Gríska þingið féllst á aðhaldspakkann 30. júní 2011 02:00 Allt logaði í óeirðum fyrir utan þinghúsið meðan þingmenn gengu til atkvæða. Nordicphotos/AFP
Gríska þingið samþykkti í gær hið óvinsæla aðhaldsfrumvarp ríkisstjórnarinnar, sem tryggir að Grikkland fái næstu greiðslu frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þar með eru Grikkir sloppnir fyrir horn í bili og geta greitt næstu afborganir af himinháum lánum ríkissjóðs. Einungis einn þingmaður stjórnarflokksins PASOK hljópst undan merkjum og greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en á móti kom að ein þingkona stærsta flokks stjórnarandstöðunnar greiddi atkvæði með frumvarpinu. Meðan þingmenn greiddu atkvæði um málið logaði allt í óeirðum á Stjórnarskrártorginu fyrir utan þinghúsið í Aþenu. Allsherjarverkfall hafði einnig að nokkru lamað þjóðlífið í landinu. „Við verðum að koma með öllum ráðum í veg fyrir hrun landsins,“ sagði Giorgios Papandreú forsætisráðherra í ræðu sinni á þingi í gær. „Fyrir utan eru margir að mótmæla. Sumir þeirra eiga sannarlega um sárt að binda, aðrir eru að missa forréttindi sín. Það er lýðræðislegur réttur þeirra, en hvorki þeir né nokkur annar á nokkru sinni að þurfa að þola afleiðingar af hruni.“ Seinni hluti aðhaldspakkans verður afgreiddur á þinginu í dag og er almennt reiknað með að hann verði samþykktur. Æðstu embættismenn Evrópusambandsins og leiðtogar helstu aðildarríkja þess fögnuðu niðurstöðu gríska þingsins. Óánægjan kraumar hins vegar með grísku þjóðinni. „Þetta er slæmt,“ sagði Dimitris Kostopoulos tryggingasali, sem tók þátt í mótmælunum. „Stjórnin hefur enn einu sinni svikið okkur.“ Í maí á síðasta ári samþykktu Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn 110 milljarða evra aðstoð til Grikklands, sem sá ekki fram á að geta greitt afborganir af ríkisskuldum. Grikkir hafa nú þegar fengið 48 milljarða greidda og eiga að fá 12 milljarða fljótlega eftir mánaðamótin, verði aðhaldsaðgerðirnar samþykktar. Á síðustu vikum hefur hins vegar komið í ljós að 110 milljarða aðstoðin dugar ekki, þannig að Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa nú í hyggju að samþykkja annan aðstoðarpakka, líklega upp á 120 milljarða evra. Gríska stjórnin segist vonast til þess að sá pakki verði tilbúinn í haust. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark Innlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Innlent Vongóð um stuðning Miðflokksins Innlent Bandaríkjastjórn kemur barnaníðsefni Musk til varnar Erlent Fleiri fréttir 32 látnir eftir að krani féll á lest í Taílandi Rannsaka ásakanir á hendur Iglesias Sautján prósent Bandaríkjamanna styðja innlimun Grænlands Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Tveir látnir eftir árekstur strætisvagna Reyna að tala Trump til og óttast afleiðingar árása Bandaríkjastjórn kemur barnaníðsefni Musk til varnar Mengunarreglur taka ekki lengur tillit til dauðsfalla og heilsu Starmer boðið sæti í „friðarstjórn“ Trump Trump segir Nielsen í vondum málum Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Trump sýndi verkamanni puttann Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur „Við veljum Danmörku“ Að minnsta kosti þrjú þúsund látnir í Íran Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Fá Andrés Önd til að bjarga læsi barna Borgin ber enga ábyrgð í Gufunesbruna og stjórnarmaður í Truenorth segir tjónið óbætanlegt Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Hótar Musk frekari sektum bregðist hann ekki við barnaníði Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Kynnir sér möguleika varðandi Íran og leggur toll á vinaríki klerkastjórnarinnar Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Þvert nei Grænlendinga við yfirtöku Bandaríkjanna Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Bretar ætla að framleiða skotflaugar fyrir Úkraínu Hefja formlega rannsókn á kynferðislegum fölsunum Musk Sjá meira