Íbúðalán á lægri vöxtum 23. ágúst 2004 00:01
KB banki býður lán á lægri vöxtum en Íbúðalánasjóður til íbúðakaupa eða endurfjármögnunar á eldri lánum. Ekkert þak er á lánunum en miðað er við að lána ekki meira en sem nemur brunabótamati eignar. Sérfræðingur bankans vill ekki svara því hvort áfram verði boðnir lægstu vextir þegar breytingar verða á vöxtum Íbúðalánasjóðs um mánaðamótin, en segist búast við að lánin leiði til hækkunar á íbúðaverði. Vextir af þessum nýju lánum er 4,4%, en vextir núna hjá Íbúðalánasjóði eru 4,5%. Lánin eru til 25 og 40 ára eins og hjá Íbúðalánasjóði, lánað er fyrir allt að 80% af kaupverði á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri en 60%annars staðar, og er ekkert þak á fjárhæðinni. Þó er ekki lánað fyrir hærri upphæð en nemur brunabótamati eignarinnar. Ein ástæða þess að KB-banki fer út í þessi viðskipti er að bankinn hefur stefnt að því að veita viðskiptavinum sínum heildarþjónustu og með þessari viðbót sé verið að koma henni á segja talsmenn bankans. Með viðbótinni er KB banki í raun kominn í samkeppni við íbúðalánasjóð eða ríkið og segir Helena Jónsdóttir, forstöðumaður hjá KB banka, bankann treysta sér vel í það í krafti stærðar, hagræðingar og annarra hluta sem hann hafi borið úr býtum með aukinni útrás. Eins og fyrr segir eru vextir á lánum Íbúðalánasjóðs núna 4,5%, en frá og með næstu mánaðamótum verða þeir breytilegir og því spurning hvort KB-banki muni elta þá vexti og tryggja lægstu vextina. Helena segir að ákveðið hafi verið að gefa ekki út neitt slíkt loforð og að fyrst þurfi að sjá hvernig markaðurinn þróist í framhaldinu. Til að fá þessi kjör þurfa lántakendur að vera með launareikning hjá KB-banka og tvennt af eftirfarandi: lífeyrissparnað hjá bankanum, greiðslukort eða útgjaldadreifingu. Það gæti verið vísbending um að reyna eigi að krækja í viðskiptavini keppinautanna. Helena viðurkennir það að vissu leyti en segir að markmiðið sé að viðskiptavinir bankans njóti þeirra kjarabóta sem felist í stærðarhagkvæmni, útrás og öðrum slíku. Íbúðalánasjóður var með 305 milljarða útistandandi um síðustu áramót í húsbréfadeild og í maílok voru heildarsjóðsfélagalán lífeyrissjóðanna 93 milljarðar. Ljóst er því að þessi markaður er gríðarlega stór. KB-banki mun, nái hann vænni sneið af þessari köku, fjármagna hana til dæmis með skuldabréfaútgáfu. Það er einnig ljóst að með þessu er komin raunveruleg samkeppni um húskaupendur með einhverjum áhrifum væntanlega á fasteignamarkaðinn. Helena segist ekki vilja setja sig í spámannssæti en segir að það sem hafi gerst á Norðurlöndunum, og KB banki býst við gerist hér, er að íbúðaverð hækki, einfaldlega vegna þess að veðhlutfallið sé orðið hærra og greiðslubyrði lægri. Fólk hafi því líklega tök á því að kaupa dýrara húsnæði en áður.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira