Benzema hélt sigur­göngu Real á­fram

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Benzema er allt í öllu hjá Real Madríd.
Benzema er allt í öllu hjá Real Madríd. Gonzalo Arroyo Moreno/Getty Images

Sigurganga Real Madríd heldur áfram þökk sé franska sóknarmanninum Karim Benzema. Liðið er nú með sjö stiga forystu á toppi La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar.

Lærisveinar Carlo Ancelotti eru svo sannarlega á góðu skriði þessa dagana. Þeir tóku á móti Athletic Bilbao í eina leik La Liga í kvöld.

Fór það svo að heimamenn unnu 1-0 sigri þökk sé marki Benzema á 40. mínútu leiksins. Markið var með þeim einfaldari sem Benzema hefur skorað í langan tíma en hann renndi knettinum í autt netið eftir sendingu króatíska miðjumannsins Luka Modrić.

Real er sem fyrr á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar, nú með sjö stiga forystu á nágranna sína í Atlético Madríd. Real er með 36 stig eftir að hafa spilað 15 leiki á meðan Atlético er með 29 stig og á leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira