Innlent

Setja lög á verk­fall flug­virkja

Árni Sæberg skrifar
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Anton Brink

Forseti Alþingis hefur boðað til fundar með þingflokksformönnum klukkan 10:45, þar sem dagskrárbreyting þingsins verður rædd. Ríkisstjórn afgreiddi í morgun frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra og það kemur fyrir þingið í dag. 

Þetta staðfestir Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, í samtali við Vísi. Spurð að því um hvað frumvarp Eyjólfs er vísar hún á ráðherra. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að setja lög á verkfall flugvirkja.

Eyjólfur er ráðherra flugmála og því er það í hans verkahring að leggja fram frumvarp um lög á verkfall flugvirkja, sem hófst á miðnætti.

Samkvæmt heimildum Vísis mun forsætisnefnd Alþingis koma saman til fundar klukkan 12:30 en hún heldur utan um skipulag þinghalds. Ætla má að þingfundur hefjist að loknum fundi forsætisnefndar en það hefur ekki enn fengist staðfest.

Hvorki hefur náðst í Eyjólf né aðstoðarmenn hans tvo við vinnslu fréttarinnar. Þá hefur ekki heldur náðst í aðstoðarmenn formanna ríkisstjórnarflokkanna.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×