Samningur um lækkun lyfjaverðs 29. júlí 2004 00:01
Heilbrigðisráðherra hefur gert samning við fulltrúa lyfjaframleiðenda innan Félags stórkaupmanna um að lækka lyfjaverð til samræmis við verð annars staðar á Norðurlöndum. Stefnt er að því að lyfjaverð hér á landi verði sambærilegt við meðalverð á Norðurlöndunum innan tveggja ára. Fyrsta lækkun samkvæmt samkomulagi sem samsvarar 200 milljón króna lækkun á ársgrundvelli kemur til framkvæmda 1. september næstkomandi. Þeir hlutar reglugerðar sem áttu að taka gildi 1. ágúst næstkomandi og fjalla um viðmiðunarverð lyfja með sambærileg meðferðaráhrif verða felldir niður. Þá hefur ráðherra fallist á að skipa sérstakan samráðshóp sem verður ráðherra og lyfjaverðsnefnd til ráðgjafar um lyfjaverð og nánari útfærslu og framkvæmd samkomulagsins. Í kvöldfréttum ríkisútvarpsins sagði heilbrigðisráðherrann samninginn stóran áfanga í lækkun lyfjaverðs hér á landi hann hafi sagt það í vor þegar reglugerð um viðmiðunarverð lyfja hafi verið frestað að hann vildi freista þess að ná árangri í lækkun lyfjaverðs. Það hafi tekist og hann sé mjög ánægður með þann samstarfsvilja sem komið hafi fram hjá félagi íslenskra stórkaupmanna. Hann segir þó enn nokkuð í land að ná þeim sparnaði sem þyrfti til að mynda hjá Tryggingastofnun ríkisins. Það sé erfitt því lyfjapakkinn í heild hafi hækkað vegna nýrra og dýrari lyfja og aukinnar lyfjanotkunar
Fréttir Innlent Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fleiri fréttir Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Sjá meira