Innlent

Vaktin: Sau­tján vélar á röngum velli og flug­ferðum af­lýst

Agnar Már Másson, Lovísa Arnardóttir og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa
Þoturnar safnast saman á Reykjavíkurflugvelli.
Þoturnar safnast saman á Reykjavíkurflugvelli. Vísir/Vilhelm

Sextán farþegaþotum og einni herþotu var síðdegis í dag lent á þremur varaflugvöllum Íslands vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli. Fimm flugferðum Icelandair hefur verið aflýst. Vísir færir ykkur nýjustu fréttir í vaktinni hér að neðan.

Snjó kyngdi niður á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan 14 í dag sem gerði snjóruðning erfiðan og dró úr skyggni við flugstöðina. Um tíma var töluverður fjöldi flugvéla í biðstöðu og hringsóluðu yfir Suðurlandið á meðan flugstjórar biðu leyfis til að lenda. Flugfélögin ákváðu að vísa vélunum til Reykjavíkur, Egilsstaða og Akureyrar. 

Hér má sjá flugumferð milli 14.30 og 16.30 á 150-földum hraða.

Bíðu þess að fá að lenda

Ástandið stóð yfir til klukkan 16.30 en um það leyti lenti farþegaþota Icelandair frá Frankfurt í Keflavík. 

Aftur á móti segir Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia að sautjáun vélar hafi þurft að hverfa frá lendingaráformum á Keflavíkurflugvelli. Alls hafi sex vélar lent í Reykjavík; fimm Icelandair-vélar og ein hervél. Átta Icelandair-vélar hafi svo lent á Akureyri. Þrjár hafi lent á Egilsstöðum: tvær frá Icelandair og ein frá Discovery.

Flugfélögin taka nú ákvarðanir um næstu skref, þ.e. hvort flogið verði strax aftur til Keflavíkur. Hríð er aftur á móti nú skollin á í Reykjavík.

Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira
×