Fótbolti

Beckham hefur trú á enska landsliðinu

Beckham mun hvetja enska landsliðið áfram.
Beckham mun hvetja enska landsliðið áfram. vísir/getty
Þeir eru ekkert allt of margir sem hafa mikla trú á enska landsliðinu á HM en David Beckham er ekki einn þeirra.

Beckham er mjög ánægður með hópinn hjá enska landsliðinu og hefur hrósað Hodgson landsliðsþjálfara fyrir að velja góða blöndu og yngri og eldri leikmanna.

"Mér fannst liðsvalið virkilega gott og Roy hefur staðið sig ótrúlega vel síðan hann tók við liðinu. Þetta er erfitt starf en hann hefur leyst það vel," sagði Beckham.

"Í hópnum eru leikmenn sem eru á tindi síns ferils. Svo eru þarna ungir strákar sem hafa átt frábært tímabil. Þessir strákar hafa flestir leikið í erfiðustu deild heims í nokkur ár og eiga að ráða við pressuna á HM.

"Svo er fyrirliðinn Stevie G þarna en hann er nýbúinn að klára líklega eitt af sínum bestu tímabilum. Ég held að þetta lið hafi allt til að bera til þess að koma fólki á óvart."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×