Fleiri fréttir

Hraðbraut í gegnum Grafarvog

Horft er til þess að tengja Hallsveg í Grafarvogi við Vesturlandsveg og tvíbreikka þegar nýtt hverfi við Úlfarsfell rís. Hallsvegur verður lengdur frá Fjallkonuvegi niður á Víkurveg á næsta ári, segir Árni Þór Sigurðsson formaður samgöngunefndar Reykjavíkurborgar. Verkið verði boðið út um áramót

Kergja innan Framsóknar

Margir flokksmenn Framsóknarflokks eru afar ósáttir við þær málalyktir að Siv Friðleifsdóttur sé gert að láta af embætti umhverfisráðherra í september. Þeir óttast að vegna þessa eigi enn eftir að hrynja af litlu fylgi flokksins. Framsóknarkonur funda í Iðnó í dag og ræða næstu skref.

Vonbrigði án smásala

Heilbrigðisráðherra lýsir vonbrigðum með að lyfjasmásalar velti afleiðingum sparnaðaraðgerða ríkisins yfir á sjúklinga. Verið sé að setja af stað nefnd sem hafi það hlutverk með höndum að endurskoða lyfjalögin, meðal annars með tilliti til endurbóta á rekstrarumhverfi apótekanna.

Helgidómurinn yfirgefinn

Mahdisveitir Muqtada al-Sadr fjarlægðu öll vopn sín úr mosku Imam Ali eftir að samkomulag náðist við helsta leiðtoga sjíamúslima um að hann tæki að sér stjórn og umsjón moskunnar. </font /></b />

Tólf dánir í ofsaveðri í Asíu

Tólf hafa farist í ofsaveðri í Asíu undanfarinn sólarhring en fellibylurinn Megi gekk þá yfir Suður-Kóreu og Japan. Flytja þurfti þrjú þúsund manns frá heimilum sínum. Reyndar er Megi enn á leiðinni til Japans og á undan honum kemur hellirigning með miklu hvassviðri sem þegar hefur valdið vandræðum og mannfalli.

Gylfi Þ. Gíslason látinn

Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi prófessor, alþingismaður og ráðherra, er látinn á áttugasta og áttunda aldursári.

60 mannns í sjálfheldu í Skotlandi

Þyrlur þurfti til að bjarga nærri sextíu manns sem lentu í sjálfheldu eftir að skriður féllu á þjóðveg í Skotlandi í gær. Tvær skriður lokuðu um tuttugu bíla inni og segja björgunarmenn það mikla mildi að enginn skyldi slasast eða verða fyrir skriðu.

Jafnréttisáætlun verði höfð í huga

Stjórn Framsóknarfélagsins í Reykjavíkurkjördæmi-suður hefur sent frá sér ályktun þar sem lögð er áhersla á að jafnréttisáætlun flokksins frá 1996 verði höfð í huga þegar ráðherraskipti eiga sér stað þann 15. september næstkomandi.

Tvö óþekkt tungl Satúrnusar

Geimfarið Cassini, sem er á sporbraut um Satúrnus, hefur sent nýjar myndir heim og getur þar að líta tvö áður óþekkt tungl. Þar með er fjöldi tungla Satúrnusar orðinn þrjátíu og þrjú og enn er verið að leita fleiri.

Dýr myndi páfi allur

Ferð Jóhannesar Páls páfa annars til Lourdes virðist ekki ætla að verða til fjár. Alla vega ekki fyrir kaþólsku kirkjuna á svæðinu sem er skuldum vafin eftir heimsóknina sem kostaði hana vel yfir hundrað milljónir króna.

Jesús var fyrsti demókratinn

"Hafi einhvern tíma verið til vinstrimaður sem hugsaði með hjartanu var það Jesús Kristur. Ég held að trésmiðurinn frá Galíleu hafi verið fyrsti demókratinn," sagði James C. Moore á ráðstefnu miðju- og vinstrisinnaðra kristinna manna þar sem þeir ræddu stjórnmál og trúmál.

Fimm sprengingar í Najaf

Fimm háværar sprengingar heyrðust skammt frá Iman Ali moskunni í Najaf fyrr í morgun en harðlínuklerkurinn Muqtada al-Sadr samþykkti í gær að hverfa þaðan ásamt fylgismönnum sínum. Sjónarvottar segja að leyniskyttur hafi verið á sveimi á svæðinu.

Sharon beið lægri hlut

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, beið lægri hlut í atkvæðagreiðslu Likud-flokksins í gær en flokksmenn höfnuðu því að leyfa Sharon að mynda samsteypustjórn með Verkamannaflokknum. Þetta er áfall fyrir Sharon og gæti hindrað framgang áætlana um brotthvarf frá Gasa-ströndinni.

Árás verður gerð á al-Sadr

Árás verður gerð á harðlínuklerkinn Muqtada al-Sadr og menn hans í Najaf, yfirgefi þeir ekki Iman Ali moskuna þar innan nokkurra stunda. Þetta segja talsmenn írakskra stjórnvalda.

Fuglaflensa í Malasíu

Fuglaflensa er komin á kreik enn á ný. Hundruð kjúklinga voru drepin í Malasíu í morgun þar sem fuglaflensa greindist þar í fyrsta sinn. Þetta er gert til að reyna að hefta frekari útbreiðslu veikinnar. Tuttugu og sjö hafa farist í Suðaustur-Asíu vegna fuglaflensu í ár.

Kviknaði út frá rafmagni

Líklegt er að eldurinn í húsakynnum Vélsmiðju Orms og Víglundar við Kaplahraun í gærkvöldi hafi kviknað út frá rafmagni, að því er fréttavefur Víkurfrétta greinir frá. Einn erlendur verkamaður var nærstaddur þegar eldurinn kviknaði.

2400 manns yfirgefa heimili sín

Yfir 2400 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í suðurhluta Suður-Kóreu vegna fellibylsins Megi sem náð hefur ströndum landsins. Þá hefur fjölda flugferða, siglinga og lestarferða verið aflýst í landinu vegna mikilla rigninga og öflugra vinda. Megi hefur þegar farið yfir Japan þar sem sjö manns létu lífið vegna bylsins.

Olíuverð komið í 47,50 dollara

Olíuverð er nú komið yfir 47 dollara og 50 sent á fatið og nú er ástæðan sögð vísbendingar um enn meiri eldsneytisþörf í Kína og Indlandi. Undanfarna fimmtán daga hefur olíuverð náð nýju, sögulegu hámarki fjórtán sinnum og verðhækkunin nemur um tíu dollurum á fatið frá því í lok júní. Það er tuttugu og átta prósenta hækkun.

Uffizi-safninu í Flórens lokað?

Hætt er við að loka verði hinu fræga Uffizi-safni í Flórens á Ítalíu. Til stendur að skera fjárveitingar til safnsins niður um fjórðung, eins og til annarra safna og fornleifaverkefna. Menningarmálaráðherra Ítalíu segir niðurskurðinn svo umfangsmikinn að vart verði hægt að halda Uffizi-safninu opnu.

Clintonhjónin kynna sér orkulindir

Hillary og Bill Clinton koma hingað til lands í heimsókn í næstu viku og eiga fundi með Íslendingum. Þau eru á ferð með sendinefnd bandarískra þungavigtarþingmanna.

Ögurstund í Najaf

Komið er að ögurstundu í borginni Najaf í Írak. Þolinmæði stjórnvalda gagnvart Muqtada al-Sadr er á þrotum og árás yfirvofandi. Hann vill hins vegar viðræður. 

Getur ekki fjallað um málið

Siðanefnd Háskóla Íslands getur ekki tekið til umfjöllunar mál aðstandenda Halldórs Laxness vegna bókar Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um skáldið. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í morgun lögbann á hendur siðanefndarinnar vegna málsins. Þetta þýðir þó ekki að málaferlum vegna bókarinnar sé lokið.

Upplausnarástand í Ísrael

Upplausnarástand er í ísraelskum stjórnmálum eftir að flokksfélagar í Likud-flokki Ariels Sharons höfnuðu hugmyndum hans um samsteypustjórn með Verkamannaflokknum. Sharon hyggst þrátt fyrir þetta reyna að mynda stjórn en leiðtogar Verkamannaflokksins telja kosningar óumflýjanlegar.

Árni verði áfram

Árni Magnússon á ekki að víkja úr ráðherrastóli 15. september næstkomandi segja Framsóknarmenn í Reykjavíkurkjördæmi - norður. Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis - suður sendi hins vegar frá sér ályktun í dag þar sem skorað er á flokksforystu Framsóknar að virða jafnréttisáætlun flokksins.

22 hið minnsta létust á Flórída

Nú er ljóst að að minnsta kosti 22 hafa látið lífið í Flórída af völdum fellibylsins Charleys og tæplega 400 þúsund manns eru án rafmagns. Þá eru þúsundir heimilislausir eftir hamfarirnar. Fellibylurinn gekk yfir Flórída um síðustu helgi eftir að hafa áður valdið miklum usla á Kúbu. Tjónið er metið á tugi milljarða íslenskra króna. 

Borg borgar skatt

Tennisgarpurinn Björn Borg hefur gefist upp í baráttu sinni gegn sænskum skattayfirvöldum. Borg hefur búið í Monte Carlo undanfarin fimmtán ár en sænski skatturinn lítur svo á að hann hafi frá því í október 2002 búið í Stokkhólmi ásamt nýrri eiginkonu sinni og syni.

Al-Sadr fær lokafrest

Iyad Allawi, sem gegnir stöðu forsætisráðherra Íraks, hefur gefið öfgaklerknum Muqtada al-Sadr lokafrest til að yfirgefa Imam Ali moskuna í Najdaf og fyrirskipa hersveitum sínum að leggja niður vopn. Al-Sadr hafði fallist á vopnahlé í gær en setti síðan fram ýmsar kröfur sem ekki var hægt að ganga að. 

Kanadískir gullgrafarar á Ísafirði

Gullgrafarar frá Kanada og ferðaþjónusta í Bretlandi nýta sér nálægð Ísafjarðar við Austur-Grænland og leigja flugvél frá Ísafjarðaflugvelli að því er fréttavefur Bæjarins besta greinir frá í dag. Þá eru til taks tvær Twin-Otter vélar sem fara að meðaltali eina ferð í viku yfir sumartímann.

Skemmtiferð á línuskautum

Nokkrir frumkvöðlar hafa ákveðið að skipuleggja skemmtiferð á línuskautum á sama tíma og Reykjavíkurmaraþonið fer fram næstkomandi laugardag. Þetta kemur í kjölfar þess að skipuleggjendur Reykjavíkurmaraþonsins ákváðu að blása af línuskautahlaupið í ár sem átti að fara fram samhliða maraþoninu líkt og undanfarin ár.

Framsóknarflokkurinn fundar

Núna klukkan fjögur hófst þingflokksfundur Framsóknarflokksins þar sem væntanlega verður tilkynnt um breytingar á ráðherraliði flokksins. Sem kunnugt er eftirlætur Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokknum umhverfisráðuneytið í næsta mánuði þannig að Siv Friðleifsdóttir hættir sem umhverfisráðherra.

Uggandi vegna Bandaríkjahers

Sumir íranskir herforingjar telja réttast að verða fyrri til að láta til skarar skríða ef þeir telja hættu á að Bandaríkjamenn komi til með að gera árás á Íran. Þetta sagði Ali Shamkhani, varnarmálaráðherra Írans, í viðtali á Al-Jazeera sjónvarpsstöðinni.

Efnir ekki loforðið

Þrátt fyrir loforð sín um að vinna gegn spillingu í palestínsku heimastjórninni hefur Jasser Arafat neitað að staðfesta löggjöf sem er ætlað að sporna gegn spillingu.

Siv víkur úr ríkisstjórn

Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra mun víkja úr ríkisstjórn þann 15. september næstkomandi þegar Sjálfstæðismenn taka við umhverfisráðuneytinu. Þetta var tilkynnt eftir þingflokksfund Framsóknarflokksins sem lauk rétt áðan.

Fortíð föðurins reyndist dýrkeypt

Syndir feðranna geta enn reynst mönnum erfiðar. Það fékk Shin Ki-nam, leiðtogi Uri-flokksins sem er við völd í Suður-Kóreu, að reyna. Hann hefur nú neyðst til að segja af sér í kjölfar ásakana um að hafa reynt að breiða yfir störf föður síns fyrir japanska hernámsveldið.

Spáðu þvert á úrslit

Útgönguspá sem bandarískt fyrirtæki gerði meðan kosningarnar í Venesúela voru enn í fullum gangi er nú í miðdepli deilna um hvort brögðum hafi verið beitt til að tryggja Hugo Chavez forseta áframhaldandi völd. Samkvæmt spánni vildu 59 prósent kjósenda binda enda á kjörtímabil forsetans en talning atkvæða sýndi að 59 prósent vildu hafa hann áfram.

Górilla eignaðist tvíbura

"Þetta er kraftaverki líkast því górillurnar eru í útrýmingarhættu," sagði Fidelle Ruzigandekwa, yfirmaður Náttúrulífsstofnunar Rúanda, eftir að fjallagórilla fæddi tvíbura. Þetta er aðeins í þriðja skipti í sögunni sem það gerist, svo vitað sé til.

Olíuleit við Færeyjar

Bjarni Djurholm, viðskipta- og iðnaðarráðherra Færeyja, hefur samþykkt að leyfi til olíuleitar við Færeyjar verði veitt. Umsóknarfrestur er til nóvemberloka og verða leyfin veitt í janúar.

Máli Khodorkovskýs ekki vísað frá

Dómstóll í Moskvu hafnaði því í dag að vísa frá máli sem höfðað hefur verið gegn Mikhaíl Khodorkovský, einum ríkasta manni Rússlands. Khodorkovský, sem var forstjóri Yukos olíurisans, hefur verið í haldi lögreglu og er ákærður fyrir svik. Lögmenn hans segja málið eiga sér pólitískar rætur.

Flóttamönnum forðað frá lífshættu

Lögreglan í Síerra Leóne stöðvaði í dag 500 flóttamenn sem ætluðu að sigla á manndrápsfleytu til Kanaríeyja. Yfirvöld í Sierra Leone, Gíneu og Spáni stóðu saman að aðgerðinni en talsmaður lögreglunnar segir skipið vera gamalt, óhæft til siglinga og ætti að fara beint í niðurrif.

Hundur át 380 evrur

Kona nokkur í Þýskalandi hélt að hún hefði verið rænd þegar kom að bíl sínum í dag í borginni Aschaffenburg í vesturhluta landsins. Í bílnum var hundur hennar ælandi og 380 evrur sem voru í bílnum voru horfnar.

Leynd yfir heimsókninni

Bill og Hillary Clinton koma hingað til lands á þriðjudaginn en ennþá virðist algjört leyndarmál hvað þau ætla sér að gera. Þingmannanefndin sem Hillary er í för með, ætlar hins vegar að kynna sér umhverfisvæna orku og hugmyndir um notkun vetnis hér á landi.

Lokaárás yfirvofandi

Lokaárás er yfirvofandi í Najaf í Írak þar sem harðlínuklerkurinn al-Sadr ögrar stjórnvöldum og neitar að gefast upp. Orrustuþotur og skriðdrekar láta sprengjum rigna í kringum Imam Ali moskuna þar sem al-Sadr heldur til.

Tekjumunur landshluta mikill

Svo virðist sem tekjumunur milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar hafi fest sig í sessi á undanförnum árum. Nú eru skattgreiðendur á höfuðborgarsvæðinu með um fimm prósent hærri tekjur en landsmeðaltal en landsbyggðarfólk er að meðaltali tíu prósentum undir meðaltali.

Krefst fangelsisdóms

Sækjandi, í máli gegn Þjóðverja sem verið hefur verið í farbanni grunaður um manndráp af gáleysi, fór fram á maðurinn yrði dæmdur í fangelsi. Þjóðverjinn ók ölvaður bíl sem hann velti á Krísuvíkurvegi 24. júlí síðastliðinn, einn farþeganna í bílnum lést af áverkum sínum fimm sólarhringum eftir slysið.

Hannes vann lögbannsmálið

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að siðanefnd Háskóla Íslands væri óheimilt að fjalla um kæru, dætra Halldórs Laxness, á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni vegna ritunar hans á fyrsta bindi ævisögu Halldórs Laxness, áður en niðurstaða fæst hjá dómstólum um frávísunarkröfuna.

Sjá næstu 50 fréttir