Innlent

Sameining tekur gildi 1. ágúst

Sameining sveitarfélaganna Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupsstaðar tekur gildi 1. ágúst. Félagsmálaráðuneytið staðfesti þann 20. júlí sl. sameiningu þeirra en íbúar beggja sveitarfélaganna samþykktu sameininguna í atkvæðagreiðslu sem fram fór samhliða forsetakosningum 26. júní sl. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar mun fara með stjórn hins sameinaða sveitarfélags fram að almennum sveitarstjórnarkosningum í maí 2006. Nafn hins sameinaða sveitarfélags verður Akureyrarkaupstaður. Við sameininguna fækkar sveitarfélögum á landinu um eitt og verða þau þá 103 talsins



Fleiri fréttir

Sjá meira


×