Björgvin Karl vann sitt þriðja brons á heimsleikunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júlí 2026 23:20 Hér má sjá Íslendingana sex sem keppa á heimsleikunum í CrossFit í ár. @bergrosbjornsdottir Björgvin Karl Guðmundsson komst á verðlaunapall með liði sínu en heimsleikarnir í CrossFit kláruðust í Kaliforníu í kvöld. Bergrós Björnsdóttir endaði í 18. til 19. sæti á sínum fyrstu heimsleikum í fullorðinsflokki.
Björgvin Karl og félagar hans í norska liðinu CrossFit Oslo Kriger urðu í þriðja sæti en liðið átti flottan endasprett og nálgaðist efstu liðin í lokin. CrossFit Whip varð heimsmeistari með 1055 stig en CrossFit Mayhem varð í öðru sæti með 1030 stig. Lið Björgvins Karls endaði með 940 stig. Lið CrossFit Reykjavíkur gaf aðeins eftir í lokin og varð að sætta sig við að enda í fjórtánda sæti af tuttugu liðum. Þetta eru þriðju bronsverðlaun Björgvins Karls á heimsleikunum en hann varð tvisvar sinnum í þriðja sæti í einstaklingskeppninni, fyrst árið 2015 og svo aftur árið 2019. Bergrós Björnsdóttir datt líka aðeins niður stigatöfluna á lokasprettinum eftir afar krefjandi daga en hún var nýliði á leikunum í ár. Bergrós endaði eins og áður sagði í 18. til 19. sæti með 647 stig en hún var aðeins fjórum stigum frá næsta sæti fyrir ofan. Bergrós fékk jafnmörg stig og Aline Wirz frá Sviss. Bretinn Aimee Cringle varð heimsmeistari kvenna í fyrsta sinn en hún kemur frá eyjunni Mön. Cringle var mögnuð á þessum heimsleikum og vann afar sannfærandi sigur en í öðru sæti varð Emma Lawson frá Kanada og Bretinn Lucy Campbell varð þriðja. Engin bandarísk kona komst því á pall en Alex Gazin varð fjórða. Hér fyrir neðan má sjá útsendingu frá lokadeginum. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=rJt1bdqxSn0">watch on YouTube</a>
CrossFit Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Reese rífur í sig metin Körfubolti „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Haukar fá risavaxinn liðsauka Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Dagskráin í dag: Barist um sæti í Meistaradeild Evrópu Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City Sjá meira