Fótbolti

Af­ganskar knatt­spyrnu­konur í felum og kalla á hjálp

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Khalida Popal, fyrrum fyrirliði kvennalandsliðs Afganistan, ræddi málefni kvenna sem hafa stundað knattspyrnu í landinu við AP fréttastofuna. Hér er hún á ráðstefnu í Zurich í Sviss að ræða jafnréttismál innan Alþjóðaknattspyrnusambandsins.
Khalida Popal, fyrrum fyrirliði kvennalandsliðs Afganistan, ræddi málefni kvenna sem hafa stundað knattspyrnu í landinu við AP fréttastofuna. Hér er hún á ráðstefnu í Zurich í Sviss að ræða jafnréttismál innan Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Valeriano Di Domenico/Getty Images

Talibanar náðu Kabúl, höfuðborg Aftanistan, undir sitt vald á sunnudag. Leikmenn afganska kvennalandsliðsins í knattspyrnu hafa nær allar farið í felur enda óttast þær um líf sitt í kjölfar valdaskiptanna.

Í frétt AP fréttastofunnar um málið er rætt við Khalidu Popal sem er í dag búsett í Danmörku. Þessi fyrrum fyrirliði kvennalandsliðs Afganistan í knattspyrnu þurfti að flýja landið árið 2011 þar sem líf hennar var í hættu sökum þess að hún var frumkvöðull er kom að málefnum kvenna í landinu. 

Popal hefur þó haldið góðu sambandi við heimalandið og sérstaklega þeim sem tengjast fótbolta á einn eða annan hátt. Allar þær stelpur, sem og konur, sem hafa æft eða spilað fótbolta í Afganistan undanfarin ár eru nú í hættu eftir valdatöku Talibana. 

Hún hefur hvatt leikmenn til að eyða öllum sönnunargögnum um að þær hafi verið frumkvöðlar á sínu sviði sem og að yfirgefa heimili sín og fara þangað sem fólk þekkir þær ekki.

„Ég hef hvatt þær til að loka samfélagsmiðlum sínum, taka niður myndir, flýja og fara í felur. Það brýtur í mér hjartað af því að við eyddum mörgum árum í að auka sýnileika kvenna í Afganistan en nú er ég að segja þeim að tjá sig ekki um málefni kvenna og láta sig hverfa. Líf þeirra eru í hættu.“

Með vernd alþjóðasamfélagsins var Popal bjartsýn að réttindi kvenna yrðu í hávegum höfð í Afganistan um ókomna tíð.

„Mín kynslóð hélt í vonina um að hægt væri að byggja upp landið fyrir komandi kynslóðir, karla og kvenna. Ég, ásamt öðrum ungum konum, byrjaði því að nota fótbolta sem tæki til að valdefla konur sem og stelpur í landinu.“

Árið 2007 voru svo nægilega margar konur, og stelpur, farnar að æfa fótbolta þannig að hægt var að stofna kvennalandslið Afganistan í knattspyrnu.

„Við vorum svo stoltar þegar við klæddumst landsliðstreyjunni í fyrsta skipti. Það var fallegasta tilfinning í heimi. Það sem er í gangi núna er ekki sanngjarnt, þær eru grátandi og í felum. Þær eru örvæntingafullar og hafa margar spurningar til þeirra sem gáfu þeim öryggi en hafa nú yfirgefið landið.“

„Flestar hafa yfirgefið heimili sín og eru nú hjá ættingjum sínum því nágrannar þeirra vita að þær spiluðu fótbolta.“

„Talibanarnir eru út um allt. Þær hafa tekið myndir og myndbönd sem sýna að þeir svo gott sem fyrir utan gluggann þar sem þær eru í felum, þeir búa til ótta hvert sem þeir fara. Þetta er allt mjög sorglegt.“

„Það var mjög sársaukafullt að sjá hvernig ríkisstjórnin hrundi á sunnudag. Þá misstu konur alla von,“ sagði Khalida Popal að endingu í viðtali sínu við AP fréttastofuna um málefni kvenna í Afganistan.


Tengdar fréttir

Mynd sýnir þétt­pakkaða her­flutninga­vél sem flaug á brott með hátt í sjö hundruð í einu frá Afgan­istan

Talið er að 640 Afganir hafi komist frá Afganistan á einu bretti um borð í C-17 herflutningavél bandaríska flughersins í gær. Flugmenn vélarinnar tóku þá ákvörðun að taka á loft frekar en að reyna að koma flóttamönnunum úr vélinni sem höfðu skömmu áður fyllt vélina í örvæntingarfullri tilraun til þess að komast burt frá Afganistan.

Varði á­kvörðunina og skellti skuldinni á ráða­mennina sem flúðu

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, varði ákvörðun sína um að draga bandarískt herlið frá Afganistan er hann ávarpaði bandarísku þjóðina í kvöld. Hann segist standa við ákvörðunina en viðurkennir að Talibanar hafi náð völdum hraðar en gert hafði verið ráð fyrir. Það sé hins vegar ráðamönnum í Afganistan að kenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×