Erlent

Skæruliðar segja fangelsun ótæka

Salvatore Manusco, leiðtogi kólumbískra skæruliða hélt ræðu á kólumbíska þinginu í gær og sagði það ólíðandi að nokkur manna sinna þyrfti að sæta fangavist. Skæruliðahópar Manusco hafa átt í átökum við aðra hópa í Kólumbíu í tæpan aldarfjórðung og hefur ríkisstjórnin sett sér það markmið að komast að málamiðlun á næsta hálfa ári og að skæruliðahópar afvopnist ekki síðar en árið 2006. Liður í friðarferlinu er ákvæði í lagafrumvarpi sem felur í sér að skæruliðar sitji í fangelsi í fimm til tíu ár. Það þykir skæruliðum alltof langur tími en mannréttindasamtök segja forkastanlegt að refsingin sé ekki harðari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×