Fólksfjölgun markmiðið 23. ágúst 2004 00:01
Bolvíkingar hafa uppi metnaðarfull áform þessa vikuna en í gær var blásið til ástarviku í bænum. Soffía Vagnsdóttir, oddviti minnihlutans í bæjarstjórn, er í forsvari fyrir hátíðina og segir hún að eitt stórt markmið felist með hátíðahöldunum: að fjölga íbúum Bolungarvíkur. Í maí á næsta ári verði svo fylgst grannt með því hvernig fólk hefur staðið sig. Í gær var 200 hjartalaga gasblöðrum sleppt með ástarkveðju til heimsins frá Bolvíkingum. Leikþáttur í flutningi leikhóps frá Súðavík var einnig sýndur en þar er umfjöllunarefnið samskipti kynjanna. Að því loknu var boðið upp á ástarpunga með rúsínum og heitt kakó. Í kvöld verður samkoma í sundlaug bæjarins þar sem tendruð verða rauð ljós og rómantísk tónlist spiluð. Að henni lokinni verða risastór rauð hjörtu tendruð á einum útivegg íþróttahússins og munu þau loga alla vikuna. Á morgun verður farið í ástargöngutúr þar sem gengið er saman, hönd í hönd. Tónleikar verða á fimmtudaginn með Eyjólfi Kristjánssyni og á laugardaginn verður matarveisla með mjög rómantísku ívafi svo ekki sé meira sagt að sögn Soffíu. Nokkrar vangaveltur eru hins vegar innan bæjarstjórnar Bolungarvíkur hveru mikið þurfi að stækka grunnskólann árið 2011 þegar öll börnin, sem verða til þessa viku, hefja sína skólagöngu. Hægt er að hlusta á viðtal við Soffíu með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira