Marokkó vann Kanada og F-riðilinn í leiðinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hakim Ziyech fagnar marki sínu með liðsfélögunum en hann fékk það á silfurfati frá markverði Kanada.
Hakim Ziyech fagnar marki sínu með liðsfélögunum en hann fékk það á silfurfati frá markverði Kanada. AP/Pavel Golovkin

Þetta er í fyrsta sinn siðan 1986, eða í 36 ár, sem Marokkó kemst í útsláttarkeppnina á heimsmeistaramótinu í fótbolta.

Morokkó fékk mark á silfurfati í upphafi leiks og eftir það var á brattan að sækja hjá Kanadamönnum sem höfðu að engu að keppa í þessum leik.

Hakim Ziyech skoraði fyrra markið hjá Marokkó eftir skelfilegt útspark Milan Borjan í marki Kanada strax á fjórðu mínútu en Youssef En-Nesyri  skoraði annað markið eftir að hafa fengið geggjaða sendingu inn fyrir frá Achraf Hakimi.

Marokkó virtist vera komið með þetta þegar liðið komst í 2-0 um miðjan fyrri hálfleik en eftir sjálfsmark kom Kanada aftur inn í leikinn voru Marokkómenn aldrei rólegir.

Kanada var mjög nálægt því að jafna metin þegar fyrirliðinn skallaði í slá og niður á 71. mínútu en boltinn fór ekki inn fyrir línuna. Marokkó hélt hins vegar út og tryggði sér ekki aðeins sigur í leiknum heldur einnig sigur í riðlinum.

Kanadamenn töpuðu öllum þremur leikjum sínum og eru á heimleið eins og Belgar. Marokkó mætir liðinu í öðru sæti úr E-riðlinum en úrslitin þar ráðast ekki fyrr en í kvöld og þar geta öll fjögur liðin enn komist áfram.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira