Skortur á gangbrautum 23. ágúst 2004 00:01
Víða í höfuðborginni er skortur á gangbrautum. Fjölgun þeirra þarf þó ekki að vera af hinu góða, segir verkfræðingur hjá umhverfis- og tæknisviði Reykjavíkurborgar. Það fer væntanlega ekki framhjá borgarbúum að skólastarf er hafið í borginni, sem og víðar um land. Eitt af því sem brýnt er fyrir ungdómnum þegar skólaganga hefst er að líta til beggja hliða þegar gengið er yfir götur og nota alltaf gangbrautir til verksins. Það kemur því töluvert á óvart að víða um bæinn eru gangbrautir annað hvort ekki til staðar eða þær illa merktar. Til að mynda eru gangbrautir hvorki merktar með skiltum né hvítum strikum í Langarima í Grafarvoginum, þó að víða séu þar hraðahindranir og þrengingar á götum. Á Sundlaugavegi, þar sem nú fara fram miklar framkvæmdir, eru gangbrautir hins vegar merktar með skiltum en strikin vantar á götuna, sem eru jú fyrir börnunum auðkenni gangbrautanna. Baldvin Baldvinsson, verkfræðingur á umhverfis- og tæknisviði Reykjavíkurborgar, segir þrátt fyrir þetta að ekki sé rétt að fjölga hér gangbrautum þar sem rannsóknir sýni að þær geti í ákveðnum tilvikum aukið slysatíðni. Hann vísar í norsku handbókina Trafikksikkerhetshåndboken, sem hann segir talda bestu handbók í Evrópu um umferðaröryggismál, þar sem bent er á að slysatíðni sé yfir meðaltali á vegaköflum á undan og á eftir gangbrautum því þá sé athygli bílstjóra í lágmarki. Að sama skapi sé athygli gangandi vegfarenda oft minni við gangbrautir en ella þar sem þær veiti þeim falska öryggiskennd. Árni Þór Sigurðsson, formaður samgöngunefndar Reykjavíkurborgar, kannast ekki við þær röksemdir sem Baldvin nefnir og segir að ekki hafi farið fram sérstök umræða um gangbrautir í borginni undanfarið. Hins vegar komi saman vinnuhópur í september sem muni fjalla um umferðaröryggi barna.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira