Innlent

Sviðahausapizzur í Hveragerði á bóndadaginn

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Sviðahausinn klár á pizzunni frá Ölverki í Hveragerði.
Sviðahausinn klár á pizzunni frá Ölverki í Hveragerði. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Veitingamaður í Hveragerði ætlar að fara alla leið á bóndadaginn, sem er í dag því hann verður með sviðahausapizzur fyrir þá sem þora.

Laufey Sif Lárusdóttir og Elvar Þrastarson eiga veitingastaðinn Ölverk í Hveragerði, sem er fyrst og fremst pizzustaður en þar brugga þau líka sinn eigin bjór. Nú er allt að verða klárt fyrir bóndadaginn og þorrann en íslenskir sviðakjammar koma þar við sögu.

Kjamminn fer fyrst inn í pizzaofninn og snýst þar nokkra hringi. Strax á eftir er pizzunni skellt inn og síðan fer Elvar pizzugerðameistari að föndra við kjammann og pizzuna með alls konar góðgæti, m.a. frábæri BBQ sósu, sem hann býr til sjálfur.

Elvar Þrastarson veitingamaður hjá Ölverki segir að þeir sem hafa nú þegar fengið að smakka á sviðahausapizzunum gefi þeim sína bestu einkunn.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sviðahausapizzan verður á boðstólnum í dag, bóndadag og jafnvel líka á morgun ef viðtökurnar verða góðar.

Ölverk er veitingastaður í Hveragerði þar sem eigendurnir eru alltaf tilbúnir að prófa einhverjar nýjungar.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Ýmis varningur, sem tengist þorranum á einn eða annar hátt hjá Ölverki í Hveragerði.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Sóði er nafnið á þorrabjór Ölverks í ár, sem er bruggaður á staðnum.Magnús Hlynur Hreiðarsson


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×