Innlent

Búlgarskir hælisleitendur

Búlgörsk hjón með tvö börn komu með Norrænu í gær og sóttu um hæli á Íslandi. Hjónin gáfu sig fram við lögreglu um hádegisbil og var skýrsla tekin af þeim í kjölfarið. Þeim til halds og þings var fulltrúi frá Rauða krossinum á Seyðisfirði. Mál þeirra var svo sent til Útlendingastofu sem tekur endanlega ákvörðun um framhaldið. Að sögn Georgs Lárussonar sækja að jafnaði um tíu manns á mánuði um hæli á Íslandi en það sem af er árinu hafa tíu manns sem hafa komið með Norrænu sótt um hæli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×