Innlent

Allt útlit fyrir að sjö hafi greinst smitaðir af omíkron

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þrír hafa nú greinst smitaðir af omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi.
Þrír hafa nú greinst smitaðir af omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi. Vísir/Vilhelm

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að allt líti út fyrir að sjö einstaklingar hafi greinst með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi.

Þetta sagði Kári í viðtali við fréttastofu fyrir stundu. Hann segir einstaklingana sjö alla tengjast og því sé sá möguleiki fyrir hendi að afbrigði veirunnar sé ekki komið víðar í samfélaginu.

Karlmaður á áttræðisaldri greindist smitaður af afbrigðinu í gær. Hann liggur inni á Landspítalanum eftir að hafa greinst með Covid-19 á heilbrigðisstofnun utan höfuðborgarsvæðisins. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu lá maðurinn inni á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi en var fluttur yfir á Landspítalann þegar í ljós kom að hann væri smitaður.

Ekkert bendi til að sögn Kára að bóluefnin verndi ekki gegn omíkron-afbrigðinu. 

„Við höfum ekkert í höndunum sem bendir til að það geri það ekki. En sá möguleiki er svo sannarlega fyrir hendi að bóluefnin nái ekki þessu stokkbreytta formi,“ segir Kári. Margar stökkbreytingarnar í omíkron-afbrigðinu hafi fundist áður í öðrum stökkbreytingum veirunnar. Það séu stökkbreytingar sem bóluefnið veiti vernd gegn. 

Klippa: Allt líti út fyrir að sjö séu smitaðir af omíkron

Hann segist ekkert svo áhyggjufullur yfir ástandinu. Hann skilji fólk sem sé mjög áhyggjufullt. 

„Ég er ekkert sérstaklega áhyggjufullur út af þessu. Mér finnst þetta ekki mjög mikið frávik frá því sem hefur verið að gerast upp á síðkastið. Ekki gleyma því að þrátt fyrir að við séum búin að bólusetja yfir 90 prósent fullorðinna á Íslandi þá hefur faraldurinn blossað upp og hann hefur blossað upp áður en þetta omíkron-afbrigði kom,“ segir Kári.

Greint var frá því fyrir stuttu að tveir hafi greinst smitaðir af afbrigðinu í dag. Þetta sagði Kári í viðtali við RÚV en greinilegt að fleiri hafi bæst í hópinn síðasta klukkutímann. 

Maðurinn sem greindist í gær er fullbólusettur og fékk að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnlaæknis nýverið örvunarskammt. Maðurinn hafði ekki verið á ferðalagi utan landssteinanna og er því enn óljóst hvernig omíkron-afbrigðið barst hingað til lands. Smitrakningarteymið vinnur nú hörðum höndum að því að komast að uppruna smitsins. 

Kári segir í samtali við RÚV að nú framkvæmi Íslensk erfðagreining raðgreiningra á hverjum degi, annað en var gert fyrr í faraldrinum. Á meðan delta-afbrigðið var ráðandi hafi sýnum til að mynda verið safnað í nokkra daga áður en þau voru raðgreind.

„Nú raðgreinum við á hverjum degi. Til að fylgjast með því hvernig þetta afbrigði dreifir sér í íslensku samfélagi. “

Fréttin hefur verið uppfærð með viðtali fréttastofu við Kára Stefánsson.


Tengdar fréttir

Sá omíkron-smitaði á áttræðisaldri

Einstaklingurinn sem greindist fyrstur manna hér á landi með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar er karlmaður á áttræðisaldri. Hann er fullbólusettur og hefur þess utan fengið örvunarskammt.

Alveg öruggt að omíkron-afbrigðið leynist hér á landi

Það er „alveg öruggt“ að omíkron-afbrigðið leynist hér á landi miðað við þær fregnir að einstaklingurinn sem greindist sýktur af þessu afbrigði kórónuveirunnar hafi ekki verið á ferð um útlönd. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×