Hundruðum nemenda vísað frá 23. ágúst 2004 00:01
Mörg hundruð nemendur fá ekki vist í framhaldsskólum landsins í haust. Þingmaður Vinstri-grænna segir þetta stríða gegn menntastefnu stjórnvalda þar sem kveðið sé á um að fólk sem horfið hafi frá námi í framhaldsskóla fái tækifæri til þess að taka upp þráðinn að nýju. Lengi vel var útlit fyrir að fjöldi nýnema fengi ekki skólavist í framhaldsskólum landsins í haust. Með byggingum sumarhúsa við tvo framhaldsskóla og viðbyggingu við einn til viðbótar tókst þó að leysa þann vanda. Hins vegar hefur nokkur hundruð eldri nemendum verið synjað um skólavist í framhaldsskólum í haust og sú synjun virðist ætla að standa. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna sem á sæti í menntamálanefnd Alþingis, segir ástandið grafalvarlegt og það bitni á þeim sem síst skyldi, eða ungu fólki sem hafi brotna framhaldsskólamenntun. Það er, krökkum sem hafi einhverra hluta vegna hrökklast úr framhaldsskólanámi en langi nú að hefja nám að nýju. Kolbrún segir það skipta verulegu máli að þessi hópur eigi möguleika á því að taka aftur upp þráðinn. Kolbrún segir það algera nýlundu að fólki með brotna framhaldsskólamenntun sé ekki gefið tækifæri til að taka upp þráðinn á nýjan leik og þar með sé verið að breyta menntastefnunni í landinu. Þetta stríði gegn þeirri stefnu sem verið hefur í gildi og er til skjalfest.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira