Innlent

Furðar sig á að úr­skurðurinn birtist þremur árum eftir að hann féll

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Laufey Guðjónsdóttir var forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar í tuttugu ár og lét af embætti í febrúar síðastliðnum. Hún var meðal átján umsækjenda sem sóttu um embætti skrifstofustjóra skrifstofu menningar og fjölmiðla hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.
Laufey Guðjónsdóttir var forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar í tuttugu ár og lét af embætti í febrúar síðastliðnum. Hún var meðal átján umsækjenda sem sóttu um embætti skrifstofustjóra skrifstofu menningar og fjölmiðla hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Kvikmyndamiðstöð

Fyrrverandi forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar furðar sig á birtingu úrskurðar menningarmálaráðuneytisins sem tengdist styrkveitingu miðstöðvarinnar. Úrskurðurinn féll fyrir þremur árum en var ekki birtur fyrr en í síðustu viku.

Vísir fjallaði í gær um úrskurð vegna eftirvinnslustyrks úr Kvikmyndasjóði sem féll 19. maí 2020 en birtist á vef Stjórnarráðsins 4. apríl síðastliðinn, tæpum þremur árum síðar.

Þar úrskurðaði menningarmálaráðuneytið kvikmyndaráðgjafa Kvikmyndamiðstöðvar vanhæfan vegna fjárhagslegra hagsmuna til að taka ákvörðun tengda umsókn um eftirvinnslustyrk kvikmyndar. Synjun umsóknarinnar var snúið við vegna þess að ekkert benti til þess að forstöðumaður sjóðsins, Laufey Guðjónsdóttir, hefði komið að ákvörðuninni og vegna skorts á rökstuðningi fyrir synjuninni.

Nokkrum tímum eftir að fréttin var skrifuð í gær birti Stjórnarráðið lista yfir þá átján umsækjendur sem sóttu um embætti skrifstofustjóra skrifstofu menningar og fjölmiðla hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Meðal umsækjendanna var Laufey Guðjónsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar.

Sjá frétt um umsækjendur: Lauf­ey á meðal um­sækj­enda um starf skrif­stofu­stjóra

Staðan hafði verið auglýst 17. mars síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út um síðustu mánaðamót en þriggja manna hæfnisnefnd mun meta hæfni umsækjenda. Óvenjuleg tímasetning birtingar úrskurðarins er því líka óheppileg í ljósi þessara tíðinda.

Birtingin hafi komið henni á óvart

Blaðamaður hafði samband við Laufeyju í kjölfar birtingar fréttarinnar. Fyrstu viðbrögð hennar voru að sér fyndist þetta mjög sérstakt og það hefði komið sér mjög á óvart „að þetta hafi verið birt núna.“

Hún sagði að eins og hefði komið fram í fréttum hefði þetta verið mál sem Kvikmyndamiðstöð fjallaði fyrst um 2018 og síðan aftur 2019. Hún segir að miðstöðin hefði farið eftir því sem ráðuneytið úrskurðaði og í kjölfarið breytt öllum sínum verkferlum.

„Af hverju þetta er birt núna hef ég ekki hugmynd,“ bætti hún við.

Blaðamaður minntist þá á að samsæriskenningasmiðir væru þegar farnir að tengja saman birtingu úrskurðarins og birtingu listans yfir umsækjendur um skrifstofustjórastöðuna hjá ráðuneytinu.

Laufey sagðist ekki vilja trúa því að birtingin væri hluti af umsóknarferlinu ef blaðamaður væri að ýja að því. Hins vegar nefndi hún að það væri sérkennilegt að það hafi ekki fleiri sambærilegir úrskurðir komið nýlega inn á vefinn.

Blaðamaður sendi fyrirspurn á ráðuneytisstjóra viðskipta- og menningarmálaráðuneytisins, Sigrúnu Brynju Einarsdóttir, vegna úrskurðarins til að forvitnast fyrir um birtingu úrskurðarins og þennan langa biðtíma. Svar við fyrirspurninni hefur ekki enn borist.


Tengdar fréttir

Lauf­ey á meðal um­sækj­enda um starf skrif­stofu­stjóra

Alls sóttu átján manns um embætti skrifstofustjóra skrifstofu menningar og fjölmiðla hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára frá og með næstu mánaðarmótum.

Ráð­gjafi van­hæfur vegna fjár­hags­legra hags­muna og fyrrverandi for­­stöðu­­maður fær vonda um­­­sögn

Menningamálaráðuneytið úrskurðaði kvikmyndaráðgjafa Kvikmyndamiðstöðvar vanhæfan vegna fjárhagslegra hagsmuna til að taka ákvörðun tengda umsókn um eftirvinnslustyrk kvikmyndar. Synjun umsóknarinnar var snúið við vegna þess að ekkert benti til þess að forstöðumaður sjóðsins hefði komið að ákvörðuninni og vegna skorts á rökstuðningi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×