Útgjöld til varnarmála stóraukin 6. febrúar 2006 22:00
Velferðarkerfið bíður lægri flut fyrir varnarmálum í tillögu George Bush Bandaríkjaforseta að nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2007. Samkvæmt því verða útgjöld til varnarmála sextán prósent af öllum útgjöldum bandaríska ríkisins. Samkvæmt tillögunni fara fjögur hundruð þrjatíu og níu milljarðar dollara í varnarmál árið 2007. Það samsvarar ríflega tuttugu og fimm þúsund milljörðum króna. Til samanburðar er áætlaður kostnaður Bandaríkjanna vegna veru varnarliðsins í Keflavík um tvö hundruð og fimmtíu milljónir dollara á ári. Það er tæplega einn átjánhundruðasti af útgjöldum Bandaríkjanna til varnarmála samkvæmt tillögu Bush. Inni í upphæðinni eru ekki aukafjárveitingar vegna aðgerða í Írak og Afghanistan, sem sérfræðingar telja öruggt að farið verði fram á ef ekki verði stórkostlegar breytingar á áætluðum aðgerðum í löndunum tveimur. Þá verða útgjöld vegna heimavarnarmála líka aukin um rösklega þrjú prósent ef tillögur forsetans ná fram að ganga. En á sama tíma og útgjöld til varnarmála eru aukin um tæplega sjö prósent, miðað við fjárlög ársins í ár, er skorið niður bæði í heilbrigðis- og menntamálum. Sérstök áætlun um bætta heilbrigðisþjónustu fátækra, fatlaðra og eldri borgara verður skorin niður um nærri átján hundruð milljarða króna á næstu fimm árum ef tillögurnar verða að veruleika. Þetta hafa demókratar gagnrýnt harðlega og segja að í tillögunum sé óheyrilegum fjárhæðum eytt í gæluverkefni og í staðinn eigi að taka af þeim sem síst megi við því. En þeir sem til þekkja segja þrátt fyrir það allar líkur á að ekki verði hróflað við þeirri háu upphæð sem lagt er til að fari í varnarmál, því Demókratar á Bandaríkjaþingi megi einfaldlega ekki við því að fá á sig orð fyrir að taka vægt á hryðjuverkum. Auknar fjárveitingar í velferðarmál verði því að taka annars staðar frá.
Erlent Fréttir Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira