Innlent

Allt að 270 % verðmunur

Allt að 270 prósenta verðmunur reyndist á sömu vörutegundinni á milli verslana, í verðkönnun, sem Fréttablaðið gerði á höfuðborgarsvæðinu í gær, en 46 prósenta munur var á heilli matarkörfu með fimmtán vörutegundum í. Matarkarfan var ódýrust í Bónus en dýrust í 10-11. Mestur var verðmunurinn á grænmeti, til dæmis 100 prósenta munur á tómötum, en jöklasalatið sló öll met með 270 prósenta verðmun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×