Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sátt um löggæslukostnað Sátt hefur náðst um löggæslukostnað vegna landsmóts UMFÍ á Sauðarkróki eftir nokkurt þref. Veðrið lék við landsmótsgesti í dag, þar sem saman voru komnir keppendur og áhorfendur á öllum aldri. Metþátttaka er á landsmótinu í ár. 9.7.2004 00:01
Allir nýnemar fá skólavist Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Menntaskólinn við Hamrahlíð og Flensborgarskóli í Hafnarfirði eiga að taka við þorra nýnema sem synjað hafði verið um skólavist í framhaldsskóla í haust. Þessi lausn kostar ríkið á bilinu 200 til 250 milljónir króna vegna framkvæmda við skólana. 9.7.2004 00:01
Jón Baldvin ódýr útgáfa af Clinton Þessi fjölskylda hugsar mjög mikið um ímyndina, hvernig hún lítur út í blöðum og þannig lagað. Jón Baldvin og Bryndís eru ódýra útgáfan af Clinton-hjónunum.En bak við ímyndina eru litlar tilfinningar," staðhæfir Marco Brancaccia, fyrrverandi sambýlismaður Snæfríðar Baldvinsdóttur 9.7.2004 00:01
Orð Eiríks Tómassonar vega þungt Jónína Bjartmarz þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður Allsherjarnefndar segist hafa lært sama stjórnskipunarrétt og Eiríkur Tómasson lagaprófessor. Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig um ummæli Davíðs Oddsonar þess efnis að ríkisstjórnin geti ekki gert mikið með vitlaus lagaálit. 9.7.2004 00:01
Hrun í laxveiðum Algjört hrun er í laxveiðum í norskum ám það sem af er sumri og í Vestur-Noregi er aflinn aðeins þriðjungur af afla í meðal ári, að því er Intra Fish greinir frá. Engin einhlít skýring er á þessu en sumir kenna þrálátum norðanáttum um ástandið. 8.7.2004 00:01
Ekki enn lýst eftir konunni Lögreglan virðist vera búin að útiloka að konan sem saknað hefur verið síðan á sunnudag finnist á lífi því hún hefur ekki enn lýst formlega eftir henni. 8.7.2004 00:01
Forstjóri Enron ákærður Eftir þriggja ára flókna rannsókn hefur Kenneth Lay, fyrrverandi forstjóri orkurisans Enron, verið ákærður. Enron fór á hausinn í kjölfar þess að greint var frá gríðarlegu bókhaldsfalsi og leynilegum samningum til að fela skuldir fyrirtækisins og þar með falsa gróðatölur. 8.7.2004 00:01
Þjófur gómaður í nótt Lögreglan í Reykjavík gómaði í nótt mann sem gerði tilraun til að brjótast inn í fyrirtæki í austurborginni. Þegar hann var búinn að spenna upp glugga fór viðvörunarkerfi í gang og lagði hann þá á flótta. 8.7.2004 00:01
6 drepnir á Gaza Ísraelskar hersveitir drápu sex Palestínumenn í einhverjum hörðustu bardögum undanfarinna vikna á Gaza-ströndinni. Sjónarvottar segja fjóra mannanna hafa verið byssumenn. 8.7.2004 00:01
Formleg mótmæli vegna Svalbarða Íslensk stjórnvöld hafa formlega mótmælt því við norska utanríkisráðuneytið að Norðmenn skuli einhliða úthluta öllum erlendum fiskiskipum, samanlagt 80 þúsund tonna síldarkvóta við Svalbarða. 8.7.2004 00:01
Lagastaða fanganna könnuð Bandaríska varnarmálaráðuneytið hyggst koma á fót sérfræðinganefnd til að kanna lagastöðu fanga í Guantanamo-herstöðinni á Kúbu, hvort það standist lög að halda þeim föngnum og hvort þeir hafi rétt á að véfengja það fyrir bandarískum dómstólum. 8.7.2004 00:01
Samið um 10 tonn af hrefnu Félag hrefnuveiðimanna er búið að semja um sölu á tíu tonnum af hrefnukjöti af nýliðinni vertíð en það er u.þ.b. helmingur af því kjöti sem aflaðist af þeim 25 hrefnum sem veiddar voru. 8.7.2004 00:01
Fuglaflensa aftur í Kína Tuttugu þúsund kjúklingar hafa verið drepnir í Kína til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu fuglaflensu sem greinst hefur enn á ný í landinu. 8.7.2004 00:01
Harry Potter hættulegur Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að vestrænar stórmyndir sumarsins geti spillt siðferðiskennd kínverskra barna og hafa því bannað nokkrar myndir. Harry Potter, köngulóarmaðurinn og græna tröllið Skrekkur eru meðal þeirra sem taldir eru hafa hættuleg áhrif á æskuna. 8.7.2004 00:01
Mijailovic úrskurðaður geðsjúkur Mijailo Mijailovic, morðingi Önnu Lindh utanríkisráðherra Svíþjóðar, var í morgun úrskurðaður geðsjúkur af Hæstaréttinum í Stokkhólmi en hópur geðlækna hefur haft Mijailovic til meðferðar undanfarnar vikur. Þetta þýðir að hann verður vistaður á geðsjúkrahúsi, í stað fangelsis, þar sem hann mun gangast undir meðferð. 8.7.2004 00:01
3 ár fyrir kynferðisbrot Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir kynferðisbrot gegn tveimur dætrum sínum og vinkonu þeirra. Stúlkurnar voru 11 og 12 ára þegar brotin voru framin en þau áttu sér stað á árunum 1996 til 2003, bæði á heimili ákærða og í sumarhúsi móður hans. 8.7.2004 00:01
Langar vaktir skapa hættu Líkur á mistökum hjá hjúkrunarfræðingum þrefaldast fari vaktir þeirra yfir tólf og hálfa klukkustund. Fjórar af hverjum tíu vöktum hjúkrunarfræðinga í Bandaríkjunum eru svo langar. 8.7.2004 00:01
Mótmæli við Alþingi kl. 12:30 Þjóðarhreyfingin boðar til opins mótmælafundar við Alþingishúsið nú í hádeginu til að andmæla því að þjóðin skuli hafa verið svipt stjórnarskrárvörðum kosningarétti, eins og segir í yfirlýsingu. Fundurinn hefst klukkan 12:30. 8.7.2004 00:01
Konan enn ófundin Konan sem saknað hefur verið frá því aðfararnótt sunnudags er enn ófundin. Maðurinn, sem úrskurðaður var í tveggja vikna gæsluvarðhald í gær vegna gruns um aðild að hvarfi hennar, neitar aðild að málinu. 8.7.2004 00:01
Betri veiði en í fyrra Algjört hrun er í laxveiðum í norskum ám það sem af er sumri en veiði í mörgum íslenskum ám er mun betri en í fyrra. Þó eru enn lausir veiðidagar á besta tímanum í nokkrum dýrustu ánum. 8.7.2004 00:01
Á sjöttu milljón sótt landið heim Fjörutíu ár eru liðin síðan Ferðamálaráð Íslands tók til starfa en fyrsti fundur ráðsins var haldinn þann 7. júlí 1964. Í tilefni tímamótanna opnaði samgönguráðherra nýjan og breyttan upplýsingavef ráðsins, á sex tungumálum. 8.7.2004 00:01
Ósátt innnan allsherjarnefndar Stjórn og stjórnarandstaða eru ósammála um hvert sé helsta verkefni allsherjarnefndar Alþingis sem kom saman í morgun. Stjórnarandstaðan telur að kalla verði til sérfræðinga til að fá úr því skorið hvort hægt sé að afturkalla þjóðaratkvæðagreiðslu sem forseti Íslands boðaði til. 8.7.2004 00:01
Fyrsta skóflustungan að álveri Verið er að taka fyrstu skóflustunguna að álveri Alcoa í Reyðarfirði. Baráttuhópur fyrir náttúrvernd og virkara lýðræði kallar framkvæmdirnar skemmdarverk sem komandi kynslóðir eigi eftir að gráta. 8.7.2004 00:01
Fíkniefnabrotum fjölgar um tæp 50% Fíkniefnabrotum fjölgaði um næstum því 50% í fyrra frá árinu áður samkvæmt ársskýrslu lögreglunnar í Reykjavík. Fimmtungi færri nauðganir voru tilkynntar. 8.7.2004 00:01
Búist við 5000 gestum Búist er við allt að fimmtán þúsund gestum á Landsmót Ungmennafélags Íslands sem hefst á Sauðárkróki í dag. Undirbúningur fyrir mótið hefur gengið mjög vel. Áskell Heiðar Ásgeirsson hjá markaðs- og þróunarsviði Skagafjarðar segir aðstæður á staðnum frábærar. 8.7.2004 00:01
Gríðarlegur fjöldi mótmælti Gríðarlegur fjöldi manna, eða a.m.k. þúsund manns að því er talið er, tók þátt í útifundi sem Þjóðarhreyfingin - svokallaður viðbragðshópur sérfræðinga, boðaði til við Alþingishúsið klukkan 12:30 í dag. 8.7.2004 00:01
Skýrari stefnumótun háskóla Þörf er á skýrari stefnumótun um háskólastigið samkvæmt nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um námsframboð og nemendafjölda við háskóla. Í skýrslunni er lagt til að yfirvöld menntamála móti opinbera og áþreifanlega heildarstefnu um háskólastigið þar sem verkefnum yrði forgangsraðað, þau tímasett og mælanleg markmið skilgreind. 8.7.2004 00:01
Varaforseti Kínaþings í heimsókn Varaforseti kínverska þingsins, Wang Zhaoguo, kemur í opinbera heimsókn til Íslands á morgun í boði Halldórs Blöndal, forseta Alþingis. Heimsóknin mun standa til 12. júlí en í för með Zhaoguo verða fjórir þingmenn og starfsmenn kínverska þingsins og kínverska utanríkisráðuneytisins. 8.7.2004 00:01
Varnarliðsþyrlur í æfingaflugi Skömmu eftir hádegi í dag komu tvær varnarliðsþyrlur í æfingaflugi til Ísafjarðar. Tóku þær eldsneyti á Ísafjarðarflugvelli og héldu flugi sínu áfram að því loknu. 8.7.2004 00:01
Miðausturlönd án kjarnorkuvopna "Forsætisráðherrann staðfesti við mig að stefna Ísraels yrði áfram sú að í samhengi við frið í Miðausturlöndum teldi Ísrael æskilegt að komið yrði á kjarnorkuvopnalausu svæði í Miðausturlöndum," sagði Mohamed ElBaradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar eftir fund með Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels. 8.7.2004 00:01
Norac segist saklaus Mirko Norac, fyrrverandi herforingi í króatíska hernum, lýsti yfir sakleysi sínu fyrir alþjóðadómstólnum í Haag í Hollandi í dag. Hann er ákærður fyrir stríðsglæpi gegn Serbum frá því Króatar börðust fyrir sjálfstæði sínu frá Júgóslavneska sambandsríkinu árið 1993. 8.7.2004 00:01
Viðræður við þingnefnd nauðsyn Bandarískur sérfræðingur í varnarmálum segir að Íslendingar þurfi að hafa frumkvæði að viðræðum við lykilmenn í þinginu. Forseti verði að ráðfæra sig við tiltekna þingnefnd og framtíð varnarliðsins á Íslandi verði ekki tryggð án stuðnings nefndarinnar. </font /></b /> 8.7.2004 00:01
Allawi ekki á fund ESB? Vegna versnandi ástands í Írak er óvíst hvort forsætisráðherra landsins, Iyad Allawi, fari til fundar við utanríkisráðherra aðildarlanda Evrópusambandsins í næstu viku. 8.7.2004 00:01
Stefnuleysi í málefnum háskóla <font face="Helv"> Gerðar eru ýmsar athugasemdir við stefnuleysi í málefnum háskóla hérlendis í nýrri skýrslu sem Ríkisendurskoðun hefur látið frá sér fara um námsframboð og nemendafjölda við íslenska háskóla. </font> 8.7.2004 00:01
Almenn sátt um kvótaúthlutun "Menn eru auðvitað missáttir við sitt en á heildina litið tel ég að flestir séu að fá það sem þeir bjuggust við," segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri landssambands smábátaeigenda. 8.7.2004 00:01
Tollalækkun á íslenskum vörum Góður árangur hefur orðið í samningaviðræðum Íslands og Rússlands varðandi tollaívilnanir landanna á milli. Tekist hefur að ná fram tollalækkun á íslenskum sjávarafurðum og hátæknibúnaði úr tíu prósentum niður í þrjú prósent. 8.7.2004 00:01
Sprotafyrirtæki líða fjárskort "Margir eru fljótir að gleyma því að það tók fyrirtækin Marel, Össur og Delta ein fimmtán ár að ná virkilegum árangri í sínum atvinnugreinum," segir Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. 8.7.2004 00:01
Dómur fyrir bankaránstilraun Maður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til bankaráns í útibúi Landsbankans við Gullinbrú í desember á síðasta ári. Hann hafði enga peninga með sér á brott í ránstilrauninni en var ákærður fyrir að ógna starfsfólki bankans með hnífi. 8.7.2004 00:01
Falun Gong komnir aftur Meðlimir Falun Gong ætla að mótmæla fyrir utan kínverska sendiráðið á milli klukkan tíu og ellefu í fyrramálið vegna opinberrar heimsóknar Wang Zhaoguo, varaforseta kínverska þingsins, til Íslands. 8.7.2004 00:01
Rannsókn þokast hægt Lögregla leitar ekki skipulega að konunni, sem hefur verið saknað frá því snemma á sunnudagsmorgun, enda vita menn ekki hvar þeir eiga að bera niður. Rannsókn lögreglu þokast hægt en þó nokkuð margir hafa verið yfirheyrðir og rannsókn á heimili mannsins, sem nú situr í gæsluvarðhaldi á Litla Hrauni, var fram haldið í dag - þriðja daginn í röð. 8.7.2004 00:01
Tæpar 30 milljónir á átta árum Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær opinbert mál á hendur Jóni Árna Rúnarssyni, fyrrum skólastjóra Rafiðnaðarskólans í Reykjavík og tengdra skóla. Jóni er gefið að sök að hafa á árunum 1994 til 2001 dregið sér tæpar 29 milljónir króna. 8.7.2004 00:01
3 ár fyrir kynferðisbrot Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir kynferðisbrot gegn tveimur dætrum sínum og vinkonu þeirra. Honum er gert að greiða rúmlega tvær milljónir króna í miskabætur og sakarkostnað. 8.7.2004 00:01
Skilorð fyrir misheppnað bankarán 23 ára gamall maður fékk í gær skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur upp á fimm mánuði fyrir tilraun til að ræna útibú Landsbankans við Gullinbrú í Reykjavík föstudaginn 5. desember sl. Refsing fellur niður að 3 árum liðnum haldi maðurinn almennt skilorð, en honum var jafnframt gert að greiða allan sakarkostnað. 8.7.2004 00:01
Selja fyrir 1.200 milljónir Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar hyggst selja eignir bæjarins til hlutafélagsins Fasteignar fyrir allt að 1.200 milljónir króna. Horft er til Félagsheimilisins Þórs- og Týsheimilanna, Safnahússins og Listaskólans. Bærinn fær eignarhlut í félaginu og gerir leigusamning um húseignirnar til þrjátíu ára. 8.7.2004 00:01
Með fjölda dóma á bakinu Tvítugur maður var í gær dæmdur í eins árs fangelsi fyrir þjófnað í Héraðsdómi Reykjaness. 8.7.2004 00:01