Innlent

Fáar nauðganir verða að dómsmálum

Hvorug tilkynningin um nauðgun um síðustu verslunarmannahelgi hefur enn leitt til ákæru. Þó náðust ljósmyndir af öðru tilvikinu. Tilkynntar nauðganir um verslunarmannahelgina 2001 voru 21 en fáar ef nokkur enduðu með dómsmeðferð. Um síðustu verslunarmannahelgi voru tvær nauðganir tilkynntar. Bára Benediktsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Neyðarmóttöku segir annað málið hafa verið kært og sé það enn í dómskerfinu. Hitt tilvikið hafi ekki verið kært. Hún telur mikla sönnunarbyrði kvenna vera eina af ástæðunum fyrir því að svo fáar nauðganir komist í gegnum dómskerfið. Hún segir að í nauðgunarmálinu frá því í fyrra hafi verið sterkar sannanir. Lögreglan í Vestmannaeyjum upplýsir að atburðurinn hafi verið tekinn upp á myndband og teknar hefðu verið ljósmyndir sem var meðal annars dreift á netinu. Málið hefur enn ekki verið sent til saksóknara.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×