Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Atli Ísleifsson skrifar 2. desember 2024 07:29 Gular viðvarnir taka gildi vegna hríðarveðurs á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Suðurlandi, Breiðafirði, Vestfjörðun, Suðausturlandi og Miðhálendi í dag. Veðurstofan Það var mjög kalt á landinu í nótt, frost fór til dæmis niður fyrir tuttugu stig á nokkrum stöðvum á Norðausturlandi.
Austur af Hvarfi er nú vaxandi lægð og nálgast skil hennar landið. Það fer að snjóa frá þeim suðvestantil seinni partinn og í kvöld er spáð suðaustan hvassviðri eða stormi með snjókomu, slyddu eða rigningu á Suður- og Vesturlandi. Veðurstofan hefur sett Mosfellsheiði, Þrengslin og Hellisheiðina á óvissustig vegna veðurs milli klukkan 15 í dag og 23 í kvöld. Vegurinn gæti þannig lokað með stuttum fyrirvara. Gular viðvaranir vegna hríðar hafa verið gefnar út. Vegfarendum er bent á að fylgjast með veðurspám og fréttum af færð. Mun hægari vindur norðan- og austanlands, þurrt og kalt veður. Á höfuðborgarsvæðinu verður gul viðvörun í gildi milli 18 og miðnættis í kvöldþar sem búast má við skafrenningi og lélegum aksturskilyrðum, einkum í efri byggðum. Færð gæti spillst. Gular viðvarnir taka einnig gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Suðurlandi, Breiðafirði, Vestfjörðun, Suðausturlandi og Miðhálendi í dag. Í nótt og á morgun hreyfast skilin austur yfir land og það lægir í kjölfar þeirra. Skúrir eða él á víð og dreif á morgun, en rigning eða slydda fyrir austan fram eftir degi. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðlæg átt 5-13 m/s og skúrir eða él, en rigning eða slydda fram eftir degi austanlands. Hiti kringum frostmark. Þurrt að kalla á Norðurlandi og frost 0 til 7 stig. Á miðvikudag: Sunnan 3-10 og stöku él suðvestan- og vestanlands, annars bjart með köflum. Frost 0 til 10 stig. Vaxandi norðaustanátt síðdegis og slydda eða rigning suðaustantil um kvöldið. Á fimmtudag: Norðanátt með slyddu eða rigningu, einkum norðaustan- og austanlands, en snjókomu og vægu frosti um landið norðvestanvert. Á föstudag: Norðanátt og snjókoma eða él, en úrkomulítið á Suðurlandi. Kólnandi veður. Á laugardag: Norðanátt og él norðaustantil, annars þurrt. Kalt í veðri. Á sunnudag: Útlit fyrir bjart og kalt veður á landinu.
Veður Færð á vegum Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Sjá meira