Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 6. ágúst 2025 19:54 Örlygur Hnefill er á Norðurpólnum ásamt afkomendum tveggja af merkustu landkönnuðum 20. aldar. aðsend Húsvíkingi hefur verið falið að segja heiminum söguna af því þegar tveir frægustu landkönnuðir 20. aldarinnar héldu í leiðangur á Norðurpólinn. Örlygur Hnefill Örlygsson er nú, ásamt afkomendum brautryðjendanna, í fimmtán daga leiðangri á pólnum þar sem hann fangar sögu þeirra í heimildarmynd. Fréttastofa fékk að kíkja í heimsókn hjá pólfaranum á Húsavík áður en hann fór í reisuna miklu.
Sir. Edmund Hillary, nýsjálenskur fjallgöngumaður og landkönnuður, náði fyrstur manna tindi Everest fjalls. Vart þarf að kynna til sögunnar Íslandsvininn mikla, hinn bandaríska Neil Armstrong sem varð fyrsti maðurinn til að stíga fæti á tunglið. Um þessi afrek þeirra vita flestir en það sem ekki margir vita er að brautryðjendurnir tveir lögðu upp í leiðangur á Norðurpólinn árið 1985 þar sem þeir lentu í miklum ævintýrum. „Fjölskyldur þeirra hafa treyst okkur, með lítið safn norður á Húsavík til að segja þessa merkilegu sögu. Neil var frekar hlédrægur og lítið fyrir athyglina og þetta var bara „prívat“ ferð sem þeir fóru. Hann sagði fjölskyldu sinni og leiðangursstjóranum að þau mættu segja þessa sögu þegar hann væri fallinn frá og það kemur í hlut okkar að gera það, sem er gríðarlegur heiður,“ segir Örlygur. Íslandsvinurinn Neil Armstrong Örlygur hefur nú í næstum áratug grúskað í sögu mannanna tveggja og viðað að sér heimildum og frásögnum. Örlygur þurfti ekki að fara langt til að sækja sumar frásagnanna því Armstrong uni sér einkar vel í Þingeyjarsýslu. „Það sem hann upplifði hér á Húsavík og í kring er að hann fékk bara að vera í friði. Hann kunni svo vel við þessa orku og eftir að hann verður þessi heimsfrægi maður við að fara til tunglsins þá fer hann að koma hingað aftur og fer í veiðiferðir hér og tengir virkilega við þessa staði.“ Neil Armstrong, Mike Dunn og Sir Edmund Hillary á Norðurpólnum árið 1985.Aðsend Eftir fráfall Armstrongs árið 2012 hefur fjölskylda og afkomendur hans komið alls kyns merkilegum munum og minjagripum úr safni Armstrongs til Örlygs þar sem hann mun varðveita og sýna á Húsavík, þar sem Armstrong leið svo vel. „Hérna er ég með veiðarfæri sem Neil Armstrong átti og skildi eftir hérna eftir eina af sínum mörgu ferðum hingað til þess að veiða i ánum okkar,“ sagði Örlygur og sýndi stoltur á svip. „En það sem mér þykir einna vænst um, persónulega, er þetta hér,“ segir Örlygur og réttir fram öskju með tveimur áhafnarmerkjum úr Apollo 11 leiðangrinum til tunglsins. Sonur Armstrongs átti annað þeirra en áhugafólk um geimferðir veit líklega að hefð er fyrir því að áhafnarmerki er hannað fyrir hverja geimferð og fær hver geimfari þrjátíu slík merki sem hann getur ráðstafað af vild. Nú er merkið norður á Húsavík. Þegar fréttamaður hélt að safnið gæti ekki orðið glæsilegra svipti Örlygur hulunni af krúnudjásninu sjálfu sem Örlygur heldur að sé verðmætari en húsið sitt. „Þetta er peysan sem Neil Armstrong fór í á pólinn,“ sagði Örlygur. Hún er merkt og allt? „Já, þeir merktu þetta því það var mjög mikil upplifun fyrir þessa landkönnuði að fara í þessa ferð.“ Þessi samskipti fjölskyldnanna og Örlygs leiddu síðan til þess að honum er nú falið að segja heiminum frá. „Þessi merkilega saga um leiðangur tveggja sennilega frægustu landkönnuða 20. aldarinnar, sem er ósögð saga enn í dag.“ Áttu sameiginlegt að hafa misst barn Örlygur hefur undir höndum tugi klukkustunda af filmuefni um pólferð félaganna og nú er hann ásamt Elvari Erni Egilssyni og Rafnari Orra Gunnarssyni staddur á Norðurpólnum með afkomendum Hillary og Armstrongs að búa til heimildarmynd um leiðangurinn ´85. Hann mun ekki aðeins segja frá glæstum afrekum þeirra heldur líka frá hinu erfiða og persónulega. „Þeir vinna þessi gríðarlega stóru afrek en þeir lenda báðir í því að missa barn, þeir missa báðir dætur, ungar dætur og þeir upplifa allan skalann af tilfinningum; hæstu hæðir og lægstu lægðir.“ Á leiðinni heim frá Norðurpólnum lentu Neil og Hillary í vondu veðri og voru veðurtepptir í kofa norðarlega í Kanada í þrjá daga. Það var þá sem þeir opna sig um reynslu af barnmissi. „Þeir fara að opna sig, segja sögur og tengjast á djúpstæðan hátt og þetta er það sem þeirra afkomendur eru að fara að segja okkur frá í þessari ferð á pólinn.“ Örlygur segir að það sé sannur heiður að vera treyst fyrir verkefninu. „Ætli ég verði ekki bara á pólnum þegar ég átta mig á því hvað þetta er stórt fyrir mig og hvað við strákarnir sem erum að gera þessa mynd erum heppnir að fá að gera þetta.“
Ferðalög Þingeyjarsveit Mest lesið Vaktin: Vegum lokað og varað við ferðalögum á Suðurlandi Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Innlent Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innlent Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Innlent Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Innlent Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Innlent Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Innlent Fleiri fréttir Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innan við fimmtán prósent telja loftslagsbreytingar ekki staðreynd Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Þau skipa lista Samfylkingarinnar á Akranesi Vaktin: Vegum lokað og varað við ferðalögum á Suðurlandi Státum af klárasta barþjóni Evrópu Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Loka Sorpu vegna veðurs Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Bíll í ljósum logum Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjanesbæ Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin „Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér“ Gera ráð fyrir að aðildarviðræður klárist fyrir lok kjörtímabilsins Sjá meira