Erlent

Fá áfram að selja olíu

Rússneski olíurisinn Yukos fær áfram að framleiða og selja olíu þrátt fyrir fyrri kröfur dómsvalda um að öll sala á afurðum fyrirtækisins yrði stöðvuð. Dómsmálaráðuneytið rússneska sagði bannið ekki ætlað að stöðva olíuframleiðslu Yukos. Þar með líkur nokkurri óvissu sem hefur á síðustu dögum ýtt upp olíuverði. Yukos stendur frammi fyrir gjaldþroti þar sem dómstólar vilja knýja fram að það borgi milljarða dollara sem fyrirtækið skuldar í ógoldnum sköttum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×