Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Morðingi laus í London Tuttugu og tveggja ára frönsk kona var myrt í Twickenham-hverfi, í suðvesturhluta Lundúnaborgar í fyrrinótt. Þetta er fimmta árásin af þessu tagi, sem gerð hefur verið í hverfinu, á skömmum tíma. Óttast er að einn og sami maðurinn hafi verið að verki í öll skiptin. 21.8.2004 00:01
Ætla að grípa til aðgerða Framsóknarkonur eru staðráðnar í að grípa til aðgerða vegna óánægju með þingflokk Framsóknarflokksins. Þær felast meðal annars í því að seilast til aukinna áhrifa í flokknum. Talsmaður þeirra segir yfirlýsingu formanns flokksins um breytingar á ríkisstjórninni eftir tvö ár innihaldslitla og vera eins og stormur í vatnsglasi. 21.8.2004 00:01
Ali enn í haldi liðsmanna Sadr Liðsmenn uppreisnarklerksins Múktada al-Sadr hafa Ali-moskuna, í borginni Najaf í Írak, enn á sínu valdi. Viðræður um að afhenda hana æðsta trúarleiðtoga sjíta, al-Sistani, hafa staðið yfir í dag en til átaka kom í nágrenni við moskuna. 21.8.2004 00:01
Olíuverð áhrif á sjávarútveg Hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu getur aukið kostnað íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja um allt að þrjá milljarða króna á þessu ári að sögn Friðriks Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ. Hann segir rekstrargrundvöll margra útgerðarmanna í hættu. 21.8.2004 00:01
3.821 í Reykjavíkurmaraþoni 3.821 maður tók þátt í Reykjavíkurmaraþoni, sem fram fór í blíðskaparveðri í dag, fleiri en nokkru sinni fyrr. Reykjavíkurmaraþon markar upphaf Menningarnætur í Reykjavík. Hlauparar í heilu maraþoni lögðu reyndar af stað klukkan tíu, en rétt fyrir ellefu gátu aðrir hitað upp í takt. 21.8.2004 00:01
Björk óvæntur gestur Mikill mannfjöldi er nú í miðbæ Reykjavíkur þar sem fram fer menningarnótt í níunda sinn. Lögreglan áætlar að allt að 100 þúsund manns verði í bænum í kvöld, líklega fleiri en áður hafa komið saman hérlendis. 21.8.2004 00:01
Góður andi á Menningarnótt ;Ég er búin að þvælast út um allan bæ og hef farið á þá staði þar sem fjöldinn hefur verið þéttastur og ég er hreinlega að rifna úr hamingju. Andinn í bænum er rosalega fínn," sagði Sif Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarnætur, þegar Fréttablaðið ræddi við hana í gærkvöld. 21.8.2004 00:01
Nýr taki við Imam Ali moskunni Harðar árásir, sem gerðar voru í nótt á borgina Najaf í Írak, virðast hafa hrist upp í harðlínuklerknum Múktada al-Sadr. Fulltrúar hans vilja nú að erindrekar æðsta klerks Íraks, al-Sistani, taki við stjórn Imam Ali moskunnar í Najaf, þar sem al-Sadr hefur haldið til. 20.8.2004 00:01
Fartölvustuldur færist í vöxt Þjófnaður á fartölvum færist í vöxt í upphafi skólaárs og beinir lögregla þeim tilmælum til fólks að skilja fartölvur sínar ekki eftir í mannlausum bílum. Í morgun var tveim fartölvum stolið í Reykjavík. . 20.8.2004 00:01
Fimm látast í Fallujah Fimm hið minnsta fórust í sprengjuárásum á borgina Fallujah í Írak í nótt, en þar hefur andspyrna verið mikil frá upphafi. Árásirnar hófust á ný í morgun. Raunar hafa bandarískar orrustuvélar varpað sprengjum á borgina nánast daglega undanfarna viku. Fallujah er ein meginbækisstöð andspyrnu og skæruliða í Írak, en það eru einkum Súnnítar sem þar búa. 20.8.2004 00:01
Læknar aðstoða við pyntingar Prófessor við Háskólann í Minnesota í Bandaríkjunum segir lækna hafa aðstoðað fangaverði við pyntingar á föngum í Abu Graib fangelsinu. Hann segir ákveðna lækna hafa falsað dánarúrskurði, til þess að hylma yfir morð og pyntingar á föngum. 20.8.2004 00:01
Vinna skítverk fyrir Bush John Kerry, forsetaefni Demókrata, segir þann hóp manna sem heldur uppi áróðri um að hann hafi ekki særst í Vietnamstríðinu vera að vinna skítverk fyrir Bush forseta. Hann segir áróðursherferðina kostaða af repúblikana frá Texas 20.8.2004 00:01
Mannlaus vörubíll rann tugi metra Tæplega níu tonna mannlaus vörubíll með tengivagni rann tugi metra fyrir ofan Smárlind í gærkvöldi, en stöðvaðist þar sem tengivagninn snerist og ölli því ekki tjóni. Bílstjóri vörubílsins yfirgaf bílinn rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi og gleymdi að setja stöðuhemla á hann, með þeim afleiðingum að bíllinn rann af stað, að sögn lögreglunnar í Kópavogi. 20.8.2004 00:01
Reykur í farþegarými 168 farþegar spænskrar leiguflugvélar urðu að flýja út um neyðarútganga eftir að mikill reykur myndaðist í farþegarými vélarinnar í morgun. Vélin var á brautarenda á flugvellinum í Köln í Þýskalandi og var við það að taka á loft þegar reykurinn fyllti farþegarýmið. 20.8.2004 00:01
Fellibylur og flóð í Japan Fellibylurinn Megi skall með offorsi á norðurströnd Japans í morgun. Stormurinn olli uppnámi í samgöngum, rafmagnsleysi og flóðum. Megi hefur undanfarna þrjá daga valdið miklu uppnámi í Suður-Kóreu og hluta Japans, en alls er talið að þrettán hafi farist í ofsaveðrinu. 20.8.2004 00:01
77 létust á sólarhring 77 manns hið minnsta hafa farist í hörðum árásum á skotmörk í Najaf í Írak undanfarinn sólarhring. Harðlínuklerkurinn Múktada al-Sadr er þar í skotlínu írakskra og bandarískra sveita. 20.8.2004 00:01
Olíuverð hækkar um 59% á ári Olíuverð stefnir yfir fimmtíu dollara í dag. Í gærmorgun var verðið á olíufati um 47 dollarar. Um hádegisbil var það orðið 47 dollarar og 50 sent, og þegar viðskiptum var hætt á markaði í gær var verðið á olíufati komið upp í 48 dollara og 98 sent. 20.8.2004 00:01
Tölvukerfi maraþons hrundi Aðstandendur Reykjavíkurmaraþons urðu fyrir því óláni í morgun að tölvukerfi, sem heldur utan um skráningu keppenda, hrundi. Af þeim sökum verður ekki unnt að byrja að afhenda keppendum gögn nú á hádegi, eins og til stóð, og frestast það til klukkan tvö. 20.8.2004 00:01
Harward og Princeton bestir Harward og Princeton eru bestu háskólar Bandaríkjanna fyrir grunnnám, samkvæmt nýrri rannsókn fréttatímaritsins US News and World Report. Yale og háskólinn í Pennsilvaníu fylgja fast á hæla þeim. 20.8.2004 00:01
Munu fara í skaðabótamál Erfingjar Halldórs Laxness, hafa í engu breytt þeirri ákvörðun sinni að fara í skaðabótamál við Hannes Hólmstein Gissurarson. Héraðsdómur Reykjavíkur bannaði í gær siðanefnd Háskóla Íslands að fjalla um kæru erfingja Halldórs Laxness, á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni 20.8.2004 00:01
Clinton hittir íslenska ráðamenn Bill Clinton mun hitta íslenska ráðamenn á þriðjudaginn kemur, þegar hann verður hér á landi ásamt eiginkonu sinni og sendinefnd Bandaríkjaþings. Leynd hefur ríkt yfir því hvað Clinton-hjónin hyggðust gera hér á landi á þriðjudaginn, en eins og Stöð 2 og Bylgjan hafa greint frá verða þau hér í tengslum við heimsókn sendinefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings. 20.8.2004 00:01
Slæmt fyrir jafnréttirbaráttuna Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir Framsóknarflokkinn hafa tekið skref aftur á bak í jafnréttisbaráttu kynjanna og það eigi eftir að kosta flokkinn fylgi í næstu kosningum. Brotthvarf Sivjar Friðleifsdóttur úr ráðherrastóli veiki ríkisstjórnina og hugmyndir um frekari breytingar á ráðherraliði flokksins haldi óvissu innan Framsóknarflokksins gangandi. 20.8.2004 00:01
Hættir þátttöku í þjóðfélagsumræðu Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður, segir að ef hann fái embætti hæstaréttardómara, muni hann hætta allri þátttöku í þjóðfélagsumræðunni. Hann hefur um árabil tekið virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, og verið þar með hvassari pennum. Hann hefur einnig verið eftirsóttur álitsgjafi hjá öllum fjölmiðlum landsins. 20.8.2004 00:01
Óeðlilegir viðskiptahættir Framkvæmdastjóri Skólavörubúðarinnar segir óeðlilega viðskiptahætti stundaða í verslun skólavöru. Ákveðnir aðilar selji vörur sem teknar eru fyrir í verðkönnunum á mjög lágu verði til þess að ná sér í fyrirsagnir. 20.8.2004 00:01
Arðsemi menntunar á Íslandi Háskólamenntun kvenna er sú menntun sem skilar mestri arðsemi samkvæmt nýrri skýrslu frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Í skýrslunni, sem unnin var af Jóni Bjarka Bentssyni og Þórhalli Ásbjörnssyni kemur fram að háskólanám skilar konum tæplega 11% einkaarðsemi, en körlum aðeins rúmum fimm prósentum. 20.8.2004 00:01
Enn átök við Imam Ali moskuna Átök halda áfram við Imam Ali moskuna í Najaf, þrátt fyrir yfirlýsingu stjórnvalda í Írak að lögregla hafi moskuna í haldi. Þá neita einnig talsmenn sjíta klerksins al-Sadr að lögreglan sé inní moskunni. 20.8.2004 00:01
Hlægilegt að halda úti herstöð Einum virtasta dálkahöfundi Bandaríkjanna finnst það nánast hlægilegt að halda úti herstöð á Íslandi. Charles Krauthammer skrifar fyrir blöð eins og Washington Post og Time. Í Washington Post, í dag, fjallar hann um þá ákvörðun Georges Bush að flytja tugþúsundir bandarískra hermanna frá herstöðvum sem þeir manna nú. 20.8.2004 00:01
Virkjunin rannsökuð og metin Stærsta virkjanaverkefni Íslands til þessa , Kárahnjúkavirkjun, verður rannsakað og metið af vísindamönnum. Þetta kom fram á kynningu sem haldin var á Egilsstöðum í tengslum við fund norrænu félagsmálaráðherranna. 20.8.2004 00:01
Endurnýjanleg orka í brennidepli Umhverfisráðherrar Norðurlanda verða með endurnýjanlega orku í brennidepli, nýjar orkulindir og baráttuna gegn loftslagsbreytingum, þegar þeir hittasta í Reykjavík í næstu viku. 20.8.2004 00:01
Mikið um að vera Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, býður leikhúsgestum upp á hlaðborð full af kræsingum í vetur. Leikfélagið sjálft verður með fjórar frumsýningar, og auk þess verða fjórar gestaleiksýningar, þar af ein frá Hollandi. 20.8.2004 00:01
Trúa á tengsl Saddams og al-Kaída Rúmur þriðjungur Bandaríkjamanna telur að Írakar hafi verið í nánum tengslum við al-Kaída fyrir innrás Bandaríkjahers og bandamanna þeirra samkvæmt nýrri könnun. Þar kemur einnig fram að fimmtán prósent þeirra telja að Íraksstjórn hafi átt beina aðild að hryðjuverkaárásunum í New York og Washington 11. september 2001. 20.8.2004 00:01
Ruglað saman við hryðjuverkamann Edward Kennedy er einn frægasti stjórnmálamaður Bandaríkjanna en það dugar ekki til að koma í veg fyrir að honum sé ruglað saman við hryðjuverkamann og lendi þar af leiðandi í vandræðum með að ferðast með flugi innan Bandaríkjanna. 20.8.2004 00:01
Dæmdur í 15 mánaða fangelsi Héraðsdómur í Reykjavík dæmdi í dag mann í 15 mánaða fangelsi fyrir margvísleg brot. Brot mannsins voru meðal annars þau að hann rændi söluturn á Laugarvatni, og ógnaði afgreiðslustúlku þar, með rörtöng. Hann stal einnig bíl í Reykjavík, og ók honum undir áhrifum eiturlyfja. 20.8.2004 00:01
Slökkvistarfi lokið við Smáralind Greiðlega gekk að slökkva eld sem kom upp í vesturenda Smáralindar rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Eldurinn kom upp í klæðningu utaná húsinu en reyndist vera minniháttar. Ekki er vitað nánar um eldsupptök. 20.8.2004 00:01
Al-Sadr horfinn úr moskunni Mikil óvissa ríkir um ástandið í íröksku borginni Najaf. Fyrr í dag var því haldið fram að írakska lögreglan væri komin inn í Imam Ali moskuna og að uppreisnarmenn hefðu yfirgefið hana og verið handteknir. 20.8.2004 00:01
Tólf Nepölum rænt í Írak Íslamskur hryðjuverkahópur, sem kallar sig her Ansar al-Sunnar, hefur rænt tólf verkamönnum frá Nepal vegna samvinnu þeirra við Bandaríkjaher í Írak. Yfirlýsing kom frá hópnum þar sem nöfn mannann tólf voru birt. 20.8.2004 00:01
Bát stolið í Hafnarfirði Bát var stolið í Hafnarfirði að kvöldi þriðjudags, eða aðfaranótt miðvikudags. Báturinn var af tegund SELVA 5,5 og var hvítur að lit. Utanborðsmótor var á bátnum og lítið plasthús. 20.8.2004 00:01
Kostnaður eykst um 2,4 milljarða Landssamband íslenskra útvegsmanna telur að hækkað markaðsverð á olíu kunni að fela í sér kostnaðarauka upp á 2,4 milljarða fyrir íslenska útgerð á ársvísu. 20.8.2004 00:01
Segir engar gleiðlinsur notaðar Arkitekt sem vann að kynningarbæklingi fyrir bæjarstjórn Seltjarnarness, vegna fyrirhugaðra blokkabygginga þar, segir að engar gleiðlinsur hafi verið notaðar við tökurnar. Stöð 2 sýndi mynd í fréttum af fyrirhuguðum blokkum á Seltjarnarnesi. 20.8.2004 00:01
Ekki allir ósáttir við biðlista Lögmálið um framboð og eftirspurn gildir í heilbrigðiskerfinu jafnt sem annars staðar og þurfa stjórnendur ríkissjúkrahúsa því að vera vakandi fyrir þeim sem hag hafa af því að skapa langa biðlista. Þetta segir Jeremy Hurst, sérfræðingur OECD í heilsuhagfræði, sem benti á þá staðreynd að ekki tapa allir á löngum biðlistum. 20.8.2004 00:01
Ávirðingar ganga á víxl Ávirðingar ganga á víxl á milli forsetaframbjóðendanna Kerrys og Bush í Bandaríkjunum. Kerry svarar nú fullum hálsi auglýsingum þar sem hann er sagður ljúga til um eigin hetjudáðir í Víetnamstríðinu, og segir Bush standa fyrir óhróðursherferð. 20.8.2004 00:01
Menningarnótt hefst á morgun Menningarnótt er fyrir löngu orðinn einn vinsælasti viðburður ársins. Hátt í 100 þúsund manns hafa lagt leið sína í miðbæinn þennan dag, og má segja að um nokkurskonar fjölskyldkarnival sé að ræða frá morgni til kvölds. 20.8.2004 00:01
Olían hækkar enn Olíuverð var síðdegis komið upp í 49 dollara og 29 sent. Átökin í Írak eru sögð meginástæða hækkana í dag. Hækkunin frá því í lok júní nemur alls 33 prósentum. Vegna skemmdarverka og árása hefur olíuútflutningur Íraks minnkað um tæpan helming frá því í apríl. 20.8.2004 00:01
Jón Steinar hefur þegar sótt um Jón Steinar Gunnlaugsson hefur þegar skilað inn umsókn um stöðu Hæstaréttadómara, þótt umsóknarfrestur renni ekki út fyrr en eftir viku. Ragnar H. Hall, sem Hæstiréttur taldi, ásamt Eiríki Tómassyni, heppilegastan til að fá stöðu dómara í fyrra, ætlar ekki að sækja um stöðuna, enda virði ráðherra ekki stjórnsýslureglur um stöðuveitingar. 20.8.2004 00:01
Ákæra gegn boxurum tekin fyrir Ákæra gegn tveimur fyrrverandi landsliðsmönnum í hnefaleikum var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Mennirnir reyndu að smygla rúmlega 300 grömmum af kókaíni til landsins í lok síðasta árs. Annar mannanna er fluttur úr landi, en verjandi hans segir hann ekki á flótta undan réttvísinni. 20.8.2004 00:01