2004 00:01
Myndirnar ekki bannaðar Myndir sem sýna bandaríska hermenn níðast á föngum í herfangelsum í Írak verða ekki bannaðar. Lögmenn hermannanna fóru þó fram á það við frumréttarhöld í Þýskalandi í dag. 23.8.2004 00:01
Samstarf Og Vodafone og Orkuveitu Forstjórar Og Vodafone og Orkuveitu Reykjavíkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um að félögin eigi samstarf um að ljósleiðaravæða heimili og fyrirtæki í landinu. 23.8.2004 00:01
Nýjar byggingar í landnemabyggðum Stjórnvöld í Ísrael tilkynntu í gær að þau munu reisa rúmlega 500 byggingar á Vesturbakkanum, til viðbótar við þúsund nýbyggingar sem einnig munu rísa í landnemabyggðum. Þá kunngjörðu þau að smíði aðskilnaðarmúrsins ljúki ekki fyrr en árið 2005, ári á eftir áætlun. 23.8.2004 00:01
Hitasvæði í Eyjafirði rannsakað Gríðarlega fjölbreytt dýra- og plöntulíf er á jarðhitasvæðinu í Eyjafirði. Búið er að mynda hóp vísindamanna sem á að rannsaka svæðið frekar. 23.8.2004 00:01
Orkuveitan losar sig við Línu.net Og Vodafone og Orkuveita Reykjavíkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um að félögin eigi samstarf um ljósleiðaravæðingu heimila og fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu. 23.8.2004 00:01
Bush fordæmir rógsherferð George W. Bush Bandaríkjaforseti fordæmir sjónvarpsauglýsingar frá einkaaðilum sem gera lítið úr honum eða John Kerry, mótframbjóðanda sínum. Hann hvetur fólk til að láta af slíkum rógi og segir þetta slæmt fyrir kosningarnar. 23.8.2004 00:01
Skortur á gangbrautum Víða í höfuðborginni er skortur á gangbrautum. Fjölgun þeirra þarf þó ekki að vera af hinu góða segir verkfræðingur hjá umhverfis- og tæknisviði Reykjavíkurborgar. 23.8.2004 00:01
Siv aftur í ríkisstjórn? Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, vill að formaður flokksins og aðrir forystumenn haldi fund með óánægjuöflum innan flokksins til að freista þess að ná sáttum. Hann segir mikilvægt að fullvissa jafnréttissinna um að Siv Friðleifsdóttir snúi aftur í ríkisstjórn. 23.8.2004 00:01
Mannekla í heilsdagsskólum Sextíu börn í grunnskólum höfuðborgarinnar fá ekki inni í heilsdagsskólum vegna manneklu. Stefnt er að því að leysa málið fyrir mánaðamót. 23.8.2004 00:01
Forræðisdeila yfir hundum Sambýlismaður kattakonunnar, Guðrúnar Sigríðar Stefánsdóttur, vill forræði yfir hundum þeirra.Um er að ræða sjö hunda af chihuahua- og labradortegund sem að líkindum verður lógað ef hann fær þá ekki. 23.8.2004 00:01
Hörmungarnar í Darfúr gætu aukist Farsóttir gætu aukið enn hörmungar flóttamanna frá Darfur-héraði í Súdan. Þrátt fyrir fögur fyrirheit um bætt ástand eru skæruliðasveitir stjórnvalda enn sagðar á kreiki í Darfur. 23.8.2004 00:01
Hundruðum nemenda vísað frá Mörg hundruð nemendur fá ekki vist í framhaldsskólum landsins í haust. Þingmaður Vinstri-grænna segir þetta stríða gegn menntastefnu stjórnvalda þar sem kveðið sé á um að fólk sem horfið hafi frá námi í framhaldsskóla fái tækifæri til þess að taka upp þráðinn að nýju. 23.8.2004 00:01
Óvissa um skattalækkanir Ekki liggur endanlega fyrir hvernig staðið verður að skattalækkunum sem kveðið er á um í stjórnarsá<font size="2"></font>ttmála. Fyrstu drög að fjárlögum fyrir næsta ár voru kynnt á þingflokksfundum stjórnarflokkanna sem enn stóðu yfir rétt fyrir fréttir. 23.8.2004 00:01
Íbúðalán á lægri vöxtum KB banki býður lán á lægri vöxtum en Íbúðalánasjóður til íbúðakaupa eða endurfjármögnunar á eldri lánum. Ekkert þak er á lánunum en miðað er við að lána ekki meira en sem nemur brunabótamati eignar. 23.8.2004 00:01
Ásatrúarmenn helga Kárahnjúka Ásatrúarmenn og náttúruunnendur fjölmenntu við Kárahnjúka í gær og helguðu landið og báðu því griða. Allsherjargoði segir að ekki megi gefast upp, landið og umheimurinn eigi það inni hjá mönnum. 23.8.2004 00:01
Hugað að sameiningu Forystumenn Tækniháskólans og Háskóla Reykjavíkur hafa átt viðræður undanfarnar vikur um samvinnu eða samruna skólanna tveggja. 23.8.2004 00:01
Þrauka frekar en að hækka ;Við höfum ekki í hyggju að hækka fargjöld þrátt fyrir hækkanir olíuverðs. Þó að þetta sé hækkun á einum kostnaðarlið þá reynum við að mæta því með því að minnka kostnað annars staðar," segir Ólafur Hauksson, talsmaður Iceland Express. 23.8.2004 00:01
Enn beðið eftir áverkavottorði Rannsókn á líkamsárás sem átti sér stað í Öxnadal fimmta ágúst er á lokastigi að sögn Daníels Snorrasonar, hjá lögreglunni á Akureyri. 23.8.2004 00:01
Íslandsflugi dýrt spaug Kostnaður vegna sprengjugabbs í flugvél Íslandsflugs hleypur á milljónum, segir Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri flugfélagsins. 23.8.2004 00:01
Grunnskólanemum fækkar lítillega Um 15% landsmanna hóf nám í grunnskólum landsins í gær. Börnin velta lítið fyrir sér yfirvofandi verkfalli kennarar, segir skólastjóri Ölduselsskóla. Fræðslustjóri Reykjavíkur segir aldrei auðveldara að ráða kennara.</font /></b /> 23.8.2004 00:01
Málið snýst ekki um jafnrétti Varaþingmaður Framsóknarflokksins segir að það hefði verið vantraust á þann ráðherra sem hefði verið látinn standa upp fyrir Siv Friðleifsdóttur. Ákvörðunin snúist ekki um jafnrétti heldur skorti Siv stuðning innan þingflokksins. Framsóknarkonur segja ummæli hans um framsóknarkonur á hrifla.is lýsa lítilsvirðingu í garð kvenna. 23.8.2004 00:01
Bankalán keppa við Íbúðalánasjóð KB banki kynnti í gær lán með fyrsta veðrétti í íbúð með 4,4 prósenta vöxtum. Bankinn segist með þessu vera að standa við loforð um að viðskiptavinir njóti stærðar bankans. Vextirnir sem standa viðskiptavinunum til boða eru 0,1 prósenti lægri en vextir Íbúðalánasjóðs. 23.8.2004 00:01
Dómsmálaráðherra sýnt banatilræði Fjórir létust og átta særðust þegar dómsmálaráðherra Íraks var sýnt banatilræði. Sjálfsmorðsárás var gerð á bílalest ráðherrans í í Bagdad, en hann slapp ómeiddur. Hryðjuverkasamtök Jórdanans al-Zarqawi, hafa lýst sig ábyrg fyrir sprengingunni. 22.8.2004 00:01
98 útköll frá miðnætti Miðað við umfang hátíðarinnar verður ekki annað sagt en að hún hafi farið vel fram í stórum dráttum. Veður var eins og best verður á kosið, heiður himinn og hægur andvari. Miklar umferðarteppur mynduðust á helstu götum í kringum miðborgina þegar allur þessi fjöldi sneri heim á leið um miðnætti, og var algengt að það tæki fólk á aðra klukkustund að komast úr þvögunni. 22.8.2004 00:01
18 létust á útifundi í Bangladesh Að minnsta kosti 18 léstust þegar sprengjur sprungu á útifundi í Bangladesh seint í gærkvöldi. Fyrrverandi forsætisráðherra landsins Hasina Wajed var í aðalhlutverki á fundinum og taliðað árásin hafi beinst að henni. Um 300 manns særðust í árásinni. 22.8.2004 00:01
Enn kom til átaka í Najaf Að minnsta kosti 40 létust í gær í við borgina Najaf þegar til átaka kom milli herskárra sjíta-múslima og bandarísks herliðs. Átökin áttu sér stað í nálægum bæ, Kufa, sem er einn af mörgum stöðum þar sem sjíta-múslimar sem eru stuðningsmenn róttæka herklerksins Moqtada al-Sadr, hafa gert uppreisn. 22.8.2004 00:01
Framsóknarkonur íhuga sérframboð Formaður Kvenréttindafélags Íslands er undrandi og hneykslaður yfir brottvikningu Sivjar úr ráðherrastóli. Jafnréttisfulltrúi flokksins segir að fái konur ekki brautargengi innan flokksins komi sérframboð til greina. 22.8.2004 00:01
Metfjöldi á Menningarnótt Skipuleggjendur og lögregla áætla að hundrað þúsund manns að minnsta kosti hafi komið saman í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt í gær. Fjöldinn hefur að líkindum aldrei verið meiri. 22.8.2004 00:01
Ópi Munchs rænt Málverkin, Ópið og Maddonna, sem rænt var úr Munch safninu í Osló í dag, eru svo þekkt að ómögulegt verður fyrir þjófana að selja þau, segja listasérfræðingar. Það er því talið líklegt að ræningjarnir muni fara fram á lausnargjald fyrir málverkin. 22.8.2004 00:01
Lögreglan í viðbragðsstöðu Írakska lögreglan er í viðbragðsstöðu komi til þess að írakski forsætisráðherrann krefjist þess að þeir taki Imam Ali moskuna í borginni Najaf með valdi. Enn hafa liðmenn uppreisnarklerksins Moqtada al-Sadr moskuna á sínu valdi. 22.8.2004 00:01
Framsóknarklíka of valdamikil Elsa B. Friðfinnsdóttir, fyrrverandi aðstoðarkona heilbrigðisráðherra og Framsóknarmaður til margra ára, telur að til sé að verða harður kjarni manna í Framsóknarflokknum sem líði ekki gagnrýni og málefnalega umræðu í flokknum. 22.8.2004 00:01