Innlent

Ingibjörgu Sólrúnu blandað í ævintýralegt samsæri

Snorri Másson skrifar
Ingibjörg Sólrún var utanríkisráðherra 2007-2009, en samkvæmt andstæðingum hennar í Írak nýtti hún völd sín eftir embættistíð til að hafa áhrif á gang mála í Úkraínu.
Ingibjörg Sólrún var utanríkisráðherra 2007-2009, en samkvæmt andstæðingum hennar í Írak nýtti hún völd sín eftir embættistíð til að hafa áhrif á gang mála í Úkraínu. Twitter

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er lykilmaður í samsæri Sameinuðu þjóðanna um að stela kosningunum í Írak, ef marka má urmul samsæriskenninga á netinu. Hún hendir gaman að og segist dást að sköpunargleði höfundanna.

Í myndbandi sem gengur manna á milli á íröskum samfélagsmiðlum er máluð upp nokkuð sérkennileg mynd af ferli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands. Vikið er að embættistíð hennar á Íslandi, störfum hennar fyrir Sameinuðu þjóðirnar og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, en ekki síst er dregin upp þátttaka hennar í kosningaeftirliti í Úkraínu fyrir nokkrum árum. 

Út frá þeim störfum er spunninn meintur þáttur hennar í appelsínubyltingunni þar árið 2004, hún er sögð hafa hvatt til mótmæla í deilunum um Krímskagann og látið að því liggja að hún hafi samið við Rússa um það landsvæði árið 2014.

Myndbandið er satt að segja hálfgert skemmtiefni og má sjá hér:

„Ég tek þetta ekkert alvarlega. Þetta er bara spuni. En það sem vakti aðallega athygli mína er allt þetta myndefni. Hvar grófu þeir þetta upp? Rosalega leggja þeir mikið á sig,“ segir Ingibjörg Sólrún í samtali við fréttastofu.

Þingkosningar fóru fram í Írak 10. október og sú sjíablokk fór með afgerandi sigur sem ekki er hliðholl stjórnvöldum í Íran. Á meðal hlutverka Sameinuðu þjóðanna í Írak er, að ósk íraskra stjórnvalda, að aðstoða við skipulag þingkosninga og að fylgjast með framkvæmdinni á kjördag.

„Af því að Sameinuðu þjóðirnar eru svona sýnilegar í kringum kosningarnar er miklu auðveldara að benda á þær og segja: Það er ykkur að kenna að við töpuðum. Það er talað um kosningasvindl og að kosningunum hafi verið stolið en það eru engin haldbær rök,“ segir Ingibjörg.

Áróðurinn breytir því ekki að sögn Ingibjargar að kosningarnar nú fóru betur fram en þær hafa gert frá árinu 2003.

„Ég veit hvenær ég sé góðar kosningar og hvenær slæmar kosningar. Engar kosningar fullkomnar, ekki einu sinni þótt Íslendingar hafi kannski talið sínar kosningar vera það, kom í ljós að svo var ekki. Þessar kosningar voru ekki fullkomnar, það voru ákveðin vandkvæði, en þetta voru góðar kosningar,“ segir Ingibjörg, sem er stödd í Írak.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×