Flutti líkið í póstpoka 29. júlí 2004 00:01
Hákon Eydal flutti líkið af fyrrverandi sambýliskonu sinni, Sri Rhamawati, í póstpoka úr næloni, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Þar er sagt að atvikið tengist ekki fíkniefnanotkun og að ástæðan hefði verið bæði langvarandi og skyndileg. Í tilkynningu lögreglunnar eru málavextir reifaðir í stórum dráttum. Lögreglu var tilkynnt um hvarf Sri Rhamawati að kvöldi mánudagsins 5.júlí og rannsókn hófst strax að morgni þriðjudagsins 6. júlí. Fljótlega vöknuðu grunsemdir um refsivert athæfi og að ekki væru eðlilegar skýringar á hvarfi hennar. Eftir ítarlega vettvangsrannsókn strax um morguninn, í íbúð þar sem síðast er vitað um hana, var barnsfaðir hennar og fyrrum sambýlismaður handtekinn. Daginn eftir var hann leiddur fyrir dómara og gerð krafa um gæsluvarðhald sem dómari féllst á. Það var síðan framlengt að kröfu lögreglu til 11. ágúst n.k. Í tilkynningu lögreglu segir að frá upphafi hafi verið unnið markvisst að rannsókn málsins, rætt hefði verið við fjölda fólks og hugsanleg vitni. Leit hefur farið fram á nokkrum stöðum og hefur lögregla notið aðstoðar björgunarsveita, m.a. sérhæfðra leitarhópa, og þakkar lögreglan Landsbjörgu gott liðssinni. Þyrla hefur verið notuð til að skoða ákveðin svæði. Lögreglumenn með leitarhunda hafa farið um á völdum stöðum og loks hafa lögreglumenn skipulega farið um staði í nágrenni Reykjavíkur. Lögreglan segir þetta alvarlegt mál og því hafi fyrstu dagarnir verið mjög mikilvægir fyrir frumrannsókn málsins. Lögregla þurfi að eiga það mat hvenær tímabært sé að skýra frá einstökum atvikum í rannsókninni svo og að ákveða hvaða upplýsingar eru veittar. Svo sem komið hefur fram í fréttum fundust lífsýni við vettvangsrannsókn og voru þau send til rannsóknar á rannsóknarstofu í Noregi. Niðurstöður voru þær að þau voru úr Sri Rhamawati. Þann 27. júlí benti hinn handtekni á staðinn, sem hann sagðist hafa komið líkinu af Sri Rhamawati fyrir. Áður hafði verið leitað í tvígang á því svæði. Þann 28. júlí játaði hann fyrir lögreglu að hafa orðið Sri Rhamawati að bana með barefli í íbúð sinni að morgni sunnudagsins 4. júli. Ástæðan var bæði langvarandi og skyndileg. Hann hafi í framhaldi af því sett líkið í stóran drapplitaðan sænskan póstpoka úr næloni, fært það í bifreið sína og ekið því á þann stað, sem hann hafði þegar bent á við sunnanvert Kjalarnes. Atvikið tengist hvorki vímuefnanotkun af hálfu þess handtekna né öðrum getgátum, sem ýjað gæti hafa verið að. Kafarar frá lögreglunni í Reykjavík og sérsveit Ríkislögreglustjóra með góðu liðsinni kafara frá Landsbjörgu hafa skoðað hafsbotninn utan við staðinn. Þá hafa liðsmenn Landsbjargar gengið fjörur í tvígang, en án árangurs hingað til. Verið er að gera ráðstafanir til að kanna og meta rek og stefnu hafstrauma á svæðinu og munu frekari aðgerðir þar taka mið af þeirri niðurstöðu.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Innlent Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Innlent Féll tíu metra við foss á Snæfellsnesi Innlent Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Innlent Fleiri fréttir Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll tíu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Líkamsárásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Vinnur fallega muni úr íslenskum trjám ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Sjá meira