3 ár fyrir kynferðisbrot 8. júlí 2004 00:01
Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir kynferðisbrot gegn tveimur dætrum sínum og vinkonu þeirra. Stúlkurnar voru 11 og 12 ára þegar brotin voru framin en þau áttu sér stað á árunum 1996 til 2003, bæði á heimili ákærða og í sumarhúsi móður hans. Dætur mannsins eru fæddar árið 1984 og 1988 og þriðja stúlkan, sem er vinkona dætranna, er fædd árið 1989. Maðurinn var m.a. sakaður um að hafa káfað á kynfærum stúlknanna og reynt að hafa við þær samræði. Brotin töldust varða við almenn hegningarlög og var þess krafist að maðurinn yrði dæmdur til refsingar og til greiðslu á fjórðu milljón króna í miskabætur. Maðurinn krafðist sýknu af öllum kröfum. Í niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands segir að framburður stúlknanna í Barnahúsi hafi þótt trúverðugur. Brotin sem maðurinn er sakfelldur fyrir séu alvarleg en önnur dætra hans var einungis 11 ára gömul þegar hann braut fyrst gegn henni. Dómurinn telur að með háttsemi sinni hafi maðurinn brotið alvarlega og gróflega gegn skyldum sínum sem foreldri og uppalandi. Þriðja stúlkan var 13 ára þegar hann braut gegn henni en hún var í heimsókn hjá honum og fjölskyldu hans úti á landi og hafði ákærða þannig verið treyst fyrir henni. Í dómnum segir að ljóst sé að brotin munu hafa alvarleg áhrif á andlega og líkamlega heilsu stúlknanna í framtíðinni en fyrir dóminn voru lögð gögn sem sýndu fram á að brotin hefðu valdið stúlkunum margvíslegum sálrænum erfiðleikum. Héraðsdómi þótti hæfileg refsing þriggja ára fangelsi og voru stúlkurnar taldar eiga ótvíræðan rétt til miskabóta, samtals 1,2 milljónir króna. Var maðurinn dæmdur til að greiða einni stúlknanna 700 þúsund krónur í miskabætur, annarri 400 þúsund og þeirri þriðju 100 þúsund krónur. Hann skal að auki greiða allan sakarkostnað og málsvarnarlaun, samtals 900 þúsund krónur.
Fréttir Innlent Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira