Fleiri fréttir

Þorskkvótinn búinn

Búið er að veiða allan þorskkvóta á þessu fiskveiðiári, eða 209 þúsund tonn, þótt mánuður sé í nýtt fiskveiðiár. Þetta er samkvæmt tölum Fiskistofu, en eitthvað er hægt að halda veiðum áfram með því að flytja kvóta á milli fiskveiðiára.

Öryggisvörður skaut þrjá

Öryggisvörður í sendiráði Chile, á eyjunni Costa Rica, skaut þrjá manns til bana í gær og tók eigið líf í framhaldi. Síðdegis í gær tók hann tíu manns í gíslingu, embættismenn og aðra starfsmenn sendiráðsins.

Há sjálfsmorðstíðni hermanna

Sjálfsmorðstíðni meðal rússneskra hermanna hefur aukist verulega á þessu ári að sögn rússneska hersins. Fyrstu sex mánuði ársins frömdu 109 rússneskir hermenn sjálfsmorð, sem er 38% aukning frá síðasta ári.

Hringja beint gegnum tölvuna

Nú geta tölvueigendur hringt beint í heimilissíma og farsíma úr tölvunni ef þeir útvega sér nýtt forrit.

Skýrslutökur halda áfram

Jón Gerald Sullenberger mætti til frekari skýrslutöku hjá Ríkislögreglustjóra klukkan hálf tólf í dag en hann var í rúmar sex klukkustundir að gefa skýrslu þar í gær um viðskipti sín við Baug.

Greiddu ekki lausnargjald

Egyptar hafa neitað fréttum þess efnis að stjórn landsins hafi greitt hryðjuverkamönnum tugi milljóna í lausnargjald fyrir háttsettan erindreka Egypta í Írak, sem skæruliðar tóku í gíslingu fyrir tæpri viku.

5000 manns til Eyja

Um 5000 manns stefna á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Að minnsta kosti 16 skipulagðar hátíðir verða haldnar víða um land. Allt stefnir í farþegamet hjá ferjunni Herjólfi um verslunarmannahelgina en þrjár auka næturferðir verða farnar fyrir og eftir helgi.

Enn haldið sofandi í öndunarvél

Ástand mannsins sem slasaðist í bílveltu við Vatnsskarðsnámur á veginum til Krýsuvíkur á laugardagskvöld, er enn mjög alvarlegt. Honum er haldið sofandi í öndunarvél. Hann kastaðist úr bílnum og lenti undir honum. Maðurinn er erlendur ríkisborgari en hefur verið búsettur hér á landi um skeið vegna starfs síns.

Kerry ausinn lofi á flokksþingi

John Kerry mun leiða baráttuna gegn hryðjuverkum betur en George Bush, endurvekja von hjá fólkinu í landinu og stuðla að jafnrétti. Þetta segir hver ræðumaðurinn á fætur öðrum á flokksþingi Demókrata, sem nú stendur sem yfir í Boston.

Alka Selzer á íslenskan markað

Verkjalyfið fræga Alka Selzer, sem ferðamenn hafa borið með sér að utan í áraugi, fæst nú í fyrsta sinn í apótekum hér á landi en yfir 60 ár eru síðan lyfið kom fyrst á markað. Samkvæmt upplýsingum frá lyfjastofnun hafði enginn sóst eftir því að markaðssetja lyfið hér á landi fyrr en nú, og fékk PharmaNor hf, markaðsleyfi fyrir lyfinu fyrr á árinu.

Enn leitað að Sri

Kafarar lögreglunnar og björgunarsveitarmenn munu í dag halda áfram leit að líkinu af Sri Ramawati, konunni sem saknað hefur verið í tæpan mánuð, eftir að fyrrverandi sambýlismaður hennar játaði í gær að hafa kastað líkinu í sjóinn við Prestshúsatanga á Kjalarnesi.

Aukin hætta á innbrotum um helgina

Lögreglan í Reykjavík sendi út tilkynningu í dag þar sem hún biður fólk að ganga vel frá eigum sínum fyrir verslunarmannahelgina. Hún bendir á að hægt sé að sækja upplýsingar um innbrotavarnir á vefsíðu embættisins <a href="http://www.lr.is/">www.lr.is</a>.

Eldur í Arnborgu

Eldur kom upp í stýrisvélarrúmi togarans Arnarborgu í Hafnarfjarðarhöfn um klukkan níu í morgun, en engan sakaði. Verið var að búa togarann, sem skráður er í Lettlandi, til veiða og höfðu viðgerðarmenn verið að logsjóða í stýrisvélarrúminu, en fóru svo í kaffi.

Tekinn á tvöföldum hámarkshraða

Lögreglan stöðvaði í morgun ökumann, eftir að hann mældist á 183 kílómetra hraða á þjóðveginum í Kollafirði. Hann var sviftur ökuréttindum á staðnum enda var hann á liðlega tvöföldum hámarkshraða. Auk ökuleyfissviftingar á hann háa sekt yfir höfði sér.

Tvöföld Reykjanesbraut opnuð

Nýr kafli tvöfaldrar Reykjanesbrautar við Strandarheiði opnaður fyrir umferð á morgun. Samgönguráðherra mun opna kaflann í athöfn við vesturenda framkvæmdarinnar sem er um 3 km. austan afleggjara að Vogum. Þetta er fyrsti áfangi breikkunar Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar. Brautin sem tekin verður í gagnið nú er 12,1 km.

Sex farast í sprengingu í Kabúl

Sex manns fórust í sprengingu sem varð í mosku í Kabúl í Afganistan í dag. Tveir þeirra voru starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, sem unnu að undirbúningi kosninga í landinu, en öfgafullir múslimar eru andvígir kosningunum. Ekki er þó fullyrt að þeir beri ábyrgð á tilræðinu.

Skipað að hætta sölu á olíu

Rússnesk yfirvöld hafa skipað olíurisanum Yukos að stöðva sölu á olíu. Yukos selur að meðaltali um 1,7 milljónir tunna á dag sem er 20 prósent af heildarolíuframleiðslu Rússlands. Ef af verður er líklegt er að þetta muni flýta fyrir hruni fyrirtækisins sem láðist að borga skatta upp á marga milljarða dollara.

Læknar án landamæra frá Afganistan

Samtökin, Læknar án landamæra, hafa ákveðið að hverfa frá Afganistan eftir 24 ára veru þar. Ástæður eru slæm öryggisskilyrði fyrir starfsmenn samtakanna en fimm voru drepnir í byrjun júní og hætta er á fleiri árásum.

Bilun í leiguvél Sumarferða

Leiguvél ferðaskrifstofunnar Sumarferða, sem þurfti að lenda í Barselóna í morgun vegna bilunar, er aftur komin í loftið áleiðis til Íslands og er væntanleg til Keflavíkur klukkan hálf sjö.

Tala látinna komin í 68

Tala látinna, eftir bílsprenginguna í Baquba í Írak í morgun hækkar enn og er komin í 68. Þetta er því orðið lang mannskæðasta tilræði skæruliða í landinu til þessa. Bíllinn sprakk í loft upp fyrir utan lögreglustöð við fjölfarna götu í borginni á háannatímanum í morgun.

Hakkarar meiri ógnvaldar en mafían

Rússneskir tölvuhakkarar eru að verða mun meiri ógnvaldar en rússneska mafían, sem þó er illræmd víða um heim. Að sögn yfirmanns í rússnesku lögreglunni, sem gerði Pútín forseti grein fyrir þessu.

Skógareldar í Portúgal

Miklir skógareldar hafa brotist út víða í Portúgal. Yfir 400 slökkviliðsmenn berjast nú við eldinn til að koma í veg fyrir að hann nái að valda jafn miklu tjóni og í fyrra þegar minnst 18 manns fórust.

Margir nýta netþjónustu

Rúmlega 16 þúsund framteljendur höfðu skoðað álagningaseðla sína á netinu klukkan hálf þrjú í dag, samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra. Álagningaseðlar verða sendir heim til skattborgenda á föstudag.

Árásir í vesturhluta Íraks

Skæruliðar gerðu árás á nokkrum stöðum á vesturhluta Íraks í dag með þeim afleiðingum að tveir erlendir hermenn létust og tvær flugvélar voru þvingaðar til nauðlendingar. Ekki er ljóst hvers lenskir hermennirnir voru en flestir hermenn á svæðinu eru bandarískir.

Lífshættuleg snuð bönnuð

Löggildingarstofa hefur lagt bann við sölu á blikkandi snuðum, sem áttu að verða einskonar tískuleikföng á útihátíðum helgarinnar. Snuðið sakleysislega er ætlað stálpuðum krökkum og unglingum en alsjáandi umhyggjusamir verndarar fólksins á Evrópska efnahagssvæðinu telja snuðið hinsvegar geta verið háskalegt og jafnvel lífshættulegt. 

Sendiráð opnuð á ný í Írak

Sádi-Arabía hefur ákveðið að opna aftur sendiráð í Írak, segir forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi. Sendiráðum Sádi-Arabíu var lokað árið 1991 í Persaflóastríðinu en bandaríski heraflinn var staðsettur í Sádi-Arabíu á meðan á stríðinu stóð.

Reagan talaði hjá demókrötum

Ræða Ron Reagans á flokksþingi demókrata í fyrradag hefur vakið mikla athygli. Ron er sonur Ronalds Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sem er afar dáður af repúblikönum vestra.

Reykjavíkurhöfn hækkar vörugjöld

Reykjavíkurhöfn hækkaði vörugjöld á áfengi og ýmsar aðrar vörur um síðustu mánaðamót í því skyni að ná aftur tekjum sem ríkið hafði fellt niður. Ranglega var fullyrt í fréttum í gær að fjármálaráðuneytið bæri ábyrgð á verulegri hækkun vörugjalda sem er meðal annars til þess fallin að halda verði á áfengi háu í landinu.

Fæstar kærur enda með dómi

Af sjö til tíu kærum sem berast lögreglu á ári hverju vegna áfengisauglýsinga enda fæst mál með dómi. Fyrir þremur árum lagði vinnuhópur Ríkislögreglustjóra til endurskoðun laga, þar sem ekki væri hægt að beita þeim gegn áfengisauglýsingum. Lögin hafa ekkert breyst.

Ung landnámskona hlaðin skarti

Eigandi skartgripanna sem fundust norður af Vestdalsheiði fyrir viku hefur líklega verið ung kona, sem uppi var á fyrri hluta tíundu aldar. Þetta er mat fornleifafræðinga sem í gær fundu fleiri skartgripi og mannabein á vettvangi.

1700 vinna að niðurlögum eldanna

Grikkir, Spánverjar og Ítalir hafa sent flugvélar til Portúgals til þess að hjálpa til við að slökkva skógarelda sem geisað hafa í landinu undanfarna daga. Þó að fleiri eldar hafi komið upp í ár en í fyrra hefur tjón vegna þeirra verið mun minna.

Tilkynningum um nauðganir fækkar

Síðustu tvö ár hefur tilkynningum um nauðganir um verslunarmannahelgina fækkað. V-dagssamtökin, sem berjast gegn nauðgunum, segja tilætlaðan árangur ekki nást fyrr en nauðganir hafi verið stöðvaðar algjörlega um þessa helgi og hætt verði að líta á þær sem eðlilegan fylgifisk útihátíða.

Úttekt á íbúð ekki enn lokið

Úttekt á íbúð þroskahefts manns í Breiðholti, sem hafði verið lofað fyrir þremur mánuðum, er ekki enn lokið. Maðurinn hefur búið í ósamþykktum bílskúr í tvö ár.

Bati Helga kraftaverki líkastur

Bati Helga Einars Harðarsonar, sem gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðslu í síðasta mánuði, þykir ganga kraftaverki næst. Aðeins sex vikum eftir aðgerðina segist hann vera að springa úr krafti. Fréttastofan hitti hann að máli þegar hann kom til landsins í dag.

Jón Árni neitar að svara

Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans neitar að svara spurningum um hvort hann hafi talið tugi milljóna króna frá Endurmenntun rafeindavirkja fram til skatts eða hvort launamiðar hafi verið gefnir út.

Tíu innbrotavarnarráð lögreglu

Lögreglan í Reykjavík leggur til að fólk sem fer ekki út úr bænum um verslunarmannahelgina flytji þvott á milli snúra og leggi í bílastæði nágranna sinna til að villa um fyrir þjófum og koma í veg fyrir innbrot. Standi þvottur í marga daga sýnir það að fólk er ekki heima. Því er öruggara að flytja þvott á milli snúra.

Fáir á innsetningu forseta

Helmingur ríkisstjórnarinnar verður fjarverandi þegar Ólafur Ragnar Grímsson verður settur inn í embætti forseta Íslands á sunnudag. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson sver embættiseiða til næstu fjögurra ára á sunnudag.

Mannskæðustu átök í mánuð

Átök dagsins í dag í Írak voru þau mannskæðustu frá því að Írakar tóku aftur við völdum fyrir réttum mánuði. Að minnsta kosti 111 manns létust í tveimur bílsprengingum og bardögum milli skæruliða og hermanna.

Hákon Eydal játar morðið á Sri

Hákon Eydal, fyrrverandi sambýlismaður Sri Ramawati, hefur viðurkennt að hafa banað henni og varpað líkinu af í sjóinn við Hofsvík á Kjalarnesi. Fjölskylda hins grunaða á hús á svæðinu.

Tekjur deCode minnka og tap eykst

Tap Íslenskrar erfðagreiningar hefur aukist um tvær milljónir dollara eða tæplega 144 milljónir króna sé miðað við sama tímabil í fyrra. Fyrirtækið kynnti afkomuna eftir annan ársfjórðung á erlendum mörkuðum í gær.

Grunsamlegur hlutur í farþegarými

Flugvél bandaríska flugfélagsins United Airlines, með 246 manns um borð, lenti í morgun heilu og höldnu á flugvellinum í Sydney í Ástralíu eftir að grunsamlegur hlutur fannst í farþegarýminu. Vélin var á leið frá Sydney til Los Angeles þegar hluturinn fannst. Ekki hefur verið upplyst hvaða hlutur þetta var eða hvort hann var hættulegur.

Leigubílstjóri stunginn með hnífi

Leigubílstjóri var stunginn með hnífi í vesturborg Reykjavíkur um klukkan hálf tvö í nótt og eru fjórir menn í haldi lögreglu vegna rannsóknar málsins. Lögregla telur mildi að ekki fór verr þar sem eggvopn var notað við árásina og fékk bílstjórinn stungu í hálsinn.

Clinton harðorður í garð Bush

Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var harðorður í garð George Bush forseta í ræðu sinni við setningu flokksþings Demókrataflokksins í Boston í gærkvöldi og sagði stefnu hans sundra þjóðinni.

Sjónvarpsútsendingar lágu niðri

Sjónvarpsútsendingar Stöðvar tvö lágu niðri á norðausturlandi í gærkvöldi og fram á nótt þar til viðgerð lauk á bilun sem varð í endurvarpa á Húsavíkurfjalli.

Sleppt frá Guantanamo

Fjórum frönskum föngum hefur verið sleppt úr haldi Bandaríkjamanna á Guantanamo-flóa á Kúbu eftir að hafa setið inni, án ákæru, í tvö ár. Í yfirlýsingu frá franska utanríkisráðuneytinu segir að eftir viðræður franskra og bandarískra stjórnvalda hafi Bandaríkjamenn fallist á að sleppa fjórum af þeim Frökkum sem eru í haldi.

Sjá næstu 50 fréttir