Allir nýnemar fá skólavist 9. júlí 2004 00:01
Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Menntaskólinn við Hamrahlíð og Flensborgarskóli í Hafnarfirði eiga að taka við þorra nýnema sem synjað hafði verið um skólavist í framhaldsskóla í haust. Þessi lausn kostar ríkið á bilinu 200 til 250 milljónir króna vegna framkvæmda við skólana. Á fimmta hundrað nýnemum var synjað um vist í framhaldsskóla í síðastliðnum mánuði. Í landslögum segir þó að allir þeir sem nái samræmdum prófum eigi rétt á framhaldsskólanámi. Talsmenn menntamálaráðuneytisins segja málið hafa verið leyst með því að bæta við kennslustofum í þrem skólum. Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segir að einungis eigi eftir að koma fyrir innan við tíu nemendum og verði það gert á næstu vikum. Til að koma öllum fyrir hafi þurft að fjölga kennslustofum þar sem kostur var á. Leigt hafi verið viðbótarhúsnæði í Hafnarfirði fyrir Flensborgarskólann, kennslustofum var bætt við í Ármúla og rými aukið í Hamrahlíðinni. Þess fyrir utan hafi verið þjappað betur í aðra skóla til að tryggja að allir kæmust fyrir. Steingrímur segir viðbótarkostnaðinn vegna framkvæmdanna nema á milli 200 og 250 milljónum króna. Hann segir aldrei annað hafa staðið til en að veita öllum nýnemum framhaldsskólapláss í haust, þrátt fyrir að yfir 400 þeirra hafi fengið sent til heim til sín synjunarbréf vegna umsóknar um nám í framhaldsskólum. Hann segir ekki fullvíst að unnt verði að veita öllum eldri umsækjendum pláss í haust, en nýnemarnir fái hins vegar allir inni í skólum á höfuðborgarsvæðinu. Séu einhverjir enn óvissir um það hvort þeir fái skólavist í haust eigi þeir að setja sig í samband við menntamálaráðuneytið.
Fréttir Innlent Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Fleiri fréttir Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði